Mosfellingur - 09.01.2014, Qupperneq 6

Mosfellingur - 09.01.2014, Qupperneq 6
Eldri borgarar Þjónustumiðstöðin Eirhömrum Dagskráin framunDan Þjónustumiðstöðin á Eirhömrum óskar Mosfellingum gleðilegs nýs árs og þakkar hið liðna. Fjölbreytt dagskrá er að fara af stað og ætti engum að leiðast í vetur. Sitthvað nýtt verður á boðstólnum svo sem leðursaumur og ýmsir áhugaverðir fyrirlestrar. Skráning á öll námskeið fer fram í síma 586-8014 eða 698-0090 eða í þjónustumiðstöð að Eirhömrum. Lágmarksþátttaka 10 manns er á öll námskeiðin. Námskeiðin falla niður ef lágmarksþátttaka næst ekki. Bókband byrjar 14. jan. kl. 13:00. Tréútskurður byrjar 15. jan. kl. 12:30 málun byrjar 20. jan. kl. 13:30. Leikfimi byrjar 16. jan. kl. 10:45 og 11:15 Línudans byrjar 20. jan. kl. 16:00. Postulín byrjar 1. mars. Leðurvinna áætluð að byrja í febrúar. gaman saman byrjar 16. jan. og þá koma börn úr Krikaskóla í heimsókn. Þann 30. jan koma börn frá Hlaðhömrum. kÍkT fYrir HOrniÐ. Fyrsta ferð farin í Hafnarborg listasal í Hafnarfirði 23. janúar. félagsvist byrjar 24. janúar. Muna að skrá sig. Ókeypis tölvunámskeið fyrir eldri borgara í mosfellsbæ Minnum á frábært tækifæri til að læra betur á tölvur, kennt er í Varmárskóla, tímasetning auglýst nánar síðar. EYrBYggja-ÍsLEnDinga- sögur – námskEiÐ, Byrjar þriðjudaginn 14. janúar 2014 og nú verður lesin Eyrbyggja. Námskeiðið verður haldið í þjónustumiðstöðinni að Eirhömrum og stendur yfir frá klukkan 17:00 til 19:00 fimm þriðjudaga í röð. Formleg námskeiðslok verða svo um mánaðarmótin maí/júní þegar farin verður dagsferð á söguslóðir. Leiðbeinandi á námskeiðinu og leiðsögu- maður í ferðinni á söguslóðir verður sem fyrr Bjarki Bjarnason. Þátttaka tilkynnist á netfanginu gretar@heima.is, eða í síma 897 6536. Lágmarks þátttaka er 20 þátttakendur. Miðað við lágmarksþátttöku verður námskeiðsgjald kr. 7.500,- en lækkar í kr. 6.000,- ef þátttakendur verða 25 eða fleiri. HöfÐingLEg gjöf gEfin Basarsala á vegum vildarvina félagsstarfs- ins sem haldin var í nóvember s.l. tókst að venju mjög vel og var basarinn afar glæsilegur. Söfnuðust um 450 þúsund krónur sem afhendir voru við hátíðlega stund á Eirhömrum 18. desember s.l. Fyrir hönd vildarvina basarsins athenti Margrét Þorsteinsdóttir peningana í formi gjafabréfa til séra Ragnheiðar og Unnar Ingólfsdóttur hjá Mosfellsbæ. Sem fyrr rennur féð óskipt til þeirra sem minna mega sín hér í okkar góða bæ. Félagsstarf- ið og vildarvinir basarsins þakka innilega öllum þeim sem komu og styrktu þetta frábæra framtak. Hlökkum til að sjá sem flesta á næsta basar. frá ÍÞrÓTTanEfnD Boccia hefst í íþróttahúsinu að Varmá miðvikudaginn 8. janúar kl. 10:30. Þátt- tökugjald, kr. 2.000, greiðist í fyrsta tíma. ringó verður áfram í íþróttahúsinu að Varmá á föstudögum og hefst föstudaginn 10. janúar kl. 10:00. Vatnsleikfimin hefst í Lágafellslaug 14. janúar, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 11:20. Þátttökugjald tvisv- ar í viku er kr. 5000 og fyrir einu sinni í viku kr. 2500. Það óskast greitt með reiðu- fé í fyrsta tíma í anddyri sundlaugarinnar. Qigong kínversk leikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum í Eldingu Varmá kl. 09:00 og hefst 7. janúar. Mánaðargjald fyrir þátttöku tvisvar í viku er kr. 5000 og fyrir einu sinni í viku kr. 3000. Púttið byrjar 14. janúar kl. 13:00 í íþróttahúsinu Varmá í umsjón Karls Loftssonar eins og áður. skrifstofa þjónustumiðstöðvarinnar Eirhömrum er opin alla virka daga milli kl 13:00-16:00. allar upplýsingar og skráningar eru hjá forstöðumanni þjónustumiðstöðvarinnar í síma 586-8014 eða 698-0090. skrifstofa famos er opin á mánudögum milli kl. 14.00-15.00. - Fréttir úr bæjarlífinu6 Breytingar á akstri Strætó um Háholt Ný vetraráætlun Strætó bs. tók gildi 5. janúar. Stærstu breytingarnar eru þær að leið 6 hættir akstri í Grafar- holtið um kvöld og helgar og mun aka allan daginn frá Staðahverfinu að Háholti og til baka. Leiðin mun aka um norðanverðan Grafarvog í báðar áttir og mun því ekki lengur aka eftir Víkurvegi að Spöng. Í stað þess koma tvær nýjar biðstöðvar á Korpúlfsstaðaveg við Víkurveg. Leið 18 hættir að aka í Háholt og mun þess í stað aka eftir Borgavegi að Spöng. Nánar á www.straeto.is. Mosfellsbær tryggir hjá TM næstu árin Á dögunum var undirritaður samningur um vátryggingar milli Mosfellsbæjar og TM þar sem aðilar samþykkja að TM mun næstu þrjú árin annast allar vátryggingar Mosfellsbæjar. Bæjarráð samþykkti í nóvember að bjóða út vátryggingar bæjarins og er samningurinn gerður í kjölfar þess útboðs þar sem TM var lægstbjóðandi. „Ég er mjög ánægður með að vátryggingamál Mosfellsbæjar hafi farið í útboðsferli sem hefur leitt til þessa hagstæða samnings. Við erum alltaf að leitast við að auka hagkvæmni í rekstri bæjarins og þetta er hluti af því,“ segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri. Bæjarblaðið Mosfellingur hefur staðið fyrir vali á Mosfellingi ársins síðastliðin ár. Nafnbótina hafa hlotið: 2005 Sigsteinn Pálsson 2006 Hjalti Úrsus Árnason 2007 Jóhann Ingi Guðbergsson 2008 Albert Rútsson 2009 Embla Ágústsdóttir 2010 Steinþór Hróar Steinþórsson 2011 Hanna Símonardóttir 2012 Greta Salóme Stefánsdóttir 2013 Hljómsveitin Kaleo Verðlaunagripurinn er eftir Þóru Sigurþórsdóttur moSfEllInGuR ÁRSInS Hljómsveitin Kaleo er Mosfellingur ársins • Árið 2013 var ævintýri líkast hjá strákunum „Þessi viðurkenning setur punktinn yfir i-ið á árinu“ Hljómsveitin Kaleo úr Mosfellsbæ skaust upp á stjörnuhimin á árinu 2013. Hljóm- sveitina skipa þeir Jökull Júlíusson, Davíð Antonsson, Daníel Ægir Kristjánsson og Rubin Pollock. Síðasta vor gáfu strákarnir út endurgerða útgáfu af gamla laginu Vor í Vaglaskógi. Útgáfan sló algjörlega í gegn og var lagið eitt það mest spilaða á útvarpsstöðvunum í sumar. Lagið kom þeim á kortið og þeir hafa verið óstöðvandi síðan. „Við erum gríðarlega stoltir að hljóta þessa nafnbót, Mosfellingur ársins, og má segja að þetta setji punktinn yfir i-ið á árinu 2013 sem hefur verið ævintýri líkast. Velgengnin á árinu kom skemmtilega á óvart og hlutirnir gerðust fáránlega hratt. Við stefnum ótrauðir áfram og eigum nóg af nýju efni,” segja þeir. „Við höfum fundið fyrir miklum meðbyr frá okkar heimafólki í Mosó og þökkum kærlega fyrir stuðning- inn. Völvuspáin spáði fyrir um nýja plötu á árinu 2014 og væri ekki leiðinlegt ef það myndi rætast.” Hljómsveitin Kaleo tók þátt í Músíktil- raunum, spilaði á risatónleikum Rásar 2 á menningarnótt, kom fram á Airwaves, fékk mikla útvarpsspilun og voru strák- arnir ávallt kynntir sem Mosfellingar. Þeir gáfu út sína fyrstu plötu sem varð sú næst mest selda á Íslandi fyrir jólin. Þá er Jökull söngvari tilnefndur til íslensku tón- listarverðlaunanna sem söngvari ársins. Mosfellingur óskar þessum flottu tónlistar- mönnum til hamingju með nafnbótina og hlakkar til að fylgjast með þeim áfram. strákarnir úr kaleo taka við viðurkenningunni úr höndum hilmars ritstjóra mosfellings M yn d/ Ra gg iÓ la sjá stundaskrá á bls. 22

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.