Mosfellingur - 07.04.2006, Blaðsíða 7
7Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar - Mosfellingur
Yfi r 1000 börn og ungmenni
æfa samtals níu íþróttagreinar hjá
Aft ureldingu. Núverandi æfi nga-
aðstaða samanstendur af þremur
íþrótta sölum, karatesal, sundlaug,
Varmár velli og litlum gervigrasvelli
á veturna og auk knattspyrnuvalla á
Tungubökkum á sumrin. Á aðalfundi
Aftureldingar var samþykkt ályktun
um skort á aðstöðu og nauðsyn stefnu-
mótunar, þarfagreiningar og úrbóta í
aðstöðumálum félagsins. Formaður
ræddi á þeim tíma málið við bæj-
arstjóra og kynnti helstu áhersluatr-
iði.
Í lok september 2005 fékk aðal-
stjórn Aftureldingar ráðgjafa til liðs
við sig við greiningu á núverandi
aðstöðu félagsins og fyrirsjáanlega
þörf á næstu árum. Unnið var að
stefnumótun í mannvirkjamálum
Aftureldingar í vinnuhóp sem saman-
stóð af aðalstjórn og öllum formönn-
um og framkvæmdastjórum deilda
félagsins. Tekið var mið af þeim fjölda
sem nú stundar íþróttir hjá félaginu
og þeirri aukningu sem búast má við
á næstu árum. Í greiningarvinnunni
kom berlega í ljós að fl estar deildir
félagsins eru nú þegar að sprengja
utan af sér þá aðstöðu sem í boði er
í dag. Hafa sumar deildir jafnvel þurft
að leita út fyrir bæjarfélagið eftir full-
nægjandi æfi ngaastöðu svo ekki sé
minnst á að heimaleikir í knattspyrnu
hafa ekki verið haldnir í Mosfellsbæ
á vorin heldur hefur þurft að kaupa
aðstöðu utanbæjar.
Einróma niðurstaða greiningar-
hópsins var að yfi rbyggður gervigras-
völlur í fullri stærð með aðstöðu til
frjálsíþróttaæfi nga myndi stórbæta
aðstöðu allra deilda félagsins. Með
því myndi losna um þá tíma sem í
dag eru til æfi nga knattspyrnu- og
frjáls íþróttadeilda í íþróttahúsinu og
þannig gætu aðrar deildir tekið við
fyrirsjáanlegri aukningu iðkenda.
Einnig var lögð áhersla á að Varmár-
svæði tengt Tungubökkum yrði skil-
greint sem íþróttasvæði og þar með
félags- og æfi ngasvæði Aftureldingar.
Einnig að félags- og fundaaðstaða
yrði bætt, en hún er mjög lítil í dag.
Mörg önnur brýn mál koma fram
í greiningar skýrslunni sem var í
október afhent bæjaryfi rvöldum.
Bæjaryfi rvöld tóku málinu vel og
í nóvember boðaði bæjarstjóri aðal-
stjórn Aftureldingar og formenn deilda
til samráðsfundar þar sem tillögur
félagsins voru ræddar og bæjarstjóri
gerði grein fyrir hvaða framkvæmd-
ir stæðu til á vegum bæjaryfi rvalda í
íþróttamannvirkjamálum. Þar komu
fram hugmyndir um gervigrasvöll og
viðbyggingu við íþróttahús og var lögð
áhersla á að mæta þörfum félagsins. Í
framhaldi af þessum fundi hafa full-
trúar Aftureldingar og bæjaryfi rvöld
unnið sameiginlega að undirbúningi
málsins og möguleikar á staðsetningu
gervigrasvallar skoðaðir. Var tekið vel í
þá hugmynd frá Aftureldingu að stefna
að því að byggja yfi r gervigrasvöllinn
og ákveðið að ganga út frá því við
staðarval, hönnun og gerð vallarins.
Í febrúar 2006 voru fulltrúar aðal-
stjórnar og knattspyrnudeildar Af-
tureldingar boðaðir á kynningarfund
hjá bæjaryfi rvöldum þar sem verk-
fræðileg úttekt á stærð og staðsetn-
ingu vallarins var kynnt. Á þeim fundi
kom fram almenn ánægja með bygg-
ingu vallarins og staðsetningu hans á
á Varmársvæðinu.
Samhliða var sett af stað annað
samvinnuverkefni Aftureldingar og
bæjaryfi rvalda sem er þarfagreining
og hönnun á tengibyggingu framan
við íþróttahúsið við Varmá sem mun
hýsa skrifstofur og félagsaðstöðu Aft-
ureldingar auk búningsaðstöðu fyrir
íþróttavelli á Varmársvæði. Gert er ráð
fyrir að framkvæmdir við hana hefjist
á árinu 2007 og verði lokið á árinu
2008. Sú vinna er komin vel á veg.
Gervigrasvöllur í fullri stærð mun
stórbæta keppnisaðstöðu knatt spyrnu-
deildar sem er að sjálfsögðu hið besta
mál. En meginmálið er að slíkur völlur
mun fyrst og fremst gegna hlutverki
bættrar æfi ngaaðstöðu barna og
ung linga í Mosfellsbæ. Þá staðreynd
þarf að hafa í huga þegar rætt er um
staðsetningu vallarins. Staðsetning
gervigrasvallar tekur mið af því að
hægt sé að nýta nýja búningsaðstöðu
íþróttahússins og samræmist ályktun
aðalfundar um að Varmársvæðið
verði áfram þungamiðja íþrótta í
Mosfellsbæ.
Við í Aftureldingu mælumst til
þess að bæjaryfi rvöld hefjist handa
án tafar við byggingu gervigrasvallar
við Varmá og stefni að yfi rbyggingu
hans eins fl jótt og auðið er. Eins og
áður segir mun sú framkvæmd ekki
eingöngu koma sér vel fyrir knatt-
spyrnu- og frjálsíþróttafólk heldur
fyrir félagið í heild. Brýnt er að fara í
þetta verkefni strax og dapurt ef settur
er steinn í götu þess.
Elísabet Guðmundsdóttir
formaður aðalstjórnar
Aftureldingar
Erna Reynisdóttir
framkvæmdastjóri
aðalstjórnar Aftureldingar
Gervigrasvöllur við Varmá –
hvers vegna og fyrir hverja?
Leiðbeinendur Vinnuskóla
Mosfellsbæjar:
Störf yfi rfl okksstjóra,
fl okksstjóra og starfsmanns
í umhverfi sfræðslu sem
jafnframt er umsjónarmaður
skólagarða.
Æskilegt er að umsækjendur
hafi reynslu af stjórnun
og reynslu af almennum
ræktunarstörfum.
Lágmarksaldur er 20 ár.
Nánari upplýsingar veitir Atli V.
Bragason, tómstundafulltrúi í
síma 566-6058 milli kl. 11-12.
Störf í íþrótta- og tóm-
stundaskóla Mosfellsbæjar
(sumarnámskeið):
Hópstjórar, stuðningsfulltrúar
og almennir starfsmenn til að
hafa umsjón með og leiðbeina
börnum í skólanum. Æskilegt
er að umsækjendur hafi
reynslu af starfi með börnum.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Guðmundsson,
íþróttafulltrúi í síma 566-6754
milli kl. 11-12.
Störf í þjónustumiðstöð
og garðyrkjudeild:
Störf verkamanna við
garðyrkju og almenn
verkamannastörf.
Nánari upplýsingar veitir
Þorsteinn Sigvaldason,
deildarstjóri tæknideildar
og Oddgeir Þór Árnason,
garðyrkjustjóri í síma 566-8450
virka daga kl. 11–12.
Starf í umhverfi sdeild:
Starf við skönnun teikninga
og innskráningu á gögn-
um í landupplýsingakerfi .
Nauðsynlegt er að umsækjen-
dur hafi lokið stúdentsprófi
frá raungreinadeild eða í
tækniteiknun. Gæti hentað
nemum sem lokið hafa fyrsta
ári í verk- eða tæknifræði. Góð
tölvukunnátta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar gefur
Tryggvi Jónsson, bæjarverk-
fræðingur og Ásbjörn Þorvað-
arson byggingafulltrúi í síma
525-6700 virka daga milli 11-12.
Bingoball
-
Miðvikudagskvöldið 12. apríl
Til styrktar CP samtökum Íslands
CP stendur fyrir heilalömun
Bingóið hefst kl. 22
Dúettinn Hljómur heldur síðan uppi
stuðinu langt fram eftir nóttu
Munið pizza
pizza tilboðið
Boltinn í beinni
Þráðlaust net
frÍtt
inn
Spjaldið
kostar
500 kr.Stórglæsilegir vinningar!
Sumarstörf 2006
Mosfellsbær auglýsir eftirtalin sumarstörf laus til umsóknar:
Umsóknareyðublöð fyrir ofangreind störf liggja frammi í þjónustuveri Mosfellsbæjar á jarðhæð, Þverholti 2.
Umsóknum skal skilað á sama stað. Einnig er hægt að sækja um störfi n á heimasíðu Mosfellsbæjar
www.mos.is. / umsóknareyðublöð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Mosfellsbæjar og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsækjendur skulu vera fæddir 1989 eða fyrr.
Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl nk.