Morgunblaðið - 07.09.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2018
blaðamaður náði tali af Mazur sím-
leiðis fyrr í vikunni lá beint við að
spyrja hvort hún ferðaðist sjálf með
öll hljóðfæri sín milli landa, en því
svaraði hún neitandi. „Hér áður fyrr
meðan flugfélögin studdu betur við
okkur var það hægt. Í dag pakka ég
aðeins því nauðsynlegasta í eina til
tvær töskur og sendi síðan með góð-
um fyrirvara lista yfir það sem mig
vantar – og vona að ég fái spennandi
gripi,“ segir Mazur og bendir á að
hún hafi á löngum ferli komið sér upp
góðu safni af alls kyns bjöllum og
trommum. Á óskalista hennar rata
fyrst og fremst stórir og þungir hlut-
ir sem erfitt er að ferðast með milli
landa, s.s. kongatrommur og ýmiss
konar statív. „Ég hlakka alltaf til að
sjá úr hverju ég hef að moða á nýjum
tónleikastað,“ segir Mazur kímin.
Stefna á plötu fljótlega
Shamania er tiltölulega ung hljóm-
sveit, en hún þreytti frumraun sína á
Copenhagen Jazz Festival árið 2015.
Spurð um tilurð kvennasveitarinnar
rifjar Mazur upp að stjórnendur
Copenhagen Jazz Festival hafi átt
hugmyndina. „Þeir óskuðu eftir því
að ég kallaði saman samstarfskonur
mínar úr Primi Band,“ segir Mazur,
en umrædd kvennasveit sem starfaði
á 9. áratug síðustu aldar var fræg fyr-
ir leikræna nálgun, kraft og hryn-
þunga.
„Það var hins vegar vandkvæðum
bundið að kalla sveitina saman aftur,
þar sem margar kvennanna voru
hættar að koma fram. Ég gat þó ekki
hafnað boðinu og bauðst í staðinn til
að stofna nýja sveit sem ynni eftir
sömu hugmyndafræði,“ segir Mazur,
sem kallaði til liðs við sig tíu norræn-
ar tónlistarkonur sem allar eru virtar
jafnt í heimalöndum sínum sem og á
alþjóða djasssenunni.
„Nú til dags eru fáar sveitir svona
fjölmennar, sem helgast af því að það
er bæði dýrt og vandasamt að skipu-
leggja tónleikahald 11 einstaklinga
sem allir eru mjög virkir í tónlistar-
sköpun sinni og tónleikahaldi,“ segir
Mazur. Engu að síður hefur Sham-
ania komið fram á mörgum af
stærstu djasshátíðum í Evrópu á síð-
ustu árum. „Í fyrra héldum við níu
tónleika en í ár verða þeir aðeins
þrennir. Við stefnum þó á fleiri tón-
leika á næsta ári, ekki síst til að fylgja
eftir plötu sem við hyggjumst senda
frá okkur fljótlega.“
Fleiri konur hasli sér völl
Þú minntist á hugmyndafræði.
Hver er hugmyndafræði Shamania?
„Þegar ég byrjaði að koma fram
sem tónlistarkona á áttunda áratug
síðustu aldar voru konur rétt að
byrja að taka meira pláss á djasssen-
unni og skoða hvers þær væru megn-
ugar í þessum geira. Ég velti því mik-
ið fyrir mér hvort konur nálguðust
tónlistina öðruvísi en karlar og hefðu
annan tón og aðrar áherslur í tón-
sköpun sinni. Þegar ég stofnaði Primi
Band á sínum tíma var markmiðið að
búa til tónlistarlegt samfélag kvenna
þar sem færi gæfist á því að rækta
kvenlega eiginleika og orku sem ekki
tæki útgangspunkt í karllægri djass-
hefð. Við sömdum okkar eigið efni,
gerðum miklar tilraunir með rytma,
líkamann og röddina. Við höfum
þessa sömu nálgun að leiðarljósi í
Shamania. Eins og hljómsveitar-
nafnið gefur til kynna vinnur sveitin
líka með helgiathafnir með vísan í
samfélög fyrri alda þar sem konur
unnu náið saman innan heimilisins.“
Fundið þið fyrir skýrri þörf fyrir
annars konar tónlist en þá sem hefðin
býður upp á?
„Já, tvímælalaust. Það er þörf fyrir
að konur láti til sín taka á sínum for-
sendum í stað þess að ganga inn í
hefðina sem mótuð er af körlum.
Fleiri eru orðnar meðvitaðar um
mikilvægi þess að fleiri konur nái að
hasla sér völl sem hljóðfæraleikarar í
djassspuna. Sögulega séð hafa konur
mun meira séð um söng en hljóð-
færaleik í djassinum,“ segir Mazur
og bendir á að í því ljósi sé Shamania
„Rækta kvenlega
eiginleika og orku“
Slagverksleikarinn Marilyn Mazur leiðir hljómsveit sína
Shamania á tónleikum á Jazzhátíð Reykjavíkur á morgun
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég hlakka til að koma aftur og fá
tækifæri til að spila á Íslandi, enda
heillandi land,“ segir slagverks-
leikarinn, hljómsveitarstjórinn og
tónskáldið Marilyn Mazur sem ásamt
hljómsveit sinni, Shamania, kemur
fram á Jazzhátíð Reykjavíkur. Tón-
leikarnir verða á Grand hóteli annað
kvöld, laugardag, kl. 19.30.
Sveitina skipa auk Mazur þær
Lotte Anker á saxófón, Josefine
Cronholm, söngkona og slagverks-
leikari, Sissel Vera á saxófón og
syngur einnig, Hildegunn Øiseth á
trompet, Lis Wessberg á básúnu,
Makiko Hirabayashi á píanó og
hljómborð, Ida Gormsen á kontra-
bassa, Anna Lund á trommur og Lis-
beth Diers á slagverk auk þess sem
Tine Erica Aspaas dansar í frjálsum
spuna með tónlistarkonunum.
Drottning slagverksins
Mazur hefur einu sinni áður spilað
hérlendis, það var vorið 2010 þegar
Listahátíð var fertug og Jazzhátíð
Reykjavíkur tvítug. Þá kom hún m.a.
fram með trompetleikaranum Nils
Petter Molvær og gítarleikaranum
Eivind Aarset sem hún spilar reglu-
lega með. Í dómi sínum um tón-
leikana sem birtist í Morgunblaðinu
18. maí 2010 skrifaði Vernharður
Linnet að Mazur væri „einn fremsti
slagverksleikari okkar tíma, sem
gert hefur garðinn frægan með Miles
Davis, Jan Garbarek og Wayne
Shorter auk eigin sveita […] Marilyn
Mazur er drottning slagverksins og
maður verður helst að sjá hana sitj-
andi við settið umkringda óteljandi
trommum, gjöllum, hristum, krúsum,
dollum og dóti til að undirbúa sig
undir hljóðgosið er hún framkallar.
[…] Alllt verður henni að hljóði og
settið, gjöllin og bjöllurnar gella svo
salurinn er töfrum sleginn.“ Þegar
Tvennir djasstónleikar verða
haldnir á Akranesi í kvöld, á veg-
um listafélagsins Kalmans, og eru
tónleikastaðirnir óhefðbundnir.
Fyrst halda Sigurður Flosason
saxófónleikari og sænski píanó-
leikarinn Lars Jansson „heima-
tónleika“ að Grundartúni 8. Þeir
Sigurður og Jansson hafa spilað
talsvert saman og verður á tón-
leikunum lögð áhersla á tónsmíðar
þeirra beggja. Þó er sagt líklegt
að „vel valdir, sígildir og sígrænir
ópusar fylgi með. Nánd og heim-
ilisleg stemning munu ramma inn
eftirminnilegan fund þessara
tveggja listamanna.“ Tónleikar
þeirra hefjast kl. 19.15.
Seinni tónleikar kvöldsins hefj-
ast kl. 21.15, í gula húsinu að
Kirkjubraut 8. Þar koma fram
þeir Andrés Þór gítarleikari og
Miro Herak víbrafónleikari frá
Slóvakíu. Þeirra samstarf á sér
líka nokkra sögu. Á tónleikunum
hyggjast þeir leika ljúfan, meló-
dískan nútímadjass og saman-
stendur efnisskráin af blöndu af
lögum þeirra beggja og samtíma
djasstónsmíðum.
Samstarf Miro Herak víbrafónleikari frá Slóvakíu og Andrés Þór
gítarleikari koma fram á öðrum tónleikunum á Akranesi í kvöld.
Djasstónleikar á tveim-
ur stöðum á Akranesi
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fatnaður fyrir fagfólk