Mosfellingur - 16.03.2017, Blaðsíða 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
sunnudagurinn 19. mars
Guðþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11:00.
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir.
sunnudagurinn 26. mars
Fermingarguðsþjónustur
í Lágafellskirkju kl. 10:30 og 13:30.
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
og sr. Arndís Linn.
sunnudagaskólinn er í safnaðarheim-
ilinu Þverholti 3, 2. hæð
sunnudagurinn 2. apríl
Fermingarguðsþjónusta
í Lágafellskirkju kl. 10:30.
Fermingarguðsþjónusta í Mosfellskirkju
kl. 13:30. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
og sr. Arndís Linn.
sunnudagaskólinn er í safnaðar-
heimilinu Þverholti 3, 2. hæð
Allar upplýsingar um helgihald safnaðar-
ins er að finna á heimasíðu kirkjunnar.
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64
Hluti bæjarskrifstofu
flytur tímabundið
Bæjarskrifstofa Mosfellsbæjar hefur
verið staðsett í Kjarna, Þverholti 2,
frá árinu 1998. Starfsemi bæjarskrif-
stofu er á 2., 3. og 4. hæð. Raka-
vandamál og leki hefur komið í ljós
í húsnæðinu síðustu misserin, en
rakinn hefur einna helst haft áhrif á
heilnæm loftgæði fyrir starfsmenn
sem staðsettir eru á 3. hæð. Eftir
ítarlega úttekt og sýnatöku á vegum
Eflu hefur komið í ljós að ekki er
hægt að komast hjá því að fara
í viðgerðir og eru flutningar því
fyrirhugaðir. Ekki er útséð með að
sambærileg vandkvæði geti verið
á öðrum hæðum en áformuð er
frekari sýnataka. Flutningarnir
munu eiga sér stað fimmtudaginn
16. mars og eru tímabundnir, en
ráðgert er að lagfæringar taki um
þrjá mánuði. Fjölskyldusviðið mun
flytja tímabundið í rými í Bókasafni
Mosfellsbæjar. Það rými hefur
hingað til verið notað af skólafólki
til lestrar og lærdóms. Mun það
þýða rask fyrir þá nemendur sem
nýtt hafa sér þessa aðstöðu en því
verður búið þannig í haginn að
skólafólk eigi eftir sem áður aðgengi
að svæði til að læra í safninu.
Fræðslu- og frístundasvið mun
færast í rými á 1. hæð þar sem
Íslandsbanki var áður til húsa.
„Það er von okkar að bæjarbúar
sýni þessum tilfærslum skilning, en
skiljanlega er okkur mikið kappsmál
að vinna að því að búa starfsmönn-
um okkar heilsusamlegt vinnuum-
hverfi,“ segir Hanna Guðlaugsdóttir
mannauðsstjóri Mosfellsbæjar.
Fræðslufundir um peninga
fyrir ungt fólk ��–�� ára
Jón Jónsson, tónlistarmaður og hagfræðingur, heldur
fræðslufundi um fjármál víða um land.
Miðvikudaginn ��. mars verður hann í Framhalds-
skólanum í Mosfellsbæ kl. ��.��.
Við hvetjum unglinga og aðstandendur þeirra til
að grípa tækifærið og verða flinkari í fjármálum.
Nánari upplýsingar á arionbanki.is/jonjonsson
Allir velkomnir
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
7
-2
6
8
3
��. mars
– Egilsstaðir
��. mars
– Mosfellsbær
��. apríl
– Borgarnes
��. mars
– Borgartún �. apríl
– Selfoss
�. apríl
– Hafnarfjörður
Eins og fram hefur komið í Mosfellingi þá
mun ásýnd miðbæjarins breytast mikið á
næstu misserum.
Á síðastliðnu ári voru auglýstar til úthlut-
unar lóðir við Bjarkarholt og Háholt milli
Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og Krónu-
hússins. Í framhaldinu ákvað bæjarráð að
ganga til samninga við Upphaf fasteignafé-
lag um uppbyggingu á þessum reit.
Í deiliskipulagstillögu sem skipulags-
nefnd hefur samþykkt til kynningar er gert
ráð fyrir að byggja eigi bæði íbúðarhúsnæði
og verslunarhúsnæði. Húsið sem stendur
við Háholt 23 (gamla Mosraf-húsið) mun
víkja og munu rísa íbúðir á þeirri lóð, sem
og lóðinni næst framhaldsskólanum.
Á lóð nr. 21 við Háholt, næst Krónu-
planinu, verður um 1.800 fm verslunar- og
þjónustuhúsnæði með íbúðum á efri hæð.
Á reitnum öllum er gert ráð fyrir um 145
íbúðum með um 105 bílastæðum neðan-
jarðar.
Býður upp á aukna verslun og þjónustu
Umræða hefur verið um það að undan-
förnu að fjölga þurfi íbúðum í miðbænum
til að möguleiki væri á að auka við verslun
Mikil uppbygging fram undan á milli Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og Krónuhússins
145 nýjar íbúðir og aukið verslunar-
og þjónusturými í miðbænum
Allt frá upphafi starfsemi hjúkrunarheimilisins Hamra á
síðari hluta árs 2013 hefur fjárhagslegur rekstur heimilisins
verið mjög erfiður. Lögbundin daggjöld frá ríki hafa ekki
staðið undir kostnaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Mosfellsbæ.
Samkvæmt lögum um málefni aldraðra ber ríkisvaldinu
að standa undir kostnaði af starfsemi hjúkrunarheimila,
en í flestum tilvikum hefur sjálfur reksturinn verið falinn
sveitarfélögum eða sjálfseignarstofnunum.
Bæjaryfirvöld Mosfellsbæjar og stjórnendur Eirar
– hjúkrunarheimilis, sem bærinn samdi við um rekstur
Hamra, hafa frá upphafi lagst saman á árar við að leita eftir
úrræðum af hálfu ráðuneyta heilbrigðis og fjármála til að
vega upp hallann af rekstrinum. Jafnframt hefur Eir unnið
stöðugt að því að ná ítrustu hagkvæmni í rekstri Hamra, án
þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar.
Fjöldi funda hefur verið haldinn með fyrrum heilbrigð-
isráðherra, svo og þeim ráðherra sem nýlega tók við og
embættismönnum ráðuneytisins, þar sem borin hafa
verið fram erindi um aukin fjárframlög eða aðra lausn á
fjárhagsvanda heimilisins. Þær málaleitanir hafa hins vegar
ekki borið þann árangur að við megi una og þykir fullreynt
að sinni að fara þá leið.
Því samþykkti bæjarráð Mosfellsbæjar að segja upp
samningi bæjarins og velferðarráðuneytisins um rekstur
Hamra. Uppsagnarfrestur er 12 mánuðir. Samhliða sagði
Eir upp samningi sínum við Mosfellsbæ um reksturinn
með sama fresti.
Í samþykktinni lýsir bæjarráð vonbrigðum sínum með þá
stöðu sem málið er komið í, en ítrekar jafnframt að Mos-
fellsbær sé reiðubúinn til viðræðna við ríkið um framtíð
hjúkrunarheimilisins hér eftir sem hingað til.
Mosfellsbær segir upp samningi við ríkið um rekstur hjúkrunarheimilisins Hamra
Daggjöld duga ekki fyrir rekstri
Hjúkrunarheimilið Hamrar var tekið í notkun árið 2013.
og þjónustu þar. Þar að auki myndi svo-
kölluð Borgarlína, hágæðakerfi almenn-
ingssamgangna, tengjast miðbænum.
Skipulagsnefnd bæjarins samþykkti m.a.
ályktun þess efnis samhljóða nýverið.
Miðað við þær hugmyndir sem nú eru
uppi varðandi uppbyggingu bæði á um-
ræddum lóðum við Háholt og eins á kaup-
félagsreitnum hillir undir breytingar þar á.
Ásýnd og skipulag skiptir máli
„Mosfellsbær er ört stækkandi bæjarfé-
lag og það er mikilvægt að nýta skipulagið
til að hvetja til aukinnar þjónustu við íbúa
og atvinnusköpunar,“ segir Haraldur Sverr-
isson bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
„Deiliskipulagstillaga fer nú í auglýsingu
og hvet ég íbúa til að kynna sér hana vel.
Ásýnd og skipulag miðbæjarins skiptir máli
fyrir samfélagið okkar hér í Mosfellsbæ. Horft í átt að Krónunni. Við hliðina er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði með íbúðum á efri hæð.
Tölvugerð mynd sem sýnir nýjar íbúðir við framhaldsskólann. Horft er í átt að Lágafelli og Úlfarsfelli.