Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 18
18 Litli-Bergþór
Kæru sveitungar.
Það hefur farið vel af stað starfið í Álfaborg í ár, þrátt
fyrir ýmsar breytingar. Nýr skólastjóri hefur lagt áherslu
á að kynnast samfélaginu, börnum og foreldrum, sem
tilheyrir Álfaborg. Ég upplifi samhug á meðal allra
um að halda áfram með það góða starf sem er unnið í
leikskólanum, sem bæði innra og ytra mat leikskólans
staðfestir. Það frelsi sem náttúran hefur upp á að bjóða
í nærumhverfi leikskólans er ævintýranlegt og börnin
læra hvað mest á því að uppgötva og sjá hversu margt
er hægt að rannsaka hér. Við getum verið stolt af því
að eiga slíkt námsumhverfi.
Álfaborg tók í fyrsta sinn nú í haust á móti eins árs
gömlum börnum. Hefur það gengið vonum framar og
er frábært að fylgjast með forvitnum og móttækilegum
einstaklingum á sínu fyrsta aldursári fylgja starfi
leikskólans. Hópastarfið í leikskólanum er farið af
stað og var ákveðið að nefna aldurshópa leikskólans
eftir trjágróðri. Okkur fannst tilvalið að nefna hópana
eftir trjátegundum þar sem gróðurinn er áberandi í
sveitarfélaginu. Það verður gaman að sjá hvernig það
kemur út í lok vetrarstarfsins og hversu mikil áhrif
gróður og náttúra hafa á þemaverkefni barnanna í
vetur.
Mig langar að nýta tækifærið og þakka góða
kynningu, það verður spennandi og gaman að fá að
tilheyra samfélaginu og takast á við skemmtileg
verkefni.
Með kveðju
Elfa Birkisdóttir,
leikskólastjóri Álfaborgar.
Adda Sóley, Katrín María, Magnús Rúnar, Emelía, Dísa
Ósk einbeitt að smíða í útiveru.
Dísa Ósk, Samúel, kennarinn Sigga Ósk, Nökkvi , Ignacy
Rúnar kríta á stéttina í góða veðrinu.
Skemmtilegt að drullumalla. Halldóra Björk, Vigdís
Fjóla, Katrín María, og Ella Sóley.
Benjamín Óli og Katla í skemmtilegum leik.
Álfaborg