Mosfellingur - 12.01.2007, Qupperneq 11
Svampterta
125 gr. smjörlíki
155 gr. sykur
3 egg
125 gr. hveiti
1 og ½ tsk. ger
1 msk. kakó
3 msk. heitt vatn
Smjörlíki og sykri hrært
saman í hrærivél. Bætið
einu eggi út í í einu. Þar
næst er hveiti, geri og kakói bætt við. Að
endingu fer vatnið út í deigið.
Setjið svo deigið í tvö form. Hitið ofninn í 150
gráður og bakið í um það bil korter.
Krem
50 gr. smjörlíki
100 gr. fl órsykur
1 eggjarauða
Vanilludropar.
„Davíð H. Svansson
Ég er nú ekki vanur að streng-
ja áramótaheit, gerði það nok-
krum sinnum fyrir einhverjum
árum en það var alltaf bara
eitthvað sem var í tísku það
árið eða mér fannst sniðugt
að segja þá, þannig að ég
féll nú bara á þeim nokkrum
dögum eða vikum seinna. Svo
ég reyni nú bara að hafa örlítið
meira gaman en á árinu áður,
Standa mig betur í því sem ég
tek mér fyrir hendur og vinna
fl eiri leiki en árið áður :) Það
getur svo sem vel verið að ég
strengi heit einhvern tímann
ef þannig liggur við, og fi nnst
mér fl ott að fólk geri það hvað
þá standi við það, því það
er alltaf gott að hafa einhver
markmið og/eða hafa eitthvað
að stefna að.
Friðrik Karl Karlsson
Ég hef gert það að vana
mínum að strengja áramóta-
heit, mér fi nnst mjög gaman
að hafa einhver markið fyrir
komandi ár og reyni að hafa
þau í erfi ðari kantinum. Ég
er ákafl ega stoltur yfi r því að
áramótaheitin mín undanfarin
ár hafa oftast tekist.
Í þetta skiptið er áramótahei-
tin frekar persónuleg þannig
að ég mun ekki deila þeim hér
eitthvað frekar.
Særún Ingimundardóttir
Það eru mörg ár síðan ég
hætti að strengja áramóta-
heit, ég stóð aldrei við þau
hvort sem var. En þegar
kalkúnninn er búinn, allir
sprungnir úr ofáti, hundurinn
kominn á róandi og restin af
fjölskyldunni búinn að missa
sig í að skjóta upp fl ugeldum,
hlakka ég alltaf til nýs árs
alveg handviss um að það
verði ennþá betra en það
sem er að kveðja. Síðan er
alveg ómissandi að mæta
á þrettándabrennu, kveðja
jólin og enda í súkkulaði og
kökum hjá vinum. Bestu
nýárskveðjur.
Sigurður Kjartansson
Yfi rleitt strengi ég áramótaheit
um hver áramót.
Það er alltaf gaman að standa
við heitin. Til dæmis ein
áramótin hét ég því að fara að
stunda líkamsrækt reglulega
og hef ég staðið við það síðan.
Reglan er reyndar sú að ljóstra
ekki upp áramótaheitunum
fyrirfram.
Lárus Haukur Jónsson
Já ég geri það og undanfarin
ár hefur það reyndar alltaf
verið sama heitið.Það er þan-
nig að um hver áramót nota ég
tækifærið og þakka fyrir hve
lífi ð er dásamlegt. Ég heiti því
að leyfa hinum sem því nenna
að sjá um að væla. Mér fi nnst
lífi ð vera of dýrmætt og tími
ekki að eyða því í annað en
skemmtilega hluti.
Arna Dís Kristjánsdóttir og Gestur Baldursson eignuðust stúlkubarn 2. janúar
Fyrsti Mosfellingur ársins 2007
11Mosfellingur
Strengdir þú áramótaheit?
Ljósm. Ágúst