Morgunblaðið - 07.09.2018, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2018
Lof mér að falla
Nýjasta kvikmynd leikstjórans
Baldvins Z, gerð eftir handriti
hans og Birgis Arnar Steinars-
sonar. Í henni segir af tveimur tán-
ingsstúlkum, Magneu sem er 15
ára og Stellu sem er 18 ára. Þær
ánetjast fíkniefnum og kynnast
hörðum heimi fíkla og þeirra sem
misnota þá. Örlögin leiða þær
hvora í sína áttina og 12 árum síð-
ar liggja leiðir þeirra óvænt
saman. Með aðalhlutverk fara Þor-
steinn Bachmann, Lára Jóhanna
Jónsdóttir, Sólveig Arnarsdóttir,
Björn Stefánsson, Elín Sif Hall-
dórsdóttir, Eyrún Björk Jakobs-
dóttir, Álfrún Laufeyjardóttir,
Kristín Þóra Haraldsdóttir og
Sigurbjartur Atlason.
The Nun
Hrollvekja í leikstjórn Corin
Hardy. Í myndinni segir af ungri
nunnu sem er send til Rúmeníu
með presti til að rannsaka sjálfsvíg
nunnu í þekktu klaustri í Transylv-
aníu. Þau komast fljótlega að því
að ekki er allt sem sýnist í klaustr-
inu þar sem nunna gengur aftur.
Með aðalhlutverk fara Demián
Bichir, Taissa Farmiga og Jonas
Bloquet. Enga gagnrýni að finna
enn sem komið er.
Útey, 22. júlí
Norsk kvikmynd um fjöldamorð
hryðjuverkamannsins Anders Be-
hring Breivik í Útey 22. júlí 2011,
en þá skaut hann til bana 69 ung-
menni. Áður hafði hann drepið
átta manns og sært yfir 200 með
bílsprengju í miðborg Óslóar.
Kvikmyndin var gerð með einni
töku sem er 72 mínútna löng, jafn-
löng árás Breivik frá því hann hóf
skothríð og þar til hann var hand-
tekinn. Kvikmyndin er byggð á
hinum raunverulegu atburðum.
Með aðalhlutverk fara Andrea
Berntzen, Aleksander Holmen,
Brede Fristad, Elli Rhiannon og
Müller Osbourne og leikstjóri er
Erik Poppe.
Kvikmyndin verður frumsýnd í Bíó
Paradís í kvöld og verða Andrea
Berntzen, aðalleikkona myndar-
innar og Khamshajiny Gunaratn-
am, varaborgarstjóri Oslóar, sem
lifði af árásina í Útey, viðstaddar
frumsýninguna og ávarpa gesti.
Metacritic: 75/100
Bíófrumsýningar
Illska í ólíkum myndum
Fíkn Úr kvikmyndinni Lof mér að falla sem sýningar hefjast á í dag.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík, RIFF, sem hefst 27.
september og lýkur 7. október, fer
ekki eingöngu fram í Bíó Paradís
heldur víðar um höfuðborgina og
þá m.a. í strætisvagni sem mun
kynna hátíðina á ferð sinni um
borgina og verða RIFF-myndir
sýndar í honum, aðallega einnar
mínútu langar stuttmyndir, sem
hentar farþegum vel þar sem þeir
dvelja mislengi í vagninum.
Með dagskrárliðnum „RIFF um
alla borg“ er ætlunin að gera hátíð-
ina sýnilegri og mun hátíðin m.a.
eiga í samstarfi við The One Min-
utes, alþjóðlegt tengslanet sem
helgað er kvikmyndum.
Í tilkynningu frá RIFF segir að
frá árinu 1998 hafi The One Min-
utes framleitt og dreift yfir 17.000
mínútulöngum vídeóverkum eftir
listamenn frá yfir 120 löndum og
verða myndir á vegum tengsla-
netsins sýndar í nokkrum bókasöfn-
um á höfuðborgarsvæðinu, á veit-
ingastaðnum Mandí, í strætó og
víðar.
Þrjár stuttar í bókasöfnum
Eystrasaltslöndin fagna á þessu
ári 100 ára sjálfstæðisafmæli sínu
og í tilefni af því verður boðið upp á
kynningardagskrá í bókasöfnum
um borgina þar sem sýndar verða
þrjár stuttmyndir frá löndunum.
Þær eru By the Pool eftir Laurynas
Bareiša frá Litháen, Manivald eftir
Chintis Lundgren frá Eistlandi og
Blueberry Spirits eftir Astra Zold-
nere frá Lettlandi. Stuttmynda-
dagskráin fer fram klukkan 12.15 í
Bókasafni Kópavogs, Borgar-
bókasafninu í Grófinni og Bóka-
safni Seltjarnarness á völdum há-
tíðardögum.
RIFF um alla borg og hádegisdagskrá
Lundinn Tákn RIFF, lundinn, á merki RIFF í
ár sem vísar í merki Metro Goldwyn Mayer.
Tónlistarmennirnir Andrew
Kirschner og Forest Management
halda tónleika í Mengi við Óðins-
götu í kvöld. Kirschner skapar
hljóðheima sem eru jafnt óværir og
friðsælir, eins og því er lýst í til-
kynningu, og rekur útgáfuna Mis-
take by the Lake sem hefur m.a.
gefið út tónlist Oneohtrix Point
Never.
Tónlist Forest Management er
rafmögnuð og tilfinningaþrungin og
einkennist einkum af lágstemmdum
drónum sem virðast geta dregist út í
eilífðina, eins og segir í tilkynningu.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Óværir og friðsamir hljóðheimar
Rafmagnaður Forest Management.
Nýjar hendur - Innan
seilingar
Bíó Paradís 18.00
Kona fer í stríð
Morgunblaðið bbbbb
Bíó Paradís 22.00
Kvíðakast
Bíó Paradís 18.00, 22.15,
22.20
Söngur Kanemu
Bíó Paradís 20.00
Whitney
Bíó Paradís 17.40, 17.45,
20.00
Utøya 22. júlí
Bíó Paradís 22.00, 22.20
The Nun 16
Presturinn séra Burke er
sendur til Rómar til að rann-
saka dularfullan dauðdaga
nunnu.
Metacritic 55/100
IMDb 6,9/10
Sambíóin Álfabakka 17.10,
17.40, 19.30, 20.00, 21.50,
22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.10
Sambíóin Kringlunni 17.30,
19.40, 21.50
Sambíóin Akureyri 17.30,
20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 17.40,
20.00, 22.20
Lof mér að falla 16
Þegar 15 ára Magnea kynn-
ist 18 ára Stellu breytist allt.
Stella leiðir Magneu inn í
heim fíkniefna sem hefur al-
varlegar afleiðingar fyrir
þær báðar.
Laugarásbíó 16.45, 19.50,
22.40
KIN 12
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40
Alpha 12
Metacritic 63/100
IMDb 7,0/10
Borgarbíó Akureyri 22.00
Crazy Rich Asians
Þegar Rachel Chu fer með
kærastanum til Singapore til
að vera viðsödd brúðkaup
kemst hún að því að hann á
fáránlega ríka fjölskyldu með
myrka sögu.
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Sambíóin Kringlunni 17.00,
19.30
Sambíóin Akureyri 19.30
Sambíóin Keflavík 20.00
Mile 22 16
Hér segir frá sérsveitar-
manninum James Silva sem
fær það erfiða og vanda-
sama verkefni að smygla as-
ískum lögreglumanni úr
landi sínu., en sá hafði leitað
til bandaríska sendiráðsins
um vernd þar sem hann býr
yfir leynilegum upplýsingum.
Laugarásbíó 22.40
The Spy Who
Dumped Me 16
Audrey og Morgan eru bestu
vinkonur sem lenda óvænt í
njósnaævintýri eftir að önn-
ur þeirra kemst að því að
fyrrverandi kærastinn henn-
ar er í raun njósnari.
Metacritic 51/100
IMDb 6,4/10
Laugarásbíó 20.00, 22.25
Össi Össi er mjög heppinn hund-
ur. Hann býr hjá góðri fjöl-
skyldu sem elskar hann af-
skaplega mikið og lifið er
gott. En einn góðan veð-
urdag fer fjölskyldan í ferða-
lag og skilur Össa eftir í
pössun.
Laugarásbíó 17.00
Sambíóin Keflavík 17.50
Christopher Robin Christopher Robin hittir
skyndilega gamlan vin sinn
Bangsimon, og snýr með
honum aftur í ævintýraheim
bernskunnar.
Metacritic 59/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Kringlunni 17.00,
19.10
Sambíóin Akureyri 17.15
Hin Ótrúlegu 2 Helen Teygjustelpu er boðið
nýtt starf sem hún getur
ekki hafnað. Bob Parr, Hr.
Ótrúlegur, þarf að þá annast
Jack-Jack, Dash og Violet á
meðan Teygjustelpa , fer og
bjargar heiminum.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 80/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.30
Eftir að hafa komist lífs af eftir árás 20 metra
hákarls, þá þarf Jonas Taylor að horfast í augu
við ótta sinn, til að bjarga fólki sem er fast í
neðansjávarrannsóknarstöð.
Metacritic 46/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 21.30
Sambíóin Akureyri 22.00
Sambíóin Keflavík 22.30
The Meg 12
Mamma Mia!
Here We Go Again Nú hefur Sophie tekið við
rekstri gistiheimilisins og lær-
ir um fortíð móður sinnar á
sama tíma og hún er ófrísk
sjálf.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 60/100
IMDb 7,3/10
Laugarásbíó 16.30, 20.00
Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30
Mission Impossible -Fallout 16
Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn, eiga í kappi við
tímann eftir að verkefni mis-
heppnast.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 86/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.30
Sambíóin Egilshöll 18.00,
21.00
Sambíóin Kringlunni 22.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio