Mosfellingur - 09.01.2014, Blaðsíða 18
Jökull er ungur og efnilegur tónlistar-maður sem vekur athygli hvar sem hann kemur fram. Þolinmæði og
þrautseigja er lykillinn að velgengni hans
og hann stefnir hátt á íslenskum tónlist-
armarkaði.
Jökull var á dögunum tilnefndur til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna 2013 sem
besti söngvari ársins en úrslitin verða
kunngjörð á verðlaunahátíð sem fer fram
í Eldborgarsal Hörpu 14. mars næstkom-
andi.
Jökull Júlíusson fæddist í Reykjavík
20. mars 1990. Hann bjó í Mosfellsbæ frá
tveggja til sex ára aldurs en þá flutti hann
ásamt móður sinni og stjúpföður til Hafn-
ar í Hornafirði þar sem hann bjó til tólf ára
aldurs. Þar stundaði Jökull píanónám í
nokkur ár en líf hans snerist þó aðallega um
fótbolta eins og hjá svo mörgum drengjum
á þessum aldri.
Fjölskyldan
Foreldrar Jökuls eru þau Þórlaug Sveins-
dóttir sjúkraþjálfari og Júlíus Hjörleifsson
leiðsögumaður og spænskukennari. Stjúp-
faðir hans er Guðmundur Vignir Friðjóns-
son viðskiptafræðingur. Jökull á þrjár systur
þær Kolbrúnu, Sölku og Fanneyju. Unnusta
Jökuls til fimm ára er Aldís Mjöll Helgadótt-
ir förðunarfræðingur, hún starfar í Krika-
skóla ásamt því að spila knattspyrnu með
meistaraflokki Aftureldingar.
Flutti til Danmerkur
Þegar Jökull var á tólfta aldursári flutti
fjölskyldan búferlum. „Við fluttum til Ár-
ósa í Danmörku og bjuggum þar í tvö ár á
meðan Guðmundur stjúpfaðir minn stund-
aði mastersnám í viðskiptafræði. Mér var
vel tekið í Danmörku og ég var fljótur að ná
tungumálinu. Ég eignaðist mikið af góðum
vinum sem ég held enn sambandi við.“
Pabbi kenndi mér fyrstu gripin
„Við fluttum svo aftur í Mosfellsbæ og
vorum með þeim fyrstu sem fluttu í Trölla-
teiginn. Ég fór í Varmárskóla og kláraði þar
9. og 10. bekk,“ segir Jökull.
Ég hef alltaf verið mikill tónlistar-
unnandi, pabbi kynnti mig fyrir
tónlist frá fimmta, sjötta og sjö-
unda áratugnum. Hann kenndi
mér einnig fyrstu gripin á gítar
og á ég honum mikið að þakka
því án gítarsins get ég ekki verið,” segir Jök-
ull brosandi.
„Ég fór að æfa knattspyrnu með Aft-
ureldingu eftir að hafa spilað með TRIF í
Danmörku. Flokkurinn minn var gífurlega
sterkur og þar var að finna mikið af hæfi-
leikaríkum leikmönnum.”
Útskrifaðist frá FMOS
„Áhuginn og metnaður fyrir að mæta á
knattspyrnuæfingar minnkaði
eftir að grunnskólanum lauk.
Ég fór í Menntaskólann við
Sund eins og svo margir aðrir
Mosfellingar. Eftir tvö ár tók ég mér hlé frá
námi og hef á undanförnum árum unnið
ýmis störf fyrir Mosfellsbæ meðal annars
sem stuðningfulltrúi fatlaðra í frístundasel-
inu í Lágafellsskóla. Ég tók síðan eina önn
í Borgarholtsskóla en kláraði svo þrjár síð-
ustu annirnar í Framhaldsskólanum í Mos-
fellsbæ og var einn af fyrstu fimm nemend-
unum sem útskrifaðist þaðan vorið 2012.”
Timburmenn spiluðu víða
„Ég hef síðan í grunnskóla verið með
skólafélögum mínum þeim Daníel Ægi
Kristjánssyni og Davíð Antonssyni í hljóm-
sveitinni Timburmönnum. Félagsmið-
stöðin Bólið útvegaði okkur æfingahús-
næði sem var aðgengilegt fyrir mosfellskar
hljómsveitir á þeim tíma og erum við mjög
þakklátir fyrir það.
Við spiluðum aðallega ábreiður (cover
lög) og komum víða við. Við vorum á tíma-
bili húsbandið á Ásláki, spiluðum á Hvíta
Riddaranum ásamt fleiri stöðum í Reykja-
vík eins og Oliver, Dönsku kránni, English
Pub og Hressingarskálanum.”
Stofnuðum hljómsveitina Kaleo
Eftir sumarið 2012 ákváðu strákarnir að
leggja áherslu á sína eigin tónlist og stofn-
uðum hljómsveitina Kaleo ásamt því að fá
til liðs við sig gítarleikarann Rubin Pollock.
„Ég skipti út kassagítar fyrir rafmagnsgít-
ar og við það breyttust áherslurnar og
lagasmíðarnar. Ákveðið var að taka þátt í
Músíktilraunum í mars 2013 og komumst
við áfram í úrslit en náðum ekki þremur
efstu sætunum.”
Boltinn fór að rúlla
„Eftir þáttökuna gáfum við út lagið Rock
‘n’ Roller og fórum með það í útvarpið.
Það fékk strax spilun á X-977 en það var
ekki fyrr en við fórum í þáttinn Skúrinn hjá
Gunnari Gunnarssyni á Rás 2 að boltinn fór
að rúlla. Þar spiluðum við gróflega tilbúna
útgáfu af laginu Vor í Vaglaskógi í okkar
búningi. Þeir á Rás 2 hrifust strax af lag-
inu, tóku upp myndaband við það og settu
á Youtube. Í kjölfarið fór einhver hringrás
í gang og fólk deildi myndbandinu út um
allt á netinu.”
Stuðningurinn ómetanlegur
„Við ákváðum að taka lagið upp í stúdíó
og fórum svo með það á útvarpsstöðvarnar.
Það náði gífurlegum vinsældum í sumar og
má nánast segja að það hafi verið ofspil-
að. Ég tel að þessar vinsældir hafi gert það
að verkum að fólk fór að hlusta á hin lögin
okkar sem við áttum sem voru aðgengileg
meðal annars á netinu.
Við finnum fyrir miklum meðbyr hér í
sveitinni og sá stuðningur er ómetanleg-
ur. Við erum stoltir af því að vera mosfellsk
hljómsveit enda eru margar góðar sveitir
héðan eins og Gildran og Sigurrós. Það er
hvergi betra að búa en í Mosfellsbæ, stað-
fest,” segir Jökull.
Gerðu útgáfusamning við Senu
„Útgáfufyrirtækið Sena hafði samband
við okkur í sumar og sýndu áhuga á að
gera með okkur ellefu laga breiðskífu. Við
höfðum upphaflega ætlað okkur að gera
smáskífu með 4-6 lögum en vissulega var
meira spennandi að gera breiðskífu. Við
tóku samningaviðræður og við náðum
samkomulagi í september, þá höfðum við
sex vikur til stefnu.”
Leggja land undir fót
„Við unnum plötuna með Arnari Guð-
jónssyni upptökustjóra og það gekk hratt
og vel fyrir sig. Á plötunni eru tvö tökulög,
Vor í Vaglaskógi og Ísland er land þitt, sem
er einskonar forspil á plötunni. Restin af
lögunum eru frumsamin. Platan kom út
í nóvember og varð ein söluhæsta plata
landsins fyrir jólin.“
Ég spyr Jökul að lokum hvað taki nú við?
„Að fylgja plötunni eftir og koma fram,
við ætlum líka að leggja land undir fót og
spilum á Friggfestival í Danmörku ásamt
ýmsum hljómsveitinum frá hinum Norð-
urlöndunum, svo það eru bara spennandi
tímar framundan.”
- Mosfellingurinn Jökull Júlíusson18
Fjölskyldumynd frá árinu 2000.
Salka, Þórlaug, Jökull, Guðmundur og Fanney.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Myndir: Ruth Örnólfs, Guðný Ágústsdóttir, Raggi Óla og úr einkasafni.
Jökull Júlíusson tónlistarmaður og söngvari hljómsveitarinnar Kaleo er
tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem besti söngvari ársins.
Leggjum áherslu á
okkar eigin tónlist
Árið 2012 ákváðum við
að leggja áherslu á okkar
eigin tónlist. Ég skipti út kassa-
gítar fyrir rafmagnsgítar og
við það breyttust áherslurnar
og lagasmíðarnar.
Uppáhaldsveitingastaður?
Argentína steikhús.
Fallegasti staður í Mosfellsbæ?
Álafosskvos.
Hvaða hlutar getur þú ekki verið án?
Ég á erfitt með að vera lengi án gítars.
Besti rakspírinn? Armani Day.
Hvern faðmaðir þú síðast?
Mína kæru móður.
Uppáhaldshljómsveit? The Beatles.
Þrjú orð sem lýsa þér best?
Framsækinn, ákveðinn, óþolinmóður.
Hvaða hluti myndir þú taka með þér
á eyðieyju? Gítar og tannbursta.
HIN HLIÐIN
Kaleo
með pabba á spánijöKull og aldís