Mosfellingur - 09.01.2014, Síða 25

Mosfellingur - 09.01.2014, Síða 25
Villt þú vera með í ævintýrinu? Drekaskátar eru 8-9 ára ævintýraþyrstir krakkar sem eru forvitin og hafa gaman af því að reyna eitthvað nýtt með góðum vinum. Á vorönn ætlum við í drekaskátunum m.a. að læra að umgangast náttúruna og reyna fyrir okkur í útieldun. Við ætlum að búa til drekaríki þar sem við saman búum til ævintýraheim með landslag, lög, þjóðarrétti og fleira. Við ætlum einnig að skella okkur á Drekaskátamót á Úlfljótsvatni í júní. Frekari upplýsingar og skráning: dagga@mosverjar.is og aevar@mosverjar.is s. 696-5531 Skátafélagið Mosverjar Skátastarf undirbýr einstaklinginn fyrir lífið sjálft! Að vera skáti er að upplifa ævintýr með vinum. Í skátunum er enginn varamannabekkur og allir fá að vera með. Vináttan er mikilvæg í öllu skátastarfi. Skátastarf – hollara en hafragrautur. Komdu með í leit að ævintýrinu. 3. bekkur Þriðjudaga frá 16-17 4. bekkur Þriðjudaga frá 17-18 Auglýst eftir frAmboðum til prófkjörs fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í mosfellsbæ auglýsir eftir framboðum til prófkjörs vegna bæjarstjórnarkosninganna 2014. prófkjörið mun fara fram laugardaginn 8. febrúar 2014. Væntanlegir frambjóðendur skulu skila framboðum sínum til kjörnefndar í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins að Háholti 23, milli klukkan 19.00 og 20.00 fimmtudaginn 16. janúar n.k. Framboð skal vera bundið við flokksbundinn einstakling, enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóð- endur skulu vera búsettir í Mosfellsbæ og vera kjörgengir í næstkomandi bæjarstjórnarkosningum. 20 flokksbundnir sjálfstæðismenn, búsettir í Mosfellsbæ, skulu standa skriflega að hverju framboði. Enginn flokksmaður getur skrifað sem meðmælandi hjá fleiri en 7 frambjóðendum. Eyðublað fyrir framboð verður hægt að nálagst á heimasíðunni mos.xd.is Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar öðrum frambjóðendum eftir að framboðsfresti lýkur. Um framkvæmd prófkjörsins vísast til prófkjörsreglna Sjálfstæðisflokksins. Með framboði skal skila mynd af frambjóðanda á tölvutæku formi og stuttu æviágripi, sjá rafrænt eyðublað á heimasíðunni mos.xd.is. fiJÓ‹VAKI Kjörnefnd leggur ríka áherslu á að væntanlegir frambjóðendur gæti hófs í kostnaði við prófkjör mosfellsbæ, 02.12. 2013. f.h. kjörnefndar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Mosfellsbæ, Kolbrún Reinholdsdóttir, formaður, gsm. 665-6149 Matráður í Krikaskóla VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja Krikaskóli er leik- og grunnskóli fyrir börn á aldrinum 1-9 ára og starfsemin tekur mið af skólastefnu Mosfellsbæjar um heild- stætt uppeldis- og skólastarf í leik- og grunnskólum. Skólaárið 2013-2014 verða börn á aldrinum 2ja-9 ára í skólanum. Um- sækjendur eru hvattir til að kynna sér skólastefnu skólans á heimasíðu hans áður en þeir sækja um starf. Krikaskóli er þró- unarskóli með heimild Mennta- og menningarmálaráðuneytis. Skilyrði fyrir ráðningu í Krikaskóla er að viðkomandi hafi ánægju af börnum í öllum sínum fjölbreytileika, hafi ríka samskipta- hæfni í hröðu og lifandi umhverfi skólastarfsins og eigi auðvelt með að taka ábyrgð á sjálfum sér. Eftirfarandi starf er laust til umsóknar: Matráður í mötuneyti skólans. Um 100% stöðu er að ræða sem unnin er frá kl. 8:00-16:00. Matráður Krikaskóla er sjálfstæður í sínu starfi en tekur mið af stefnu skólans og Mosfellsbæjar um fæði barnanna. Hann sér um gerð matseðla, innkaup til skólans og stýrir starfi samstarfsfólks í mötuneyti og matsal. Viðkomandi þarf að hefja störf ekki síðar en 1. mars 2014. Hæfnikröfur: • Matreiðslumenntun og/eða reynsla af sambærilegu starfi • Þekking á gerð matseðla og samsetningu fæðis fyrir börn frá 18 mánaða aldri til 9 ára samkvæmt viðmiðum Manneldisráðs • Frumkvæðni og skipulagshæfni við innkaup og vörustjórnun • Góð hæfni í mannlegum samskiptum • Jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og STAMOS. Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar 2014. Áhugasömum er bent á að kynna sér heimasíðu skólans www.krikaskoli.is. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið krikaskoli[hjá]krikaskoli.is. Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri Krikaskóla, Þrúður Hjelm thrudur@krikaskoli.is eða Ágústa Óladóttir sviðstjóri Krikaskóla agusta@krikaskoli.is í síma 578-3400. www.mosfellingur.is - 25

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.