Mosfellingur - 09.01.2014, Blaðsíða 28
Enchilada með kjúklingi
Í eldhúsinu
Ásta Steina Jónsdóttir deildar-
stjóri í Lágafellsskóla kemur hér
með uppskrift að léttum, góðum
og fljótlegum kjúklingarétti
sem er mjög vinsæll á hennar
heimili.
Hann hentar einstaklega vel
eftir hátíðirnar þegar reyktur
og saltaður matur hefur verið í
hávegum hafður.
• 3-4 stk. kjúklingabringur
• matarolía
• 1 dós hrein jógúrt
• 1 poki rifinn mozzarella ostur
• 1 pk. (30 g) fajita krydd
• 8 stk. tortillur
• 1 dós salsasósa
Ef maður vill frekar búa til sósuna sjálfur,
ef maður er ekki að flýta sér :-),
þá er hún svona:
• 1 msk. matarolía
• 1 laukur, fínsaxaður
• 1 hvítlauksgeiri, fínsaxaður
• 4 stk. ferskur grænn chilipipar,
fræhreinsaður og fínsaxaður
• 3 stk. tómatar, flysjaðir og saxaðir
• 1 msk. ferskur kóríander, fínsaxaður
• smá salt
Hitið matarolíuna á
þykkri pönnu. Steikið
laukinn og hvítlaukinn
fagurbrúna og hrær-
ið reglulega í. Bætið
í chilipipar, tómötum,
kóríander og salti. Látið
krauma í 15 mín eða þar
til blandan þykknar og
takið þá af hitanum og
setjið til hliðar.
Bringurnar skornar í bita
og steiktar í matarolíu á
pönnu og kældar aðeins.
Jógúrt, osti (skilja samt
nóg eftir til að strá yfir réttinn líka ) og kryddi
blandað saman í skál. Köldu kjúklingakjöt-
inu blandað saman við blönduna. Svo er
kjúklingablöndunni skipt á tortillurnar og þær
vafðar upp og settar með samskeytin niður í
eldfast mót. Salsasósunni/tómathrærunni hellt
yfir og restinni af mozzarella ostinum stráð
yfir. Bakað í ofni við 180°C í ca. 20 mín.
Borðað með góðu salati.
Skora á stöllu mína, Sesselju Gunnarsdóttur,
sem gerir bestu marengsköku í heimi að gefa
uppskrift í næsta blaði.
hjá ástu
Ásta Steina skorar á Sesselju Gunnarsdóttur að deila með okkur uppskrift í næsta blaði.
AfþreyingAr
Mosó
Þegar kemur að afþreyingu fyrir
ungt fólk hefur Mosó stundum ver-
ið hálf haltur bær. Auðvitað besti
halti bær í heimi en nokkuð haltur
engu að síður. Fyrir mann sem ólst
upp á Kjuðanum, snókerstofu
K. Tomm og Valla í Kjarnanum,
vorkennir maður unglingum sem
hafa ekkert nema anddyrið á Dom-
inos og PlayStation til að drepa
tímann.
Nei að öllu gríni slepptu þá mætti
vera meira að gera, ekki bara fyrir
ungt fólk heldur yfir höfuð. Vanda-
málið hefur auðvitað í gegnum
tíðina verið nálægðin við Reykja-
vík. Fólk sækir alla sína afþreyingu
þangað: bíó, leikhús, keilu, snóker,
pool, pílu og fleira í þeim dúr.
Mosó stendur sig þó frábærlega
í einu og það er íþróttaafþreying.
Fyrir utan frábært starf Aftureld-
ingar og ótrúlega fjölbreytni er
að finna þó nokkra fótboltavelli,
sparkvelli, körfuboltavelli, strand-
blak og jafnvel hjólabrettasvæði.
Ekki má gleyma hinum mjög svo
aflíðandi íþróttavöllum við Var-
márskóla sem eru hinn fullkomni
staður til að spila hinn goðsagna-
kennda leik „Ömmuna“.
Það er hins vegar eitt sem sár-
vantar í þessa flóru og það er folf-
völlur eða frisbee-golf! Einföld
og frábær afþreying. Það eru þó
nokkrir staðir þar sem hægt væri
að setja upp þannig völl. Hlégarð-
stúnið og í kringum Varmá, Ullar-
nesbrekkan og þar í kring, Reykja-
lundar- og Álafosssvæðið. Sonur
Mosó, Steindi Jr., sem er forfallinn
folafari gæti verið verndari vallar-
ins og séð um að viðhalda honum
alfarið, frítt? Halli Sverris, lets do
this! Mosó í landsliðið í folfi!
ásgeir jóns
Heyrst Hefur...
...að hestamenn hafi verið afar ósáttir
við að áramótabrennan hafi verið
færð niður í hesthúsahverfi.
...að svanni og Karen hafi trúlofað sig.
...að Geiri í Kjötbúðinni sjái um matinn
á Þorrablóti Aftureldingar í ár.
...að svo geti farið að Afturelding leiki
í 1. deild í fótboltanum í sumar ef
tindastóll dregur lið sitt úr keppni.
...að Þorrablót Dalbúa verði haldið í
reykjadal laugardaginn 1. febrúar.
...að blómabúðin Ný-Blóm við hliðina
á Krónunni sé búin að skella í lás.
...að samfylkingin fundi um val á
framboðslista í næstu viku.
...að Ágúst og María Ómars séu búin
að opna skemmtistaðinn Brikk í
miðbæ reykjavíkur.
...að það verði pub-quiz á Hvíta
riddaranum í kvöld.
...að framsóknarmenn ætli að ákveða
aðferð um val á framboðslista í
næstu viku.
...að fiskbúðin Mos eigi 5 ára afmæli
í dag.
...að nýja bardaga- og fimleikahúsið að
Varmá verði ekki tilbúið fyrr en í vor.
...að það sé hugur í Íbúahreyfingunni
að halda áfram í næstu kosningum.
...að herrakvöld Lions fari fram
föstudaginn 14. febrúar.
...að ‘80 árgangurinn ætli að hittast á
laugardaginn.
...að Vinstri græn ætli að stilla upp
sínum lista fyrir næstu kosningar.
...að nýi framhaldsskólinn í Háholti
verði vígður með pompi og prakt
síðar í mánuðinum en kennsla hófst í
nýju skólahúsnæði í gær.
...að sunna rún og Bjarni eigi von á
barni í sumar.
...að Óli Höskulds eigi afmæli í dag.
....að mikill áhugi hafi verið meðal
félaga í Gufufélagi Mosfellsbæjar
fyrir auglýstri ferð til Norður-Kóreu
sem íslensk ferðaskrifstofa hefur
í hyggju. eftir að í ljós komið að
aðeins verður dvalið í Norður-Kóreu
í þrjá daga í hálfsmánaðarferð dofn-
aði áhugi félagsmanna og stærstum
hluta ferðarinnar varið í Kína þar
sem lýðræði er félagsmönnum ekki
eins hugnanlegt og í Norður-Kóreu.
...að Grýlupoppið hans Alla rúts hafi
slegið við helstu stjörnum þjóðarinn-
ar í topplista Grapevine yfir jólalög
sem allir þurfa að hlusta á.
...að búið sé að stofna dansíþrótta-
félag Mosfellsbæjar.
...að hinn öflugi fótboltamaður Paul
Mcshane sem leikið hefur með
Aftureldingu sé genginn til liðs við
gamla félag, Keflavík.
...að Vine-félagarnir sem gerðu allt
vitlaust í smáralindinni hafi fengið
sér subway í Mosó á þriðjudaginn.
mosfellingur@mosfellingur.is
- Heyrst hefur...28
Árið var óvenju líflegt hjá Gufufélagi Mos-
felsbæjar sem að vanda hélt aðalfund sinn
eftir hádegi á gamlársdag. Fundir voru að
vanda vel sóttir og mikil umfjöllun um
starfið í fjölmiðlum. Vorfagnaður var hald-
inn á heimili aðalritara og tókst hann með
miklum ágætum þar sem félagar gæddu sér
á bernessósu með grilluðu lambakjöti út í.
Þar var stofnaður nýr kór eða 3-faldur
kvartett og var Reykjalundakórinn lagður
af skömmu síðar. Í hópmyndatöku skyggði
skálkaskelfir Haraldur Sigurðson á forseta
og kemur það niður á frekari frama hans
innan félagsins, en hann var umsvifalaust
skipaður lífvörður og skotskjöldur forseta.
Skipaður í embætti áfengisfulltrúa
Félagi Sigvaldi Sigurðsson stóð sig af-
burðavel á liðnu ári. Hann tók gufufund
fram yfir boðskap Sigmundar Davíðs og
kom sér í mjúkinn við forseta með því að
setjast við háborðið. Sigvaldi hefur viða-
mikla reynslu í viskíneyslu og glasaglaumi.
Stjórn hefur því ákveðið að skipa hann í
embætti áfengisfulltrúa Gufufélagsins.
Félagi Guðbjörn Sigvaldason stóðst inn-
tökupróf í skötuáti með láði og samgleðj-
umst við allir með honum. Hann fær hins
vegar áminningu fyrir afskipti af störfum
stjórnar á gufufundi á milli jóla og nýárs.
Íslensk stjórnvöld hafa á liðnu ári leit-
að ráða hjá félaginu og hafa nú m.a. lært
hvernig kasta skal steini úr steinhúsi og
notar Vigdís Hauksdóttir það óspart.
Nefnd um leiðréttingu á skuldum heim-
ilanna leitaði eftir aðstoð Gufufélagsins og
settum við umsvifalaust okkar helsta sér-
fræðing í óskiljanlega háum fjárhæðum
Erling Friðgeirsson í málið og er árangur
eftir því. Einnig er niðurskurðarhópur rík-
isstjórnarinnar að skoða hvort hægt sé að
hagræða í stjórnsýslu Íslands með því að
taka upp lýðræði Gufufélagsins.
Tveir félagar áttu merkisafmæli á liðnu
ári og tóku þeir við hefðbundinni stóraf-
mælisgjöf frá Gufufélagi Mosfellsbæjar.
Þetta er þeir Friðmar Friðmarsson sem varð
sextugur 7. nóvember og Birgir sem var
fagnaði fimmtugsafmæli 13. desember.
Nýtt erindi söngmálastjóra
Forseti hélt við lýðræði fyrri ára og virti
mótframboð að vettugi og situr áfram sem
fastast. Þar af leiðandi var ekki kosið til
stjórnar nú frekar en fyrr ár.
Að vanda stýrði Guðmundur söngmála-
stjóri fjöldasögn við lok aðalfundar. Sung-
ið var Stóð mér úti í tunglsljósi en einnig
sálmur Valdimars Briem „Nú árið er liðið”.
Sérstaklega var gerður góður rómur að nýju
erindi sem söngmálastjóri orti til viðbótar
við sálminn. Nýja erindið er eftirfarandi:
Nú göngum við brattir til gleðinnar dyr
Sem gufunnar dásemdar njótum.
Hún gefur til afreka golu eða byr
Og geðstirða limi og liði hún smyr,
svo eilífðar upprisu hljótum.
Líflegt starf í Gufufélaginu á árinu • Blaðafulltrúi fær orðið
Aðalfundur Gufufél
agsins á gamlársdag