Morgunblaðið - 07.09.2018, Page 6

Morgunblaðið - 07.09.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2018 Tilbúinn til neyslu, en má hita. Afbragðs vara, holl og næringarík. Söluaðilar: Hagkaup, Iceland verslanir, Melabúðin, Nettó, Samkaup kjörbúðir, Samkaup krambúðir og Pure Food Hall í flugstöðinni Keflavík. Heitreyktur lax Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við tökum þátt í þessum þvingunar- aðgerðum gegn Rússlandi í tengslum við aðild okkar að EES-samningnum og á það einnig við um flestallar aðr- ar þvingunar- aðgerðir sem Ís- land tekur þátt í. Stjórnvöld ákváðu að farsælla væri að vera í samfloti með helstu banda- lagsríkjum okkar innan ESB og Bandaríkjunum en að rjúfa sam- stöðuna þó að það kostaði þjóðarbúið nokkuð,“ segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Há- skóla Íslands, við Morgunblaðið. Vísar hann í máli sínu til þvingun- araðgerða flestallra ríkja sem teljast til Vesturlanda gegn Rússlandi vegna ólöglegra aðgerða Rússa á Krím- skaga og í austurhluta Úkraínu. Að sögn Baldurs var í kjölfar samnings- ins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) gert samkomulag á milli ríkja EFTA/EES og Evrópusambandsins (ESB) þess efnis að EFTA-ríkjunum býðst að taka þátt í svokölluðum póli- tískum yfirlýsingum Evrópusam- bandsins. „Evrópusambandið ákveður þess- ar pólitísku yfirlýsingar, s.s. þær sem taka til þvingunaraðgerða, og er Ís- landi, Noregi og Liechtenstein boðið að taka þátt í þeim. Framkvæmdin hefur hins vegar verið þannig að ríkj- unum þremur er tilkynnt um þær og þau spurð hvort þau vilji vera með eða ekki. Og við erum nánast alltaf með,“ segir Baldur. Spurður hvort þetta fyrirkomulag sé ekki á einhvern hátt gagnrýnivert kveður Baldur já við. „Ég hef áður gagnrýnt að ekki sé alvörusamráð á milli ríkja ESB annars vegar og EFTA/EES hins vegar, um þetta og um leið að hér heima eigi sér ekki stað nein alvöru umræða um þátt- töku Íslands í þessum pólitísku yf- irlýsingum,“ segir hann. Vonast eftir góðvild frá Rússum Sumarið 2015 setti Rússland við- skiptabann á vörur frá Íslandi vegna þátttöku í þvingunaraðgerðum Vestur- landa og segir Baldur íslensk stjórn- völd þá hafa ákveðið að hætta að taka þátt í pólitískum yfirlýsingum ESB um þvingunaraðgerðirnar þó Ísland taki virkan þátt í þeim. „Þetta er dálítið sérkennilegt, en ég met það svo að menn séu að reyna að láta lítið fara fyrir sér. Þegar fjölmiðlar erlendis birta fréttir af því að Evrópu- sambandið hafi endurnýjað þvinganir gagnvart Rússlandi eru nöfn Noregs og Liechtenstein á yfirlýsingunni en ekki Ísland. Ég tel að íslensk stjórnvöld hafi með þessu verið að vonast til þess að rússnesk stjórnvöld myndu draga úr þvingunum sínum gegn Íslandi. Það hafa þau hins vegar ekki gert,“ segir Baldur, en ESB framlengdi seinast þvinganir til hálfs árs í júlí sl. Tökum þátt vegna EES-samningsins  Ríki EES/EFTA taka nær alltaf þátt í pólitískum yfirlýsingum Evrópusambandsins  Prófessor í stjórnmálafræði segir gagnrýnivert að ekki sé tekin meiri umræða hér um þátttöku í aðgerðum ESB Morgunblaðið/Eggert Þingsalur Þörf er á meiri umræðu um utanríkismál og alþjóðlega þátttöku. Baldur Þórhallsson Tugir flugvéla, þotur, þyrlur, list- flugvélar, fisflugvélar, svifflugur, einkavélar, drónar og fleira, fljúgandi og á jörðu niðri verður til sýnis á flugsýningunni sem verður á Reykjavíkurflugvelli á morgun, laugardag. Viðburðurinn hefst klukkan kl. 12. Listflug er áberandi á sýning- unni að þessu sinni og verða fremstu listflugmenn landsins í vélum sínum tilbúnir að sýna list- ir sínar yfir vellinum. Sumarið hefur verið fluginu gott og flug- menn því í góðri æfingu eftir flughátíðir víða um land. Einnig verður sýnt fallhlífarstökk. Páll og Boeing Meðal flugvéla sem sýndar verða á morgun eru Páll Sveins- son, Douglas C-47A; best þekkt úr áburðarflugi Landgræðslunnar en áður var hún í eigu Flugfélags Ís- lands og var fyrst skráð á Íslandi árið 1946. Einnig verður sýnd Bo- eing 757 frá Icelandair og ekki er ólíklegt að fleiri áhugaverðar vél- ar verði á svæðinu. „Það er mikil gróska í fluginu á Íslandi um þessar mundir. Flug- félögin hafa ráðið fjölda fólks á síðustu misserum og margir eru í flugnámi. Þetta smitar fljótt út frá sér niður í grasrótarstarfið sem er mjög öflugt um þessar mundir,“ sagði Matthías Svein- björnsson, formaður Flugmála- félags Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Stór viðburður Flugsýningin er með stærri við- burðum í borginni á hverju ári og hafa gestir verið um 8-10 þúsund talsins. Eru gestir hvattir til þess að mæta tímanlega en bílastæði eru við Háskólann í Reykjavík og í nágrenni Reykjavik Natura hót- elsins. Sýningarsvæðið sjálft er á bak við Hótel Natura. Tugir véla á flugsýningu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugdagur Þota úr flota Icelandair.  Listflug, þotur og fallhlífarstökk Guðrún Óla Jónsdóttir gudruno@mbl.is Nýjar tölur Hagstofu Íslands sýna að aðeins 27% þeirra sem störfuðu á leikskóla árið 2017 voru menntaðir leikskólakenn- arar. Ófaglærðir voru 47% og 26% voru með aðra uppeldismenntun. Þá voru leikskóla- kennarar fjöl- mennastir á aldr- inum 40-49 ára, eða 35%. Fæstir voru þeir hins vegar á aldrinum 20-29 ára, eða 2%. Gerð er krafa um það í lögum að tveir þriðju hlutar starfsfólks sem sinnir menntun og uppeldi í leik- skólum séu leikskólakennarar en sú virðist ekki vera raunin. Þarf að breyta viðhorfinu Kristín Dýrfjörð, dósent við Há- skólann á Akureyri, segir framtíð- armarkmiðin alltaf hafa verið þau að allir leikskólakennarar ættu að vera menntaðir sem slíkir og telur að það þurfi átak í launamálum, og ekki síð- ur viðhorfsmálum, til að snúa þróun- inni við. Hún segir mikilvægt að faglærðum fjölgi meðal þeirra sem starfa á leikskólum. Þó séu margir sem þar starfa sem hafi lagt allt sitt í starfið án menntunar og hún vilji alls ekki missa það fólk úr starfi. „Það hafa verið fordómar gagn- vart þessu starfi. Mörgum virðist einfaldlega ekki detta í hug að fara með hvaða próf sem er til starfa á leikskóla. En svo kemst fólk jafnvel að því að eru launin í þessu starfi ekkert endilega verri en í einhverju öðru. Það er jafnvel virðing og spenna við það að fara frekar í önn- ur störf en því þarf að breyta. Það þarf að breyta viðhorfum til þess í hverju starfið er fólgið. Þetta sé spennandi, gefandi og skemmtilegt og með alls konar vaxtamögu- leikum. Það er hægt að gera allt mögulegt í þessu starfi.“ Kristín segir að leikskólum hafi fjölgað hratt í kringum árin 1994-95 og menntunin hafi engan veginn haft við uppbyggingunni. Nýliðun í stéttinni sé líka lítil til þess að gera, þar spili lengri menntun inn í en að auki hafi verið settar strangari kvaðir á allar undanþágur sem höfðu verið veittar þeim sem ekki voru með stúdentspróf á að fara í háskólanám. Oft fleiri faglærðir úti á landi Séu tölur skoðaðar á síðu Hag- stofunnar sést að fleiri faglærðir starfa í leikskólum sums staðar á landsbyggðinni en á höfuðborg- arsvæðinu. Á Norðurlandi eystra voru til dæmis 45% faglærðir en 34% ófaglærðir árið 2017 en á höf- uðborgarsvæðinu á sama tíma voru 25% faglærðir en 49% ófaglærðir. Kristín segir nokkra þætti geta útskýrt þennan mun. „Ég held að atvinnutækifæri eigi þar stóran þátt. Það eru mun fleiri atvinnu- tækifæri á höfuðborgarsvæðinu og þar á fólk með ágætis menntun, sem getur nýst í fleira en starf á leik- skóla, meiri möguleika á að vinna önnur störf. Ef þú ert kominn í gott starf í leikskólanum hjá sveitarfé- lagi þar sem er lítið um atvinnu- framboð þá stekkur fólk ekki í eitt- hvað annað þótt því bjóðist tímabundið starf annars staðar, eins og raunin er kannski í Reykjavík.“ Fordómar gagnvart starfinu  Fleiri ófaglærðir en faglærðir starfa á leikskólum landsins og stétt leikskóla- kennara virðist vera að eldast en nýliðun hefur verið heldur lítil síðustu ár Morgunblaðið/Hari Ekki raunin Lögin kveða á um að tveir þriðju hlutar starfsfólks séu fag- menntaðir en samkvæmt tölum Hagstofun Íslands virðist svo ekki vera. Kristín Dýrfjörð Nýútkomin ljóðabók Matthíasar Jo- hannessen, skálds og fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, Enn logar jökull, hefur fengið góðar við- tökur meðal ljóðaunnenda. Bjarni Harðarson hjá Sæmundi, sem gefur bókina út, segir að hún hafi verið í öðru sæti yfir mest seldu ljóðabæk- urnar samkvæmt lista Eymunds- son í síðustu viku. Í fyrsta sæti er bók Eyþórs Árnasonar, Skepnur eru vitlausar í þetta. Þetta er tuttugasta og sjötta ljóðabók Matthíasar, en hann hefur einnig skrifað leikrit og gefið út fjölda skáldverka annarra, skrifað samtalsbækur og fræðibækur. Í bókinni eru ljóð frá síðustu árum. Ort er um landið, tjaldskör tímans og tekist á við ellina með skírskotun til Egils. Bjarni segir að ljóðabækur séu enn að seljast þrátt fyrir samdrátt í bóksölu. „Þetta eru ekki háar tölur, en áhuginn er til staðar,“ segir hann. „Og Matthías er ekkert gleymdur.“ Varðandi kaupendahópinn bendir hann á að Matthías hafi gefið út ljóðabækur í marga áratugi og margt fólk sem fylgst hefur með honum lengi láti ekki nýja bók frá honum fram hjá sér fara. gudmundur@mbl.is Ný bók Matthíasar fær góðar viðtökur  Á lista yfir mest seldu ljóðabækurnar Skáld Matthías Johannessen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.