Mosfellingur - 16.03.2017, Blaðsíða 2
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Í þá gömlu góðu...
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 6. apríl
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn: (blaðamenn og ljósmyndarar)
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.000 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Þegar þessi orð eru skrifuð eru nákvæmlega tvö ár frá því hér
var allt á floti. Sunnudaginn 14.
mars 2015 vöknuðu Mosfellingar við
vondan draum þegar óveður
reið yfir. Mikið vatnstjón
og ófremdarástand á
vegum bæjarins.
Fyrir rúmum tveimur vikum, líka á sunnu-
degi, vöknuðu bæj-
arbúar álíka hissa.
Þá hafði snjóað
linnulaust alla
nóttina og
snjódýptin
mældist rúmur hálfur metri. Ekki
hafði áður mælst meiri jafnfallinn
snjór í febrúar frá upphafi mælinga.
Við tóku fallegir vetrardagar og veður var stillt. Íbúar hömuð-
ust við að moka bíla sína upp úr
fannferginu á meðan bæjarstarfs-
menn reyndu eftir fremsta megni að
ryðja götur og stíga. Nokkurs konar
götupartí mynduðust víða um bæ
þar sem nágrannar hjálpuðust að og
spjölluðu um veðrið. Eftirminnilegt
andrúmsloft á götum bæjarins sem
innihélt oftar en ekki skemmtilega
fjölskyldustund. Hvað er annars betra
en Íslendingar að spjalla um veðrið?
Talandi um veðrið
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
héðan og þaðan
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2
Í Varmárskóla skólaárið 1963-64
Í þessari fjölmennu bekkjardeild eru nemendur fæddir
1952. Þau hófu skólagöngu sína í Brúarlandsskóla en eru
síðan í hópi þeirra sem fluttu í Varmárskóla nýbyggðan
1962 og luku þar barnaprófi 12 ára gömul. Þá lá leiðin
aftur í Brúarland. Þar var hafið samstarf við Kjalarnes og
Kjósarhrepp um unglingaskóla. Á Skjalasafni Mosfells-
bæjar eru varðveittar dagbækur skólans og athygli vekur
að aðeins eitt barn býr við íbúðargötu.
Myndin er í eigu Guðlaugar Sigurðardóttur.
Fremst: Ríkarður Pétursson, Dallandi, Erling Petersen, Ásulundi,
Guðjón Grímsson, Úlfarsfelli, Laust Krüger Ottsen, Álafossi, Jón
Gunnar Benediktsson, Bjargastöðum, Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Korpúlfsstöðum, Guðjón Þorbjörnsson, Korpúlfsstöðum.
Miðröð: Áslaug Höskuldsdóttir, Dælustöð, Jóhanna Hermanns-
dóttir, Helgastöðum, Guðlaug Sigurðardóttir, Reykjadal, María
Titia Ásgeirsdóttir, Reykjum, Ásdís Frímannsdóttir, Blómstur-
völlum, Lára Hrafnsdóttir, Hlíðartúni 7, Helga Jörundsdóttir,
Litlalandi, Bryndís Einarsdóttir, Reykjadal, Guðrún Önfjörð
Magnúsdóttir, Selholti, Lóa Sigrún Leósdóttir, Leirvogstungu.
Aftast: Tómas Sturlaugsson kennari, Tröllagili, Þórður Hauksson,
Reykjalundi, Bjarni Ásgeir Jónsson, Árbakka, Ómar Önfjörð
Magnússon, Selholti, Thor Thors, Lágafelli, Ólafur Ágúst Lárusson,
Melgerði, Bjarki Bjarnason, Mosfelli, Þorkell Jóelsson, Reykja-
hlíð, Guðmundur Jónsson, Reykjum. Á myndina vantar Ástu
Guðbjörgu Rögnvaldsdóttur, Álafossi og Pál Magnússon, Hvarfi.