Mosfellingur - 22.02.2018, Síða 28

Mosfellingur - 22.02.2018, Síða 28
 - Aðsendar greinar28 Við búum í fallegum bæ. Stutt er til fjalla og í fjöru. Allir sem vilja stunda útivist geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Talað er mikið um það að menn eigi að hreyfa sig daglega og þá sér- lega börnin. Mér finnst til dæmis mjög hjákátlegt þegar menn mæta í íþróttamiðstöðvar og vilja helst keyra beint inn að inngangnum. Mæta menn ekki til þess að hreyfa sig? Er þá ekki í lagi að labba nokkur skref? En talað um útivist: Ómældan fjársjóð er að finna hér í bæ. Og það besta er að það kostar ekki neitt. Ganga meðfram Leiru- voginum eða fara upp á eitthvað af okkar fjöllum í nágrenninu er besta líkamsrækt. Eða fá sér hjólreiðaferð á stígunum milli bæjarfélagana. Veturinn er einnig mjög heillandi. Þeir sem eru sprækir geta skemmt sér á skíðum. Ein lítil toglyfta myndi nú ekki kosta mik- ið. Miður er að engin gönguskíðabraut er rudd um golfvallarsvæðið eins og í fyrra. Þetta var mjög skemmtilegt framtak. En gönguskíðabrautin um Tunguvöllinn er ekki spennandi, enda einungis 900 m á jafnsléttu og þjónar einungis þeim sem búa í Leirvogstungu. Auðvitað gegna íþróttafélögin okkar mikilvægu hlutverki. En við eigum ekki alltaf að þurfa að borga fyrir það að við viljum hreyfa okkur. Þannig að allt sem stuðlar að hollri útiveru burtséð frá félagsaðild að einhverjum félögum þarf að styðja sérlega vel. Skógræktarsvæðin eiga að fá fjármagn til að tryggja áframhald á starfseminni, mest notuðu göngustígar upp á fjöllin okkar þurfa varanlegt viðhald. Mosfellsbærinn okkar á að stefna áfram að því að vera heilsueflandi samfélag og hlúa sérlega að því að menn á öllum aldri uni sér vel í að vera úti í nátturunni. Úrsúla Jünemann, situr í umhverfisnefnd fyrir Íbúarhreyfingu Heilsueflandi bærinn okkar Rótarý er hreyfing fólks úr við- skipta- og atvinnulífi og opinberri þjónustu. Rótarýhreyfingin er alþjóðafélagsskapur sem er starf- andi í meira en 200 löndum í öllum heimsálfum. Félagar eru rúmlega 1,2 milljón- ir í um 35 þúsund klúbbum. Þessi alþjóðlegu samtök standa fyrir mannúðar- og menningarstarfi, stuðla að sem bestu siðgæði í öllum starfsgreinum og hvetja til góðvildar og friðar í heiminum. Til marks um það er opinbert kjörorð al- þjóðahreyfingarinnar: „Þjónusta ofar eigin hag“. Á Íslandi eru starfandi 31 rótarýklúbbur með um 1300 félaga. Í klúbbunum er lif- andi starf og vikulegir eða hálfsmánaðar- legir fundir með fróðlegum fyrirlestrum og umræðu. Félagar eru á öllum aldri og af báðum kynjum. Rótarýfélagi getur sótt rótarýfund hjá hvaða rótarýklúbbi sem er í heiminum. Rótarýdagurinn er haldinn hátíðlegur þann 24. febrúar næstkomandi og af því tilefni er Rótarýhreyfingin á landsvísu að vekja athygli á starfsemi sinni. Hvað gerir Rótarý fyrir samfélagið ? Rótarý leggur áherslu á ýmis mannúð- armál og ber þar fyrst að nefna verkefnið End Polio Now þar sem klúbbarnir leggja sitt af mörkum í baráttunni við útrýmingu lömunarveiki í heiminum. Rótarý á Íslandi styrkir síðan árlega efnilega tónlistarmenn í gegnum tónlistarsjóð sinn og var Víkingur Heiðar Ólafsson fyrsti styrkþegi tónlistar- sjóðsins. Rótarýklúbbur Mosfellssveitar hefur veitt árleg samskiptaverð- laun til grunskólanema og enn- fremur staðið fyrir skógrækt hér í heimabænum. Síðast en ekki síst veitti Rótarý í tengslum við nýlið- ið Umdæmisþing styrki til þriggja mjög verðugra samfélagsverkefni hér í Mosfellsbæ. Hvað gefur Rótarý félögum sínum ? Rótarý er félagsskapur sem eflir þekkingu og kunningsskap milli starfstétta og þar skapast tækifæri til áralangrar vináttu og samstarfs í gegnum skemmtileg viðfangs- efni. Haldnir eru fjölbreyttir og fræðandi fyrirlestrar þar sem farið er yfir það sem efst er á baugi hverju sinni. Árlega heldur klúbburinn skemmtilega hátíðarfundi og fer saman í ferðir og nýtur útivistar í nær- samfélaginu en einnig hafa félagsmenn skellt sér saman í ferðir utan landsstein- anna. Rótarýklúbbur Mosfellssveitar Rótarýklúbbur Mosfellssveitar var stofnaður þann 17. mars 1981 og er hann því rétt tæplega 37 ára gamall. Fundað er yfir vetrartímann á þriðjudögum kl. 18:15 í nýja Golfskálanum Kletti. Hafir þú eða þið áhuga á Rótarý eða viljið gerast félagar er velkomið að hafa samband við Jóhönnu Björgu Hansen forseta Rótarýklúbbs Mos- fellssveitar starfsárið 2017-2018 eða Þuríði Yngvadóttur ritara klúbbsins. Jóhanna Björg Hansen Forseti Rótarýklúbbs Mosfellssveitar starfsárið 2017-2018 Hvað er Rótarý? frá umdæmisþingi sem haldið var í mosfellsbæ í október. www.mosfellinguR. is

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.