Mosfellingur - 13.01.2011, Síða 28
Sendið okkur myndir af nýjum Mosfell
ingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Ásgeir Anton fæddist þann 22. maí
2010 og vó 1560 gr (6 merkur) og 42
cm og Emma Björk fæddist 22.maí
2010 og vó 1940 gr (8 merkur) og 43
cm. Stóra systir heitir Bríet Björk.
Foreldrar þeirra eru Svava Björk
og Kristmundur Anton til heimilis í
Víðigerði, Mosfellsdal.
Erlín Hrefna Arnarsdóttir fæddist
13. mars 2010 kl. 23.01. Hún var 16
merkur og 52 cm. Foreldrar hennar
eru Áslaug Erlín Þorsteinsdóttir og
Arnar Proppé, Arnartanga 50.
Sölvi Steinn fæddist þann 1. júní
2010. Hann vó 3150 gr og var 49 cm
á hæð. Foreldrar hans eru Kristjana
Guðrún Guðmundsdóttir og Ingvar
Þór Guðjónsson.
Sendið okkur myndir af nýjum Mosfell
ingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
30. nóvember 2010 fæddist þessi
fallega stúlka á Akranesi. Hún vó
4355 grömm og var 51 cm að lengd.
Foreldrar hennar eru Berglind Bára
Hansdóttir og Guðmundur Guð-
jónsson og á hún tvo eldri bræður,
Guðjón Andra og Hákon Kára.
Rækjuréttur
Í eldhúsinu
Ferskur og góður rækjuréttur
fyrir tvo
150 grömm rækjur
1 rauðlaukur skorinn smátt
fersk kóríenderblöð skorin niður
3 tómatar skornir niður
eitt avokadó afhýtt og skorið í teninga,
2 dl. tómatsósa
Öllu hrært saman og safi út í. Lime kreist yfir
og malaður pipar, allt hrært saman og látið
í kæli í einn klukkutíma. Borðað jafnvel sem
forréttur með ristuðu brauði
Verði ykkur að góðu.
hjá bryndÍsi
gull af
manni
Ég þekki gull af manni. Sá heitir
Jóhann Guðjónsson, oftar en ekki
kallaður Jói Jako en vinir hans kalla
hann formanninn. Jói hefur í hart nær
tvo áratugi unnið óeigingjarnt starf
fyrir handknattleiksdeild Afturelding-
ar eða lagt félaginu lið með einum eða
öðrum hætti.
Hann, ásamt fleiri góðum
mönnum var einn af þeim sem
stóð á bakvið og setti saman eitt
besta handknattleikslið sem leikið
hefur á Íslandi. Liðið sem færði
Aftureldingu deildar-, bikar- og
Íslandsmeistaratitil árið 1999.
Einstakt afrek í íslenskri íþróttasögu.
Jói var formaður handknattleiks-
deildarinnar á þessum árum og svo
eftirminnilegur var hann í því starfi
að hann er enn kallaður formaðurinn
.
Frá því að ég hóf göngu mína
í meistaraflokki hefur Jói styrkt
deildina með himinháum
peningagjöfum. Eitt árið var hún
til dæmis um fjórfalt hærri en það
sem bærinn lagði til. Í ár gaf Jói
meistaraflokknum búningasettin sem
hann leikur í og er það ekki í fyrsta
skipti. Þess utan gaf hann flokknum
upphitunargallana og fjöldann allan
af treyjum sem stuðningsmenn hafa
fengið í sínar hendur á heimaleikjum.
Jói hefur því, fyrst sem formaður
handknattleiksdeildarinnar og
síðar í gegnum fyrirtækið sitt Namo,
sem er með vörumerkið Jako á
sínum snærum, reynst Aftureldingu
ómetanlegur.
Í sumar var ráðinn nýr
framkvæmdastjóri til Aftureldingar.
Hann hafði áður starfað hjá Fram sem
hefur um árabil leikið í búningum
frá Errea. Eitt af fyrstu verkum þessa
nýja framkvæmdarstjóra var að rifta
samning við Namo (Jako) og gera
samning við Errea. Er það eðlilegt?
Ég spyr. Hvað finnst ykkur kæru
Mosfellingar?
Er það svona sem Afturelding
þakkar fyrir sig? Var ekki hægt að
klára núverandi samning í það
minnsta? Á mínum bæ kallast þetta
skítbuxnaháttur af verstu sort.
Ég þekki gull af manni. Sá heitir
Jóhann Guðjónsson.
ásgeir
jónsson
Sendið okkur myndir af nýjum Mosfellingum
ásamt helstu upplýsingum á netfangið
mosfellingur@mosfellingur.is
- Heyrst hefur...28
Heyrst Hefur...
...að Inga rún hafi eignast lítinn strák
á gamlársdag.
...að Kaffi Kidda rót sé farið á
hausinn eftir níu mánaða
starfsemi í Mosfellsbæ.
...að forsalan á Þorrablót Aftureldingar
hefjist með borðaröðun á föstudag
kl. 18 á N1 í Háholti.
...að Geiri Gúllas sé búinn að opna
glæsilega kjötbúð á Grensásvegi.
...að feðgarnir siggi Hansa og Arnór
hafi haldið glæsilega afmælisveislu
um síðustu helgi þar sem þeir
fögnuðu samanlagt 60 ára afmæli.
...að Gunni Þórðar verði með tónleika
á Kaffihúsinu Álafossi fimmtudags-
kvöldið 27. janúar.
...að íþróttamaður Mosfellsbæjar verði
kjörinn í kvöld kl. 20 að Varmá.
...að tveir nýir Mosfellingar hafi fæðst
á nýársdag.
...að Nonni Bobcat hafi farið með sigur
af hólmi á firnasterku borðtennis-
móti rafmögnunar á dögunum.
...að Lotta og Bingi séu búinn að skíra
nýjasta drenginn sinn Arnór Loga.
...að Ari Arnalds sé orðinn pabbi.
...að svo gæti farið að Ísland eigi leik á
HM sama dag og Þorrablót Aftureld-
ingar verður haldið. Leikurinn verður
þá sýndur á breiðtjaldi ef svo fer.
...að björgunarsveitin hafi bombað
nokkrum tívolíbombum beint út á
ísilagðan voginn með góðum árangri
við þrettándabrennuna.
...að búið sé að ráða dansara í
Karlakór Kjalnesinga.
...að Árdís Ármanns hafi eignast litla
stúlku fyrir jólin.
...að rúný sé nýr toppman uMfus.
...að Keli Guðbrands sé farinn í
Lögregluskólann.
...að Bryndís sé hætt á Hróa Hetti og
flutt til Danmerkur.
...að Hreindís ylva sé tilnefnd til leik-
konu ársins hjá myndum mánaðarins
og kvikmyndir.is. Kvikmyndaverð-
launin verða afhent í lok janúar.
...að Gyða og Halli sé flutt austur fyrir
fjall með GK gluggana með sér.
...að búið sé að ráða nýjan útibússtjóra
í Íslandsbanka.
...að brotist hafi verið inn á bílaþvotta-
stöðina fyrir jólin.
...að túri og saga eigi von á barni.
...að verið sé að dusta rykið af
karaokegræjunum á Ásláki.
...að Grillnesti sé komið í hollustuna
og farið að selja Burrito.
...að Pílus og GK sameini krafta sína
með dúndurtilboðum í janúar.
...að Áslákur ætli að bjóða uppá
þorramat fyrir hópa.
...að eldur hafi kviknað í sinu við skar-
hólabraut á sunnudaginn, nákvæm-
lega á þeim stað sem fyrirhugað er
að byggja slökkvistöð.
...að Hjördís Kvaran hafi haldið glæsi-
legt fertugsafmæli í Kiwanishúsinu.
...að það séu sérstakir tilboðsdagar í
nýju fataversluninni Basicplus.
...að Hulda Bergrós eigi afmæli í dag.
mosfellingur@mosfellingur.is