Morgunblaðið - 07.09.2018, Page 19

Morgunblaðið - 07.09.2018, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2018 Reykjavík Margir lögðu leið sína á markað sem haldinn var við Laugaveginn í góða veðrinu á dögunum. Það er segin saga að í góðu veðri flykkist fólk út á götur og torg höfuðborgarinnar. Eggert Annars vegar lifum við á tímum þegar fylgjast má með at- burðum um leið og þeir gerast og hins vegar sjá þessa sömu atburði draga dilk á eftir sér mörgum ár- um síðar. Allur heimurinn fylgdist með því árið 2015 þegar hundruð þúsunda manna streymdu frá Mið-Austurlöndum og Norður- Afríku til Evrópu. Sá kostur var fyrir hendi að hefta för þessa fólks norður eftir álfunni og grípa strax til ráðstaf- ana á borð við þær sem nú er beitt af stjórn Ítalíu þegar hún neitar meira að segja fámennum hópum úr björgunarskipum um landvist- arleyfi. Þessi kostur var ekki nýtt- ur heldur var fólkinu heimilað að fara norðar í álfunni. Stjórnvöld Þýskalands og Svíþjóðar opnuðu landamæri sín. Þýskaland Kosið var til þýska sambands- þingsins í fyrra og þar galt Angela Merkel þess að hafa opnað landa- mærin árið 2015. Nú fyrir nokkr- um vikum töldu margir að stjórn Merkel kynni að falla vegna þess að kristilegur samstarfsflokkur hennar í Bæjaralandi (CSU) segði skilið við stjórn hennar með vísan til ágreinings um útlendingamál. CSU-menn vilja sýna íbúum Bæjaralands, fyrir kosningar hjá sér í október, að þeir standi í lapp- irnar í útlendingamálum. Á þann veg reyna þeir að stöðva framgang stjórnmálaafla í Þýskalandi sem hefur vaxið ásmegin vegna fjölgunar inn- flytjenda í landinu. Þar ber hæst flokk- inn Alternative für Deutschland (AfD) (Annar kostur fyrir Þýskaland) sem upp- haflega ætlaði að berj- ast gegn evrunni en snerist gegn útlend- ingum. Í vikunni birt- ist niðurstaða könn- unar sem sýnir AfD annan stærsta flokk Þýskalands með 17% en Jafn- aðarmenn í þriðja sæti með 16%. Arftakar gamla kommúnista- flokksins í Austur-Þýskalandi hafa nú stofnað flokk, Aufstehen (Rísið upp), til að ná í fylgi frá AfD. Út- lendingaóvildin hefur leitt til þess að kjósendur Die Linke (Vinstri) í austurhluta Þýskalands færa sig yfir á AfD. Mótmælin undanfarnar vikur í Chemnitz (fyrrum Karl-Marx- Stadt) í Saxlandi í austurhluta Þýskalands eru sýnilegt merki um útlendingaólguna í Þýskalandi. Þar eru gamlir kommúnistar teknir til við að heilsa að nasistasið fyrir framan risavaxna styttu af Karli Marx til að árétta stefnufestu sína og andúð á útlendingum. Svíþjóð Á sunnudag verður gengið til þingkosninga í Svíþjóð. Spár benda til þess að Svíþjóðardemókratarnir (SD) auki verulega fylgi sitt. Þeir mældust sl. sunnudag með 20% fylgi (fengu 13% 2014). Jafn- aðarmenn mældust með 23,8% (fengu 31% 2014) og Moderaterna (mið-hægri) 17% (fengu 23% 2014). Fylgi uppnámsflokka mælist oft meira fyrir kosningar en úrslit þeirra sýna. Hvort svo er í Svíþjóð kemur í ljós. SD hafa að minnsta kosti siglt öruggan byr í kosninga- baráttunni og haldið trúverðug- leika sínum þótt hart sé að þeim vegið og með þungum orðum. Bar- átta þeirra hefur meðal annars leitt til harðari útlendingastefnu hjá hinum flokkunum í toppsætunum. Margir sænskir jafnaðarmenn líta öfundaraugum til flokkssystk- ina sinna í Danmörku. Mette Frederiksen, formaður danskra jafnaðarmanna, segist ætla að fylgja harðri útlendingastefnu fram að kosningum á næsta ári og eftir þær hvað sem aðrir flokkar vinstra megin við miðju segja. Hún var um tíma dómsmálaráðherra og veit hvað við er að etja vegna innflytj- endavandans. Þremur árum eftir að flótta- og farandfólkið streymdi til Svíþjóðar berast stöðugt fréttir af brenndum bifreiðum, sprengjukasti og skot- bardögum (129 í Stokkhólmi í fyrra, 19 banvænir). Voðaverkin eru oftast unnin í félagslega óhrjá- legum úthverfum þar sem margir innflytjendur búa. Stjórnmálamenn komast ekki hjá því að ræða þessi vandamál í aðdraganda kosning- anna. Um langt skeið ríkti þöggun um þau. Í þessu andrúmslofti vex fylgi Svíþjóðardemókratanna. Um 400.000 manns – 163.000 ár- ið 2015 – hafa sótt um hæli í Sví- þjóð undanfarin sex ár. Hvergi í Evrópu er tala hælisleitenda jafnhá miðað við höfðatölu og í Sví- þjóð. Undir lok síðasta árs fór íbúafjöldinn þar yfir 10 milljón manna markið. Efnahagslega standa Svíar vel að vígi: atvinnuleysi er með því minnsta í áratug og hagvöxtur ætti að verða um 3% í ár með lítilli verðbólgu. Staða ríkissjóðs er góð. Líklega finnst kjósendum bara sjálfgefið að hagkerfið virki vel. Þetta á að minnsta kosti við um þá sem ræða ekki annað en útlend- ingamálin og ætla að leggja SD lið til að herða stefnuna og helst loka alveg á hælisleitendur. Gamalgrónu stóru sænsku flokk- arnir hafa hert útlendingastefnu sína. Vegna ráðstafana rauðgrænu ríkisstjórnar Svíþjóðar fækkaði hælisumsóknum í 26.000 í fyrra. Stefan Löfven, forsætisráðherra jafnaðarmanna, vill enn helminga þessa tölu. Honum er ljóst hve miklu stefna stjórnvalda einstakra landa ræður um hvort fólk leitar þar hælis. Straumnum er að veru- legu leyti stjórnað af smyglurum sem taka stórfé fyrir þjónustu sína. Nú boða stjórnvöld að sænskum lögreglumönnum verði fjölgað um 10.000 og refsingar hertar fyrir af- brot vegna meðferðar skotvopna og fyrir kynferðisafbrot. Hætt verði fjárhagslegri aðstoð við skil- ríkjalausa útlendinga og staðið hraðar að brottvísunum og brott- flutningi þeirra sem neitað er um hæli. Moderatarnir hafa svo lofað að draga úr félagslegri aðstoð við flóttafólk. Óvissa Hér skal engu spáð um úrslit kosninganna í Svíþjóð eða hvers konar stjórn verður mynduð þar að kosningum loknum. Reynslan frá Noregi, Danmörku og Finnlandi sýnir að ekki er auðvelt fyrir flokka með stefnu eins og þá sem SD boðar í útlendingamálum að skapa sér valdasess innan stjórn- mála- og flokkakerfisins. Þetta getur tekið nokkur kjör- tímabil. Norski Framfaraflokk- urinn á nú aðild að ríkisstjórn ann- að kjörtímabilið í röð eftir að hafa verið lengi úti í kuldanum. Danski þjóðarflokkurinn hefur aldrei átt ráðherra í ríkisstjórn en forseti þingsins, Pia Kjærsgaard, er úr röðum flokksins. Hörð stefna flokksins í útlendingamálum er ráðandi í dönskum stjórnmálum. Á þingi Norðurlandaráðs mynda Svíþjóðardemókratar, Danski þjóðarflokkurinn og að minnsta kosti hópur úr Finnaflokknum sér- stakan þingflokk, Norrænt frelsi. Framfaraflokkurinn hefur ekki átt þar aðild en það kann að breytast. Fylgisaukning SD hefur leitt til stefnubreytingar hjá hefðbundnu stóru flokkunum í Svíþjóð. Á sænska þinginu er hins vegar ekki léð máls á samvinnu við SD um stjórn landsins. Að þessu leyti hafa sænskir stjórnmálamenn ekki enn fetað í fótspor Dana, Norðmanna og Finna eða Austurríkismanna og Ítala. Hitt er ljóst að fái SD um 20% fylgi stenst ekki að nota öfga- stimpilinn áfram á flokkinn. Þremur árum eftir að landamæri opnuðust fyrir farand- og flóttafólk í Evrópu fjölgar kjörnum fulltrúum þeirra sem er nóg boðið í útlend- ingamálum. Næsta ár verður kosið til ESB-þingsins í öllum ESB- ríkjunum samtímis þá skýrast þessar nýju línur evrópskra stjórn- mála enn frekar. Eftir Björn Bjarnason » Fylgisaukning SD hefur leitt til stefnu- breytingar í útlendinga- málum hjá hefðbundnu stóru flokkunum í Sví- þjóð. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Þungi útlendingamála í evrópskum stjórnmálum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.