Mosfellingur - 18.05.2017, Side 10
Farsælt samstarf á milli Mosfellbæjar og
skátafélagsins Mosverja, um að auðvelda
Mosfellingum að nýta sér útivistasvæði í
kringum bæinn til útivistar og gönguferða,
hefur staðið yfir í nokkurn tíma.
„Þetta byrjaði á árunum 2004-2005 en þá
fengu skátarnir fyrirspurn frá Íþrótta- og
tómstundanefnd þar sem óskað var eftir
hugmyndum að útivistaverkefnum,“ segir
Ævar Aðalsteinsson sem hefur haft yfirum-
sjón með þessu verkefni frá byrjun.
„Stikaðar gönguleiðir um fellin og dalina
í kringum Mosfellsbæ var ein af þeim hug-
myndum. Það var svo árið 2008 sem undir-
ritaður var samstarfssamningur milli þess-
ara aðila en þá lá fyrir bæði verkefnaáætlun
og kostnaðaráætlun fyrir þetta verkefni.“
Góð verkáætlun í byrjun
„Landsvæðið var skipulagt þannig í byrj-
un að við hefðum yfirsýn yfir svæðið. Fyrsta
sumarið fór í skipulagningu og meðal fyrstu
verkefna var að ræða við landeigendur og
fá heimild til að fara yfir þeirra eignalönd.
Hannað var göngukort fyrir heildarsvæðið,
hönnuð voru skilti, vegprestar, girðinga-
stigar og göngubrýr. Sótt var um leyfi fyrir
bílastæðum og fleiru sem fylgdi verkefn-
inu. En sumarið 2009 voru fyrstu 10 km
stikaðir,“ segir Ævar og vill meina að ein
af ástæðunum fyrir að fólki finnst gott að
búa í Mosfellsbæ sé nálægðin við ósnerta
náttúru.
Stikaðar gönguleiðir 90 km
„Þetta verkefni hefur gengið mjög vel og
ég held að allir séu sammála um að það er
aukin umferð göngufólks á svæðinu. Stað-
an er þannig í dag að búið er að stika um
90 km af gönguleiðum, útbúa um 10 bíla-
stæði, fjöldinn allur er af girðingastigum og
göngubrúm.“
„Á svæðinu eru um 30 vegprestar og 30
upplýsinga- og fræðsluskilti. Á þessum
skiltum eru staðarheiti, vegalengdir og
ýmsar fróðlegar upplýsingar, bæði land-
fræðilegar og sögulegar. Gönguleiðirnar
eru fjölbreyttar og því ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi. Við skipulögðum
göngurnar með það í huga að teyma göngu-
fólkið á fallega staði á svæðinu.“
Úlfarsfellið fjölfarnasta útivistarsvæðið
„Verkáætluninni, eins og hún var gerð
í upphafi, fer að ljúka og nú tekur við
viðhaldsstig. Svo er það spurningin hvert
viljum við fara með þetta verkefni og það
eru þegar komnar nokkrar hugmyndir að
næstu skrefum.“
„Nú í sumar ætlum við að leggja stíg á
gönguleiðina frá Skarhólabraut upp á Úlf-
arsfellið, sem er að verða eitt fjölsóttasta
útivistarsvæðið á höfuðborgarsvæðinu.
Reykjvíkingar eru að hugsa um að gera
svipað sín megin og skógræktin í Hamra-
hlíðarskógi ætlar að gera stíg frá sínu svæði.
Þetta er jákvæð þróun og við höfum fengið
mikinn meðbyr frá almenningi,“ segir Ævar
að lokum og tekur fram að umgengnin á
gönguleiðunum sé alveg til fyrirmyndar og
hvetur Mosfellinga til að nýta sér göngu-
leiðirnar í kringum bæinn okkar.
- Fréttir úr Mosfellsbæ10
Við bjóðum upp á vikunámskeið frá mán. til fös. frá kl. 9-12 eða kl.13-16. Verð: 16.000 kr.
Stubbanámskeið verður fyrir 4-6 ára vikuna 17.-21. júlí frá kl. 9-12. Verð: 18.000 kr.
Skráningar sendist á netfangið hestamennt@hestamennt.is
Það sem þarf að koma fram í skráningu er: Hvaða vika og hvort það sé fyrir eða eftir hádegi.
Nafn barns, aldur, nafn foreldris/forráðamanns og símanúmer.
Nánari upplýsingar í síma: 899-6972 (Berglind) eða á www.hestamennt.is
ReiðSkóli HeStameNNtaR
Reiðskóli Hestamenntar er staðsettur í hesthúsahverfinu við
Varmárbakka í mosfellsbæ. Námskeiðin eru fyrir börn og
unglinga frá 6-14 ára og hefjast þau 12. júní og standa til 18. ágúst.
Um 90 kílómetrar af stikuðum gönguleiðum í Mosfellsbæ • Samstarf skátafélagsins Mosverja og Mosfellsbæjar
Fjölbreyttar gönguleiðir við allra hæfi
Hægt er að nálgast göngukort í þjón-
ustuveri Mosfellsbæjar, sundlaugum
bæjarins, í bókasafninu, í Álafossbúðinni
og á heimasíðu Mosfellsbæjar mos.is.
Staðan á verkefninu í dag
• 90 km stikaðir
• 10 bílastæði
• 12 girðingastigar
• 5 göngubrýr
• 3 plankabrýr
• 12 upplýsingaskilti
• 18 fræðsluskilti
• 30 vegprestar
Ævar aðalsteinsson
í hlíðum helgafells
www.artpro.is
artpro@artpro.is
Sími: 520 3200
Bíldshöfði 14, 110 Reykjavík
VELKOMIN TIL OKKAR Í GLÆSILEGT HÚSNÆÐI AÐ BÍLDSHÖFÐA 14, REYKJAVÍK
(VIÐ HLIÐINA Á AMERICAN STYLE, ÞREMUR HÚSUM NEÐAN VIÐ HÚSGAGNAHÖLLINA)
- VIÐ FLUTTUM EKKI TIL TUNGLSINS
OG VEITUM MOSFELLINGUM SEM FYRR FYRSTA FLOKKS ÞJÓNUSTU.
- VIÐ SÖKNUM MOSFELLSBÆJAR
ÞAÐ ER ÓNEITANLEGA SKRÝTIÐ AÐ FLYTJA ÚR MOSFELLSBÆNUM EFTIR GÓÐ
UPPVAXTARÁR. VIÐ ERUM ENNÞÁ SAMA GAMLA GÓÐA MOSFELLSBÆJAR-
FYRIRTÆKIÐ, Í STERKARI STÖÐU OG VIÐ BETRI AÐSTÆÐUR.
VIÐ ERUM FLUTT Á
BÍLDSHÖFÐA14
Sumarið í Bæjarleikhúsinu
verður líflegt að vanda en
boðið verður upp á leik-
listarnámskeið fyrir börn
og unglinga, 6-8 ára, 9-12
ára og 13-16 ára. Leikgleði
námskeiðin eru á vegum
Leikfélags Mosfellssveitar
og hafa verið starfrækt
síðan 1996.
Á námskeiðunum
vinna nemendur með
framkomu, framsögn og
sjálfstraust og kynnast
hinum ýmsu hliðum leik-
hússins. Öll námskeiðin enda með sýningu í Bæjarleikhúsinu og verður stór söngleikur
settur upp með elsta hópnum, sem sýndur verður í ágúst.
Kennarar námskeiðanna í sumar verða Elísabet Skagfjörð, Eva Björg Harðardóttir, Íris
Hólm og Sigrún Harðardóttir. Allar nánari upplýsingar um námskeiðin má finna á www.
leikgledi.is
Leikgleði - lifandi listanámskeið
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar
hélt nýlega opinn fund í Fram-
haldsskóla Mosfellsbæjar um
sjálfbært samfélag og umhverfis-
mál í Mosfellsbæ.
Mosfellsbær hefur undanfarin
ár tekið virkan þátt í Staðardag-
skrá 21, sem er framkvæmdaá-
ætlun um sjálfbæra þróun sveit-
arfélaga, en það verkefni hefur
nú verið lagt niður á heimsvísu
og ný heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hafa tekið við. Mosfellsbær hefur því verið
með til skoðunar hvernig best sé að vinna áfram að markmiðum um sjálfbært samfélag í
Mosfellsbæ og halda þeim mikilvægu áherslum á lofti. Tilgangur opna fundarins var að
skapa lifandi umræðuvettvang um umhverfismál og sjálfbærni í Mosfellsbæ og að gefa
íbúum kost á að koma sínum skoðunum á framfæri.
Á fundinum, sem var vel heppnaður, hélt Lúðvík Gústafsson frá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga erindi um ný heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun
og Andri Snær Magnason rithöfundur hélt erindi um umhverfismál í fortíð, nútíð og
framtíð.
Opinn fundur umhverfisnefndar
námskeiðin enda
með söngleik
andri snÆr
talar í fmos