Mosfellingur - 19.05.2006, Blaðsíða 11
Auglýsing frá yfirkjörstjórn í Mosfellsbæ
Boðnir eru fram eftirfarandi framboðslistar við
bæjarstjórnarkosningar í Mosfellsbæ 27. maí n.k.:
Nánari upplýsingar um kosningarnar er að fi nna á www.mos.is
B - listi
Framsóknarfl okksins
1. Marteinn Magnússon
2. Helga Jóhannesdóttir
3. Óðinn Pétur Vigfússon
4. Halldóra M. Baldursdóttir
5. Eva Ómarsdóttir
6. Kristbjörg Þórisdóttir
7. Halla Karen Kristjánsdóttir
8. Óli Kárason Tran
9. Sigríður Sigurðardóttir
10. Leifur Kr. Jóhannesson
11. Kolbrún Haraldsdóttir
12. Eyjólfur Árni Rafnsson
13. Bryndís Bjarnarson
14. Þröstur Karlsson
S - listi
Samfylkingarinnar
1. Jónas Sigurðsson
2. Hanna Bjartmars Arnardóttir
3. Anna Sigríður Guðnadóttir
4. Baldur Ingi Ólafsson
5. Óskar Ingi Sigmundsson
6. Gerður Pálsdóttir
7. Helga Dís Sigurðardóttir
8. Valdimar Leó Friðriksson
9. Aþena Mjöll Pétursdóttir
10. Ragnar Gunnar Þórhallsson
11. Lísa Sigríður Greipsson
12. Aagot Árnadóttir
13. Lárus Haukur Jónsson
14. Guðný Halldórsdóttir
D - listi
Sjálfstæðisfl okksins
1. Ragnheiður Ríkharðsdóttir
2. Haraldur Sverrisson
3. Herdís Sigurjónsdóttir
4. Hafsteinn Pálsson
5. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson
6. Bryndís Haraldsdóttir
7. Bjarki Sigurðsson
8. Agla Elísabet Hendriksdóttir
9. Hilmar Stefánsson
10. Elín Karítas Bjarnadóttir
11. Th eódór Kristjánsson
12. Katrín Dögg Hilmarsdóttir
13. Grétar Snær Hjartarson
14. Klara Sigurðardóttir
V – listi
Vinstrihreyfi ngarinnar
græns framboðs
1. Karl Tómasson
2. Bryndís Brynjarsdóttir
3. Jóhanna B. Magnúsdóttir
4. Elísabet Kristjánsdóttir
5. Bjarki Bjarnason
6. Ólafur Gunnarsson
7. Katrín Sif Oddgeirsdóttir
8. Loftur Þór Þórunnarson
9. Silja Hlín Guðbjörnsdóttir
10. Birgir Haraldsson
11. Guðjón Jensson
12. Ingibjörg B. Ingólfsdóttir
13. Davíð Örvar Hansson
14. Gísli Ársæll Snorrason
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninganna í
Mosfellsbæ 27. maí 2006 mun liggja frammi í
þjónustuveri Mosfellsbæjar að Þverholti 2,
frá og með 17. maí og til 27. maí 2006.
Þar geta íbúar skoðað kjörskrána og ef efni
standa til gert athugasemdir til
sveitarstjórnar fram á kjördag.
Athygli er vakin á því að óheimilt er að breyta
kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili
hefur ekki borist þjóðskrá þremur vikum fyrir
kjördag þ.e. 6. maí 2006.
Mosfellsbæ 15. maí 2006
Bæjarritarinn í Mosfellsbæ
Auglýsing frá
Mosfellsbæ um
framlagningu kjörskrár
Töluvert hefur borið á því í mál-
fl utningi vinstri manna og framsóknar
í kosningabaráttunni að í stjórnartíð
okkar sjálfstæðismanna hafi lýðræði
minnkað og við dregið úr samvinnu
við íbúa og félög við ákvarðanatöku í
hinum ýmsum málum. Ætla ég í fáum
orðum að fjalla um nokkur mál sem
unnin hafa verið í samráði við íbúa.
• Haldnir hafa verið fjölmargir fundir
með íbúum til að kynna fyrirhug-
aðar breytingar á skipulagi í næsta
nágrenni við þá áður en skipulagið
var auglýst og hefur það í sumum til-
fellum leitt til þess að hætt hefur verið
við fyrirhugaðar breytingar.
• Markvisst hefur verið unnnið að því
að gera alla stjórnsýslu opnari og skil-
virkari en áður og er í gangi vinna við
opna rafrænan aðgang íbúa að öllum
gögnum er tengjast þeim.
• Haldnir voru hverfafundir undir
yfi rskriftinni “Hvað fi nnst þér”.
• Haldið var íbúaþing á síðasta ári þar
sem fjölmargir íbúar mættu og létu
sig mál Mosfellsbæjar varða.
• Við tókum upp reglulegan auglýstan
viðtalstíma við bæjarfulltrúa (minni-
hlutann líka) til að gefa bæjarbúum
kost á að hitta kjörna fulltrúa
• Við mótun fjölskyldustefnu hafa ver-
ið teknar ábendingar frá íbúaþinginu
og myndaðir sérstakir rýnihópar til að
fá sjónarmið sem fl estra. Mun stefnan
verða send til allra nefnda og starfs-
manna til skoðunar. Einnig verður
stefnan sett á netsíðu Mosfellsbæj-
ar og óskað eftir athugasemdum og
hugmyndum áður en stefnan verður
samþykkt.
• Vegna áskorunar foreldra á
borgar a fundi um sundlaug á vestur-
svæði hófum við könnun á hag-
kvæmni þess að byggja sundlaug á
vestursvæði og er að rísa glæsileg
íþróttamiðstöð á vestursvæði.
• Við mótuðum reglur varðandi út-
hlutanir lóða. Það er meira en hægt er
að segja fyrri meirihluta sem mótaði
úthlutunarreglur eftir að fólk hafði
sótt um lóðirnar í Höfðahverfi nu.
Til hvers að móta stefnu?
Mótaðar voru ýmsar stefnur í tíð
fyrri meirihluta, rétt eins og við höf-
um verið að gera á því kjörtímabili
sem er að ljúka. Mótuð var heildstæð
skólastefna, atvinnu- og ferðamála-
stefna, markmið Mosfellsbæjar varð-
andi sjálfbæra þróun og hvert við
viljum stefna á 21. öldinni í þeim
málum og er það vel.
• Við erum að vinna við gerð fjöl-
skyldustefnu Mosfellsbæjar sem er
nokkurs konar regnhlífarstefna þar
sem fram koma áhersluatriði allra
þeirra stefnumála sem í gildi eru og
verður þeirri vinnu lokið fl jótlega.
• Við höfum endurskoðað jafnrétt-
isstefnuna í tvígang
• Við erum að vinna eftir aðgerða-
áætlun varðandi úrbætur í aðgengis-
málum í bæjarfélaginu
• Við samþykktum öryggisstefnu
um hámarkshraða útbætur varðndi
hraðakstur svo eitthvað sé nefnt.
Eru stefnur eign meirihlut-
ans á hverjum tíma?
Það er nauðsynlegt að móta stefnu
um ýmis málefni til að hægt sé að
vinna skipulega að settum mark-
miðum, en bíðið við “er stefna stefna
meiri hlutans eða samfélagsins alls?
Ég spurði mig þess eftir að hafa lesið
grein fulltrúa Samfylkingarinnar. Það
er erfi tt að átta sig á því hvað sá full-
trúi var að fara. Er verið að meina að
þau markmið sem við unnum saman
að t.d. varðandi sjálfbæra þróun á 21.
öldinni í Mosfellsbæ, gildi ekki fyrir
sjálfstæðismenn þar sem þetta var
unnið í stjórnartíð núverandi minni-
hluta? Þetta er furðuleg pólitík, enda
get ég fullyrt að ötullega hefur verið
unnið í anda St-21 í þeirri nefnd sem
ég veiti formennsku eða fjölskyldu-
nefnd.
Hvað mig varðar þá á ég mikinn
hluta í stefnunni sem við mótuðum
varðandi St -21 og tók þátt í þeirrri
vinnu af heilindum. Ég ýtti á í um-
hverfi snefndinni að við byrjuðum
stefnumótunarvinnuna og var full-
trúi sjálfstæðismanna í stýrihópi sem
stýrði vinnunni. Ég lagði til að við
færum út í að hvetja skóla okkar varð-
andi grænfána verkefnið og tók þátt
í Vistvernd í verki, og allt þetta vann
ég á meðan ég var í minnihluta, enda
kjörin til að gæta hagsmuna allra
Mosfellinga.
Mig langar að benda fulltrúunum
minnihlutans á að stefnumótun sem
unnin er í sátt og samlyndi getur
auðveldlega endurspeglað sjónarmið
meirihlutans hver sem hann er á
hverjum tíma. En þegar búið er að
samþykkja mál með sjö atkvæðum,
eða öllum greiddum atkvæðum í bæj-
arstjórn þá eru bæjarfulltrúar búnir
að taka ákvörðun um mál sem þeir
telja að komi sér vel fyrir samfélagið
allt í Mosfellsbæ en ekki bara meiri-
hlutann.
Ég treysti kjósendum til að
kynna sér málin og meta sjálfi r störf
núverandi meirihluta á þessu kjör-
tímabili og veita sjálfstæðismönnnum
brautargengi í komandi kosningum.
XD fyrir árangur – ábyrgð – lífsgæði
Við eigum frábæra skóla í Mos-
fellsbæ með metnaðarfullu og hæfu
starfsfólki. Það sinnir ekki aðeins
hefð bundnu skólastarfi heldur vinnur
einnig að árangursríku og krefjandi
þróunarstarfi .
Sjálfstæði skólanna
Frumforsenda frekari árangurs er
að efl a faglegt og fjárhagslegt sjálf-
stæði skólanna, því stjórnendur og
samstarfsfólk þeirra þekkja best inn-
viðina og þarfi rnar. Þeir eiga að hafa
umboð til athafna. Góð starfs skilyrði
eru jafnframt forsenda þess að hægt
sé að tryggja að við skólana starfi
ætíð hið hæfasta fólk í öllum störfum.
Þannig tryggjum við vöxt og viðgang
skólastarfs í Mosfellsbæ. Skólarnir
eiga að vera faglega sjálfstæðir og
ákvarðanir um fyrirkomulag kennsl-
unnar svo sem bekkja- og hópa-
stærðir eru best komnar hjá þeim.
Slíkar ákvarðanir eiga ekki að takast
miðlægt hjá bæjaryfi rvöldum.
Samfélag án aðgreiningar
Skóli án aðgreiningar er eðlileg
hugsun eins og krafan er um þjóðfélag
án aðgreiningar. Kostirnir eru að
sjálfsögðu þeir að öllum nemendum
er veittur aðgangur að skólastarfi án
hindrana og jöfn tækifæri allra tryggð.
Ennfremur fá allir nemendur innsýn
inn í aðstæður ólíkra einstaklinga og
kynnast betur margbreytileika sam-
félagsins. Erfi tt er að tala um galla
í þessu sambandi en þessi nálgun
kallar á mjög mikla sérhæfi ngu starfs-
manna. Auknar kröfur eru gerðar til
þeirra sem þarf að mæta með aukinni
þjálfun. Það er ljóst að samfara þessu
mun kostnaður aukast í skólastarfi en
ógerningur er að nefna tölur í þessu
sambandi.
Þróun starfsskilyrða
Það er ljóst að miklar kröfur eru
gerðar til kennara á öllum skóla-
stigum og þær kröfur munu aukast í
framtíðinni. Því er nauðsynlegt að
skapa þjóðarsátt um vinnutíma og
kjör kennara til samræmis við aðra
háskólamenntaða starfsmenn. Við
erum tilbúin í þá vinnu og sú vinna
þarf að hefjast strax svo unnt verði að
taka mið af þeirri vinnu við endur-
skoðun og gerð næstu kjarasamn-
inga.
Sú þróun sem verið hefur á
íslenskum vinnumarkaði undanfarin
10 ár að draga úr miðstýringu kjara-
mála er eðlileg og æskileg. Kjarasamn-
ingar hafa verið að þróast í þá veru að
leggja meiri áherslu á einstaklinginn,
frumkvæði, hæfni, þekkingu, ábyrgð
og reynslu starfsmanna. Með því
að leggja áherslu á persónubundna
þætti skapast möguleiki á að umbuna
starfsmönnum í samræmi við frammi-
stöðu og árangur. Þau tækifæri sem
felast í nýjum kjarasamningi gera það
að verkum að hægt er að fara nýjar
leiðir og erum við tilbúin að reyna
þær í samvinnu við hlutaðeigandi.
Lærdómurinn sem má draga af síð-
ustu kjarasamningum segir okkur að
nýja aðferðafræði þurfi við gerð kjara-
samninga.
Það er von D-listans að það sé
sameiginlegt markmið allra Mosfell-
inga að efl a enn frekar okkar frábæru
skóla.
Í Mosfellsbæ þar sem allir skipta máli!
Herdís
Sigurjónsdóttir
Forseti bæjar-
stjórn ar og skipar
3. sæti á lista
Sjálf stæðis-
fl okksins
fiJÓ‹VAKI
Skólarnir okkar- nokkrir punktar
Hafsteinn
Pálsson
fiJÓ‹VAKI
Kraftur
og hugmyndir
Tryggjum Karli og Bryndísi
sæti í bæjarstjórn