Mosfellingur - 22.02.2018, Blaðsíða 32

Mosfellingur - 22.02.2018, Blaðsíða 32
Pizza bær? Á meðan ég hugleiði um frumspeki með samhugsuði mínum Descartes og les mér til um manngerðir Þeófra- strosar, kem ég inn á pælingu. Sem ungur maður í Mosfellsbæ fetand i í þá stóru skó sem fyrirrennarar mínir sem unga kynslóðin var, þá velti ég því fyrir mér hvaða gömlu gildi bærinn byggir á, eitt er víst að Pizzabær er fyrir hruns undur og eitthvað sem mín kynslóð þekkir bara deili á á kvöldvök- um í grunnskóla. Vel flestar hasbeen goðsagnirnar eru núna að rúnta um á stationbílnum sínum með tvo barnastóla og sváfu seinast út í matarboði sem fór úr böndunum. Við hefur tekið ný kynslóð krakka sem nenna ekki að slá í gegn og þurfa ekki að vinna, því góðærið er orðið svo mikið að það tekur því ekki að skeina sér. Ég er á því skeiði mannlegs lífs sem liggur á milli fávisku frumbernsk- unnar og heimsku æskunnar og hef ótal tækifæri til að sofa út og gera nákvæmlega það sem mig langar, ég kýs frekar ósóma mannmergðarinnar en drepsótt einmanaleikans, og næturpössun er eitthvað sem ég þekki ekki og mánudagar eru ennþá Miller time. Svo ekki vera týpan sem setur út á stafsetningarvillu í sjálfsmorðsbréfi og reyna að halda því fram að það sé ekki kominn tími á nýtt gælunafn fyrir þetta sannsögulega undur sem Mos- fellsbær er. Það er meira lýsandi að kalla flaggskip íslenskra sveitarfélaga nytjahænsnisbæinn en pizzabæ eins og staðan er í dag, en þar sem þetta er ekki ljótunafnakeppni þá leggur undirritaður til tillögu sem allir geta fallist á og unað við. HALLDÓRSBÆR, í höfuðið á hinu merka skáldi Halldóri Laxness. Nafn höfundar er að sjálf- sögðu bara heppileg tilviljun í þessu samhengi. halldór snær Í eldhúsinu Berglind og Hafliði deila hér með okkur lúðu-cheviche en undirbúningur ætti að hefjast ca. 5 tímum fyrir mat og miðast uppskriftin við fjóra. • 500 gr lúða • 2 tsk hrísgrjónaedik • Nokkur lime • 1 stk rauðlaukur • Rauðvínsedik Skerið lúðuna í teninga ca 1 cm og setjið í skál. Kreistið lime yfir lúðuna þannig að það fljóti yfir. Bætið við 2 teskeiðum af hrísgrjónaedikinu. Látið marinerast í 5 klst. Fínsaxið rauðlaukinn og setjið í sér skál. Hellið rauðvínsedikinu þannig að fljóti yfir laukinn. Látið marinerast í 5 klst. Eftir 5 klst í marineringu, hellið vökvanum af bæði lúðunni og lauknum. Setjið saman í eina skál. Hellið svo eftirfarandi dressingu yfir og hrærið saman. Berið fram með t.d. ristuðu brauði, taco eða snittubrauð (eftir smekk). Frábært sem forréttur. Dressing • 2 stk lime • 2 matskeiðar hrísgrjónaedik • 8 matskeiðar ólífuolía • 2 matskeiðar af maukuðum hvítlauk • Rauður chili a.m.k. 1 fínsaxaður án fræja • Kóríander eftir smekk • Tabasco eftir smekk Meðan þið þeytið saman limesafanum og hrísgrjónaedikinu, bætið olíunni rólega út í. Blandið svo hvítlauknum, chiliinu,tabasco- sósunni og kóríander út í dressinguna. Dressingin er nú til og á að hella henni yfir maríneruðu lúðuna og laukinn. Berglind og Hafliði skora á Hjalta og Þorbjörgu að deila næstu uppskrift með Mosfellingum Lúðu-cheviche - Heyrst hefur...32 hjá Berglindi og hafl iða heyrst hefur... ...að Ice Boost and Burgers taki breytingum á næstunni og nafninu verði breytt í MOSÓ-GRILL. ...að Svanni Einars sé orðinn löggiltur fasteigna- og skipasali. ...að troðin hafi verið skíðagöngu- braut á fótboltasvæðinu á Tungu- bökkum. ...að búið sé að stofna samfélags- sjóð Kaupfélagsins sáluga og 50 milljónum verði úthlutað á næstu misserum. ...að söngkonan og Mosfellingurinn Hreindís Ylva bjóði sig fram í 4. sæti í forvali VG í Reykjavík um helgina. ...að búið sé að stofna kór í ungmenna- húsinu Mosanum sem er fyrir 16-25 ára. ...að Kalli í Bymos ætli að loka búðinni innan tíðar. ...að árshátíð hestamannafélagsins Harðar fari fram á laugardaginn. ...að Anna Sigríður muni áfram leiða Samfylkinguna í kosningunum í vor. ...að Mosfellingurinn Gyða Margrét hafi sungið í söngvakeppni sjónvarpsins um síðustu helgi. Lagið Brosa komst því miður ekki áfram. ...að Ingvar og Guðbjörg ætli að ganga í það heilaga í sumar. ...að búið sé að stofna facebook-hópa fyrir nánast öll hverfi í Mosfellsbæ. ...að hárgreiðslukonan Jónheiður sé hætt á Aristó. ...að Össur Skarphéðinsson sé að byggja sér hús í Helgafellshverfi. ...að íbúafundur um uppbyggingu á Vesturlandsvegi verði haldinn á Kjalarnesi í dag. ...að vetrarfrí sé í grunnskólum bæjarins í kringum helgina. ...að Reykjalundur hafi hlotið forvarnarviðurkenningu frá Vís á dögunum. ...að Greta Salóme standi í ströngu þessa dagana og sé að setja upp söngleikina Phantom of the Opera og Moulin Rouge. ...að Öddi Unnars sé orðinn meistari í málaraiðn. ...að Sigurbjartur og Sigrún eigi von á sínu fyrsta barni í júlí. ...að Stebbi Jak og Ingó úr Dimmu verði gestir Stormsveitarinnar á tónleikum í Hlégarði 3. mars. ...að Unnur sé að hætta á hárstofunni Sprey. ...að Stuðlabandið og Friðrik Dór séu meðal þeirra sem munu koma fram á árshátíð starfsmanna Mosfellsbæjar sem fram fer í íþróttahúsinu að Varmá 17. mars. ...að minnsta kosti þrjú ný stjórnmála- öfl í Mosó vinni nú að því að setja saman lista, Miðflokkurinn, Píratar og Viðreisn. ...að Auður Jóns hafi verið sýknuð af meiðyrðakæru Póra í Laxnesi. mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.