Mosfellingur - 09.01.2014, Blaðsíða 8

Mosfellingur - 09.01.2014, Blaðsíða 8
 - Útskriftarhátíð Framhaldsskólans í Mosfellsbæ8 LISTRÆN FAGMENNSKA ARTPRO WWW.ARTPRO.IS PRENTÞJÓNUSTA ARTPRO Prentþjónusta / Jóla.is I Háholti 14 I 270 Mosfellsbæ I Sími 566 7765 I artpro@artpro.is I www.jola.is I www.artpro.is VANTAR ÞIG VINNU ? ARTPRO PRENTÞJÓNUSTA ÓSKAR EFTIR LAGHENTUM STARFSMANNI Í HLUTASTARF EÐA FULLT STARF STARFSLÝSING: • Samskipti og þjónusta við viðskiptavini fyrirtækisins. • Hönnun og vinna við uppsetningu prentskjala. • Prentun, frágangur og önnur störf tengd þjónustu okkar og framleiðslu. • Fullt starf eða hlutastarf. Einnig kemur tímabundin verktakavinna til greina. HÆFNISKRÖFUR: • Laghent og sveigjanleg manneskja, 30 ára eða eldri. • Góð kunnátta og reynsla af hönnun og uppsetningu prentskjala. • Góð PC tölvukunnátta og notkun InDesign, Photoshop, Illustrator og annarra Adobe forrita er algjört skilyrði. • Starfsreynsla úr prentun, hönnun eða skyldu tæknifagi er líka nauðsynleg. • Reynsla af stafrænni prentun er kostur. • Kunnátta og reynsla í notkun DK sölukerfis er kostur. ARTPRO Prentþjónusta er prenþjónustufyrirtæki með fyrsta flokks tækjabúnað sem sinnir stafrænni prentun og stórmydaprentun fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Einnig rekum við vefverslunina Jóla.is sem selur og framleiðir persónuleg jólakort og aðrar vörur til einstaklinga. Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 3-4 manns, auk fleiri við tímabundin verkefni. Aðeins er tekið við umsóknum og fyrirspurnum í tölvupósti á netfangið gudni@artpro.is EKKI ERU VEITTAR UPPLÝSINGAR Í SÍMA Útskriftarhátíð Framhaldsskólans í Mosfellsbæ fór fram föstudaginn 20. desember 2013 við hátíðlega athöfn í nýju húsnæði skólans við Háholt 35. Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ var stofnaður haustið 2009 og hefur verið starfræktur að Brúarlandi frá upphafi. Nú um áramótin flyst hinsvegar starfsemin í nýtt og glæsilegt húsnæði við Háholt og hófst þar kennsla í gær, 8. janúar. Sex námsbrautir eru við skólann og er fjöldi nemenda við skólann um tvö hundruð og fimmtíu. Brautskráðir voru tuttugu og fimm stúdentar af félags- og hugvísindabraut og fjórir af náttúruvísindabraut. Útskriftarnemendum voru veittar eftirtaldar viður- kenningar fyrir góðan námsárangur. Rannveig Dögg Haraldsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í sálfræði og einnig fyrir góðan árangur í textíl og hönnun. Viðurkenningu fyrir góðan árangur í líffræði fékk Stefán Birnir Stefánsson. Fyrir góðan árangur í sögu, íslensku, spænsku, dönsku, heimspeki og stærðfræði fékk Alfreð Andri Alfreðsson viðurkenningu. Mosfellsbær veitti jafn- framt Alfreð Andra Alfreðssyni viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi. Efri röð frá vinstri: Alda Guðlaug Atladóttir, Sunna Ösp Þórsdóttir, Guðmundur Bjarkason, Hanna Karen Hafþórsdóttir, Halldóra Eik Reynisdóttir, Arna Kara Agnarsdóttir Engley, Sóldís Björg Óskarsdóttir, Ólöf Anna Guðmundsdóttir, Anna Kristjana Hjaltested, Aron Bjarki Björnsson, Andri Eydal, Andri Már Ingason, Daníel Örn Heimisson, Stefán Birnir Stefánsson, Anna Hjaltalín Agnarsdóttir, Hafþór Daði Halldórsson, Alfreð Andri Alfreðsson, Guðbjörg Aðalbergsdóttir skólameistari. Neðri röð frá vinstri: Thelma Rós Sigurðardóttir, Sandra María Bergþórsdóttir, Karen Ósk Sigurðardóttir, Hafdís Ása Óskarsdóttir, Erna Elísabet Óskarsdóttir, Telma Ýr Birgisdóttir, Anna Kristín Árnadóttir, Andrea Ösp Andradóttir, Rannveig Dögg Haraldsdóttir, Herdís Birna Heiðarsdóttir, Guðrún Birna Kristmundsdóttir, Erla Svansdóttir. Útskriftarhátíð í nýju húsnæði Framhaldsskólans í Mosfellsbæ • Kennsla í Háholti hófst í gær, 8. janúar 2014 29 nemendur brautskráðir frá FMOS Fundað um lýðræði og sveitarstjórnir Samfylkingin í Mosfellsbæ boðar til fundar með Degi B. Eggertssyni laugardaginn 18. janúar kl. 11. Dagur mun ræða samstarf flokka í borgarstjórn Reykjavíkur og þær lýðræðis- umbætur sem innleiddar hafa verið. Á fundin- um verður einnig rætt um stjórnar- hætti í Mosfells- bæ, stöðu minnihlutans í nefndum og ráðum bæjarins og línur lagðar varðandi framhaldið. Á fundinum verður auk þess kosið um aðferð við val á framboðslista og fulltrúar kosnir í valnefnd sem hefur með höndum að ganga frá framboðslista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Bláa tunnan tæmd oftar á árinu 2014 Nýtt sorphirðudagatal fyrir árið 2014 hefur verið birt á heimasíðu Mosfellsbæjar. Það felur í sér aukna þjónustu vegna bláu tunnunnar en hún verður nú tæmd á þriggja vikna fresti í stað fjögurra áður. Almennt sorp er hirt á 10-11 daga fresti. Minnum á að flugeldarusl má ekki fara í bláu tunnurnar, það þarf að fara í almennt sorp. Nánar á mos.is.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.