Morgunblaðið - 07.09.2018, Side 36
*Aðra leið með sköttum. Flugtímabil: jan.–mars 2019.
Valdar dagsetningar og takmarkað magn í boði. Skilmálar gilda: wowair.is/smattletur
VIÐLENDUM
ÍORLANDO!
NÝR WOWFANGASTAÐUR 2018
FRÁ19.999kr.*
SÓLRÍKT OGNÆRANDI
FLÓRÍDAFJÖR
Strendur og skemmtigarðar Flórída bíða í
ofvæni eftir að fá sólþyrsta Íslendinga til að
flatmaga í sandinum, renna sér í rússíbönum
og slá fullkomið teighögg.Skelltu þérmeð alla
fjölskylduna til OrlandomeðWOWair í vetur.
Guðrún Óla Jónsdóttir
gudruno@mbl.is
„Sjúgðu mig Nína hefur verið með
öllu óaðgengileg frá því hún var
sýnd í bíó árið 1985 og það er mikil
stemning fyrir henni, sérstaklega
meðal eldri kynslóðarinnar. Ég hef
sjálfur ekki séð hana og hlakka mik-
ið til að sjá hana á hátíðinni,“ segir
Eyþór Jóvinsson. Hann undirbýr nú
Gamanmyndahátíð Flateyrar sem
verður haldin á Flateyri 13.-16. sept-
ember næstkomandi.
Dramatíkin fær að víkja
Eyþór segir hugmyndina að Gam-
anmyndahátíðinni hafa kviknað þar
sem hann og Ársæll Níelsson voru á
annarri kvikmyndahátíð og þóttu
myndirnar heldur þungar og drama-
tískar.
„Svo kom þarna mynd sem okkur
fannst örlítið fyndin og ég hvíslaði að
Ársæli að við ættum að halda hátíð
þar sem dramatíkin fengi að víkja og
gamanið að ráða. Og við létum verða
af því.“
Á hátíðinni í ár verða sýndar þrjá-
tíu íslenskar gamanmyndir en Ey-
þór segir fleiri viðburði vera á dag-
skrá.
„Meðal annars verður leiksýning
á hátíðinni í fyrsta sinn. Svo býður
Steypustöðin upp á sérstaka barna-
sýningu á myndinni Algjör sveppi og
dularfulla hótelherbergið. Ein að-
alpersóna myndarinnar, Villi vís-
indamaður, verður viðstaddur sýn-
inguna og ræðir myndina við börnin
ásamt því að gera vísindatilraunir.
Við höfum líka haft uppistand og
ýmislegt fleira sem er fyndið og
skemmtilegt.“
Yfirleitt mikið hlegið
Eyþór segir að markmið hátíð-
arinnar sé að hafa gaman af og segja
megi að þetta sé gamansöm hátíð
með kvikmyndir í forgrunni. „Yf-
irleitt er mikið hlegið og létt yfir öll-
um. Stemningin hefur alltaf verið
góð og það er líka markmiðið hjá
okkur að fólk skemmti sér vel.“
Á laugardagskvöldinu er lokahóf
hátíðarinnar og verðlaun veitt fyrir
fyndnustu myndina. „Þetta er áhorf-
endakosning og við leggjum mikla
áherslu á að áhorfendur kjósi þær
myndir sem þeim fundust skemmti-
legastar og fyndnastar þótt það séu
ekki endilega myndirnar sem voru
best útfærðar tæknilega eða best
leiknar og svo framvegis. Heldur
kjósi myndirnar sem glöddu þá
mest. Svo veitum við líka viðurkenn-
ingu fyrir myndina sem var næstum
því fyndnust þannig að það eru veitt
verðlaun fyrir tvö efstu sætin.“
Fullkominn staður
Hátíðin er nú haldin á Flateyri í
þriðja sinn. Af hverju þar?
„Ég er fæddur þar og uppalinn og
það er í raun aðalástæðan, en svo
smellpassar hátíðin bara inn í sam-
félagið á Flateyri. Þetta er hresst og
skemmtilegt samfélag, sýningar-
aðstaðan í bræðslutankinum er
skemmtileg og umhverfið allt gott.
Þetta er bara fullkominn staður fyr-
ir skrýtna og skemmtilega kvik-
myndahátíð.“
Eyþór Jóvinsson á Flateyri Hátíðin fer að mestu fram í 80 ára gömlum bræðslutanki sem stendur á Sólbakka.
Fullkominn staður fyrir
skrýtna kvikmyndahátíð
Gleðin er í fyrirrúmi á Gamanmyndahátíð Flateyrar
Kvikmyndin Lof mér að falla, í leik-
stjórn Baldvins Z, hefur verið valin
til þátttöku á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Busan í S-Kóreu
sem fram fer 4.-13. október og þyk-
ir ein sú virtasta í Asíu. Kvikmyndin
tekur þátt í þeim hluta hátíðarinnar
sem nefnist World Cinema og er hér
um Asíufrumsýningu hennar að
ræða. Myndin var sýnd á kvik-
myndahátíðinni í Toronto í Kanada í
gær, forsýnd hérlendis á þriðjudag
og fer í almennar sýningar í dag.
Lof mér að falla sýnd á
kvikmyndahátíð í Busan
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 250. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Morgunblaðið heldur áfram að
kynna liðin í Olísdeild karla í hand-
knattleik í dag og nú eru það þau
fjögur lið sem spáð er fimmta til
áttunda sæti. FH-ingar hafa misst
marga leikmenn. Afturelding von-
ast til að losna við meiðsladraug-
inn. ÍR er með marga efnilega leik-
menn. Rúnar Sigtryggsson á að
koma Stjörnunni ofar. »2-3
Enda þessi lið í fimmta
til áttunda sæti?
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Færeyski tónlistarmaðurinn Kári
Sverrisson heldur tónleika í kapellu
aðalbyggingar Háskóla Íslands í
dag kl. 12. Kári er bæði þekktur og
vel metinn tónlistarmaður í heima-
landi sínu og þá fyrir fallegar tón-
smíðar og innsæi þegar kemur að
tónlistararfleifð eyjanna.
Arnar Eggert Thoroddsen, að-
junkt við náms-
braut í fé-
lagsfræði og
dægurtón-
listar-
fræðingur,
kynnir Kára
og setur list
hans og feril í
sam-
hengi.
Þekktur og mikils
metinn í Færeyjum