Mosfellingur - 22.02.2018, Side 16
- Bókasafnsfréttir16
Bókasafnið, Listasalurinn og Héraðsskjala-
safnið voru í annað sinn með í hinu árlega
Safnanæturævintýri. Dagskráin var fjöl-
breytt og skemmtileg.
Fjölskyldujóga var í Listasalnum sem
var mjög vinsælt.
Draugaþema var í barnadeildinni þar
sem búið var að koma upp draugahúsi með
viðeigandi skreytingum. Sigrún Harðardótt-
ir las draugasögu fyrir krakkana og spilaði á
fiðlu. Boðið var upp á draugalegar veitingar
fyrir börnin.
Ratleikur var í gangi allt kvöldið og
mikill fjöldi tók þátt. Fimm svarseðlar voru
dregnir út og er búið að hafa samband við
vinningshafa.
Fullorðinsdagskráin hófst með því að
listamaðurinn Steingrímur Gauti spjallaði
við gesti um sýningu sína. Þá tók kaffihúsa-
stemning við og hljómsveitin Piparkorn lék
ljúfa tóna ásamt söngkonunni Maríu Gyðu
Pétursdóttur. Boðið var upp á kaffi og léttar
veitingar.
Spurningaleikur á vegum Safnanætur
var vinsæll og verður unnið úr svörum hjá
Höfuðborgarstofu í Reykjavík. Dregið var
15. febrúar og hægt að sjá vinningshafa á
vefsíðunni vetrarhatid.is.
Bókasafn - Listasalur - Héraðsskjalasafn
Fjölbreytt dagskrá
á Safnanótt í Mosfellsbæ
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja
til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir yfir sumartímann.
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Styrkir til efnilegra ungmenna
í Mosfellsbæ sumarið 2018
Öll ungmenni á aldrinum 14 til 20 ára, með lögheimili í Mosfellsbæ,
sem skara fram úr og/eða hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu
sviði geta sótt um styrkinn.
Markmið styrksins er m.a. að gefa einstaklingum sömu tækifæri og
jafnöldrum þeirra til að njóta launa frá bænum á sama tíma og þau
stunda list sína, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann.
Styrkurinn er fólginn í launum frá Vinnuskóla Mosfellsbæjar.
Fyrir unglinga á grunnskólaaldri er greitt í samræmi við samþykktan
taxta Vinnuskólans. Eldri hópurinn fær greitt í samræmi
við önnur sumarátaksstörf hjá Mosfellsbæ.
Skilafrestur er til og með 11. mars 2018 og skal umsóknum
ásamt fylgigögnum skilað í þjónustuver Mosfellsbæjar,
2. hæð Kjarna, eða rafrænt á mos@mos.is.
Umsóknareyðublöð, reglur um styrkveitingu
og allar nánari upplýsingar er hægt að
nálgast á vef Mosfellsbæjar www.mos.is
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar
Draugaþema í
barnaDeilDinni
maría gyða
og piparkorn
kaffihúsastemning
með léttum veitingum