Mosfellingur - 09.01.2014, Qupperneq 24
Þjónusta við mosfellinga
- Aðsendar greinar24
Íslenska ullin
er einstök
Sjá sölustaði á istex.is
Subaru XV 4WD - árg. 2012
Þægileg og háþróuð kennslubifreið
Akstursmat og endurtökupróf
Ökukennsla
Gylfa Guðjónssonar
Sími: 696 0042
bingimalari@gmail.commálningarþjónusta
Alhliða
Gleðilegt ár!
Þann 5. desember 2013 skrifaði ég
grein í Mosfelling um það aðstöðuleysi
sem hrjáir íþróttastarf í Mosfellsbæ.
Benti ég á þá staðreynd að bærinn hafi
stækkað verulega á síðustu árum, þörf-
in fyrir uppbyggingu væri hrópandi og
fyrsta skrefið gæti verið bygging fjölnota
íþróttahallar á Varmársvæðinu. Við-
brögðin við greininni hafa verið jákvæð og sterk.
Ánægjulegt var að sjá tvær greinar um sama efni
í síðasta tölublaði Mosfellings, umræðan er hafin
og er það vel.
Rekstur og uppbygging bæjarfélags krefst líkt
og rekstur fyrirtækja og heimila að sjálfsögðu
mikils fjármagns. Mikið kapp hefur verið lagt á
að laða til sín fjölda nýrra íbúa í bæinn enda best
að búa í Mosfellsbæ samkvæmt nýlegri könnun
Capacent. Því miður hefur framboð atvinnu á
svæðinu ekki fylgt fólksfjölguninni eftir. Þær
beinu tekjur og störf, afleidd störf og margföldun-
aráhrif sem af atvinnurekstri í heimabyggð stafar
er það sem skilur á milli fjárhagslega blómstrandi
bæjarfélaga og hinna sem á eftir koma.
Í Mosfellsbæ eru veruleg tækifæri til uppbygg-
ingar atvinnurekstrar. Bærinn er vel staðsettur á
jaðri höfuðborgarsvæðisins sem hentar vel fyrir
ýmsan iðnað og starfsgreinar. Ímynd bæjarins
innan heilsu- og heilbrigðiskerfis er óumdeild,
miðbæjarkjarninn og Álafosskvos veita einstaka
möguleika og byggingarsvæði eru til taks fyrir
iðnaðar- og skrifstofuhverfi, bæði fyrir einka- og
opinbera geirann. Blikastaðalandið sem tengir
Reykjavík og Mosfellsbæ veitir gríðarleg tækifæri
í verslunar og skrifstofurýmum fyrir höfuðborg-
arsvæðið allt og svo mætti lengi telja. Því miður
hefur bærinn að miklu leyti sofið af sér atvinnu-
uppbyggingu síðustu ára á höfuðborgarsvæð-
inu. Sem dæmi hefði verið eðlilegt að
atvinnuhúsnæði sem risið hefur á Esju-
melum hefði verið reist í Mosfellsbæ og
svo mætti lengi telja. Góðu fréttirnar eru
þó þær að með samstilltu átaki er hægt
að snúa þessari þróun við og markaðs-
setja og kynna Mosfellsbæ sem tilvalinn
stað til atvinnurekstrar. Aukin atvinna
þýðir auknar tekjur bæjarfélagsins,
aukna þjónustu og aukin lífsgæði bæjarbúa.
Stóraukin atvinnuuppbygging innan bæjarins
á næstu árum er mjög mikilvægur grundvöllur
framtíðaruppbyggingar að mati Framsóknar-
flokksins í Mosfellsbæ. Fáum við umboð kjós-
enda í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna árið
2014, verður starfshópur fagaðila s.s. ráðgjafa,
atvinnurekenda og bæjarbúa settur á laggirnar
og lagt af stað í þá vegferð að stórauka fjölda fyr-
irtækja og stofnana í bænum okkar.
Mikilvægt er að halda ráðstefnu hið fyrsta
um framtíðaráform bæjarins varðandi atvinnu-
uppbyggingu. Þar myndu allir þeir sem sjá
möguleika svæðisins til atvinnurekstrar svo sem
bæjarfélagið, hagsmunasamtök, fjármálastofn-
anir, byggingaraðilar, fjárfestar, stjórnvöld og
bæjarbúar leiða saman hesta sína.
Snúum vörn í sókn í og komum Mosfellsbæ á
þann stall sem honum sæmir, í forystuhlutverk
til búsetu á höfuðborgarsvæðinu.
Áhugasamir aðilar um verkefnið sendið tölvu-
póst á runarh@gmail.com hvort sem þið viljið
taka þátt í undirbúningsvinnu, eruð með hug-
myndir eða hafið frekari spurningar.
Látum næstu kosningar snúast um málefni og
ekkert annað.
Rúnar Þór Haraldsson
Framkvæmdastjóri, viðskiptafræðingur
og meistaranemi í lögfræði.
Nú þegar nokkrir mánuðir eru í að ný
slökkvistöð rísi hér í Mosfellsbæ er fyr-
irkomulag sjúkraflutninga á höfuðborg-
arsvæðinu í algerri óvissu.
Heilbrigðisráðuneytið neitar að end-
urnýja samninga við Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins, undir því yfirskyni að
áætlaður kostnaður SHS sé of hár. Deil-
urnar hafa staðið í marga mánuði og
í dag er greitt eftir gömlum samningi. Á sama
tíma eru Mosfellsbær og hin sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu að greiða meira en þeim
ber. Sjúkratryggingar Íslands og matsfyrirtæki
hafa tekið undir útreikninga SHS en allt kemur
fyrir ekki.
Brunar eru sem betur fer fátíðir í Mosó, en
sjúkraflutningarnir skipta okkur miklu máli og
því hræðilegt til þess að vita ef það verkefni fylg-
ir ekki með í nýju slökkvistöðinni.
En hver er ástæðan fyrir þessum töfum? Hver
er ástæðan fyrir því að bæjarstjórn fer ekki fram
af meiri hörku?
Einkavæðing hefur ávallt verið ofarlega á
stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins. Í stjórn Slökkvi-
liðsins sitja m.a. 4 bæjarstjórar Sjálfstæðisflokks-
ins! Þeir sem fylgjast grannt með þessu
máli muna eftir ummælum heilbrigð-
isráðherra Sjálfstæðisflokksins frá því
í haust, að hann útiloki ekki að einka-
væða sjúkraflutningana.
Getur verið að þetta sé ástæða þess
að ekki náist samkomulag milli ríkis
og stjórnar SHS? Er Sjálfstæðisflokkur-
inn virkilega að stefna í að einkavæða
sjúkraflutninga á Íslandi?
Reynsla af einkavæðingu sjúkraflutninga er
mjög slæm t.d. í Danmörku og Svíþjóð þar sem
þjónustunni hrakaði mjög, enda snýst einkavæð-
ing fyrst og fremst um hagnað en ekki þjónustu.
En þegar þessi þjónusta er annars vegar þá er
hver mínúta dýrmæt
Sameiginlegur rekstur slökkviliðs- og sjúkra-
flutninga er hagkvæmur fyrir íbúana, bæði hvað
varðar útgjöld og björgun.
Þess vegna verður að eyða allri óvissu um veru
sjúkraflutninga í nýju slökkvistöðinni við Skar-
hólabraut og standa fast gegn einkavæðingar
hugmyndum Sjálfstæðisflokksins.
Valdimar Leó Friðriksson
Einkavæða sjálfstæðismenn
sjúkraflutninga?
Verkefni 2: Atvinnuuppbygging
í Mosfellsbæ
Þverholti 2 • Mosfellsbæ
Fasteignasala
Mosfellsbæjar
Sími: 586 8080
www.fastmos.ishafðu samband E.BAC
K
M
A
N
Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali
Viltuselja...
E
.B
A
C
K
M
A
N
www.fastmos.is
586 8080
Sími: Hafðu
samband
Einar Páll Kjærnested
Löggiltur fasteignasali
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Þverholti 2 • S. 586 8080 • www.fastmos.is
Viltu selja?
Vegna mikillar sölu þá vantar okkur allar gerðir eigna á söluskrá