Mosfellingur - 09.01.2014, Qupperneq 15

Mosfellingur - 09.01.2014, Qupperneq 15
Íþróttakarl Hestamanna- félagsins Harðar 2013. Reynir Örn Pálmason er framúrskar- andi afreksmaður í hestaíþróttinni. Hann hefur verið valinn hestaíþrótta- maður Harðar sex sinnum, er alinn upp í Herði og hefur alltaf keppt sem Harðarmaður. Reynir Örn hefur oft verið valinn í landslið Íslands og keppt fyrir Ísland á erlendri grundu. Hann er mjög góð fyrirmynd fyrir kynslóðina sem við erum að ala upp í Herði. Árið 2013 var einkar farsælt keppnisár hjá Reyni Erni, hann keppti á öllum mótum sem Hörður hélt, ásamt því að keppa á öllum stórmótum sem haldin voru á Íslandi og nánast alltaf í úrslitum. Reynir Örn er á Heimslista FEIF Worldranking 2013 sem eru heimssamtök Íslandshesta, en þar er hann í 3. sæti í slaktaumatölti T2 - 7. sæti í fimmgangi F1 - 8. sæti í samanlögðum fimmgangsgreinum. Í fimmgangi fékk Reynir Örn 7,50 í forkeppni sem er hæsta einkunn sem gefin hefur verið á Íslandi. Hestamannafélagið Hörður er mjög hreykið af því að hafa svo frábæran afreksmann innan sinna raða. Reynir Örn Pálmarsson hestaíþróttamaður Íþróttamaður Aftureldingar 2013 Jóhann er fæddur 12. febrúar 1986. Hann hefur leikið með Aftureldingu frá blautu barnsbeini og hefur stöðugt bætt sig sem leikmaður. Á síðasta tímabili lék Afturelding í efstu deild og var Jóhann lykilmaður í liðinu, átti mjög gott tímabil og var valinn nokkrum sinnum í lið umferðarinnar auk þess að vera einn markahæsti leikmaður N1 deildar á síðasta tímabili. Jóhann stundar íþrótt sína af mikilli samviskusemi og er mikil og góð fyrirmynd fyrir alla í félaginu. Jóhann er gegnheill Aftureldingarmað- ur og hefur farið með liðinu i gegn um súrt og sætt undanfarin ár. Þrátt fyrir nokkur gylliboð í vor eftir að Aftureld- ing féll niður um deild, tók Jóhann ákvörðun um að spila áfram með sínu uppeldisfélagi og aðstoða við að koma því rakleitt í efstu deild, eins og allir í liðinu stefna að. Jóhann Jóhannsson handknattleiksmaður Íþróttakarl ársins 2013 hjá Golfklúbbnum Kili. Kristján Þór Einarsson er 26 ára gamall kylfingur. Kristján hefur stundað golf hjá Golfklúbbnum Kili frá unga aldri og náð miklum og góðum árangri. Kristján er samviskusamur og duglegur við æfingar og leggur sig ávallt allan fram. Kristján varð í sumar klúbbmeistari GKj í meistaraflokki sem og stigameistari á mótaröð meistaraflokks. Kristján keppti einnig á Eimskipsmótaröð GSÍ með góðum árangri og sigraði á lokamóti mótaraðarinnar sem fram fór hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Kristján endaði sumarið í 6. sæti stigalistans. Hann var einnig lykilmaður í sveit GKj í sveitakeppni GSÍ sem fram fór hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Kristján hefur undanfarin ár verið í karlalandsliði Íslands og nú í desember var hann valinn í liðið fyrir árið 2014. Kristján stefnir á atvinnumennsku í golfi á komandi árum og hefur þegar hafið vinnu að því markmiði. Kristján er frábær íþróttamaður og góð fyrirmynd fyrir yngri kylfinga klúbbsins. Kristján Þór Einarsson kylfingur Íþróttamaður Motomos 2013 Kjartan Gunnarsson er 21 árs gamall og hefur stundað íþróttina frá því hann fékk sitt fyrsta hjól á tólfta ári en byrjaði að keppa á þrettánda ári. Strax var ljóst að mikið efni var á ferð og hefur Kjartan ávallt verið að keppa í baráttu um toppsætin. Kjartan hefur verið í MotoMos frá því að hann hóf keppni. Hann er tvöfaldur Íslandsmeistari, fyrst Íslandsmeistari unglinga árið 2010 og núna Íslands- meistari í MX2 (einskorðað við 250cc hjól). Kjartan æfir mörgum sinnum í viku í undirbúningi sínum og hefur tvívegis farið til æfinga í Bandaríkjunum til að bæta sig sem ökumaður. Kjartan Gunnarsson akstursíþróttamaður heilsu hornið Útnefning á íþróttakarli og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2013 KynninG á ÍÞRóttAfólKinu sEM tilnEfnt ER KosninG fER fRAM á www.Mos.is ÚRslit vERðA tilKynnt 23. JAnÚAR Bæjarbúum gefst kostur á, ásamt aðal- og varamönnum í Íþrótta- og tómstundanefnd, að kjósa íþróttakarl og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2013. Kosning fer fram á vef Mosfellbæjar www.mos.is dagana 9. - 19. janúar. velja skal einn karl og eina konu. Úrslit verða kynnt fimmtudaginn 23. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá. Allir velkomnir. Hér fyrir neðan er kynning á íþróttakörlum sem tilnefndir eru vegna kjörs til íþróttakarls Mosfellsbæjar 2013, og afrekum þeirra á árinu.

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.