Morgunblaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2018 Veður víða um heim 10.9., kl. 18.00 Reykjavík 9 skýjað Bolungarvík 8 alskýjað Akureyri 9 alskýjað Nuuk 5 léttskýjað Þórshöfn 11 alskýjað Ósló 16 léttskýjað Kaupmannahöfn 18 skýjað Stokkhólmur 15 rigning Helsinki 17 skýjað Lúxemborg 24 heiðskírt Brussel 22 léttskýjað Dublin 15 rigning Glasgow 13 rigning London 20 léttskýjað París 24 heiðskírt Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 19 skýjað Berlín 24 heiðskírt Vín 25 heiðskírt Moskva 17 heiðskírt Algarve 26 léttskýjað Madríd 27 léttskýjað Barcelona 24 rigning Mallorca 28 léttskýjað Róm 26 heiðskírt Aþena 27 léttskýjað Winnipeg 18 heiðskírt Montreal 13 alskýjað New York 15 rigning Chicago 19 léttskýjað  11. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:40 20:10 ÍSAFJÖRÐUR 6:41 20:19 SIGLUFJÖRÐUR 6:24 20:02 DJÚPIVOGUR 6:08 19:40 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á miðvikudag Breytileg átt 3-8 m/s, víða skýjað og sums staðar dálítil væta. Hiti 5 til 11 stig. Á fimmtudag og föstudag Rigning um landið norðanvert, bjart að mestu syðra. Fremur hæg breytileg átt, en vestlæg átt 5-13, hvassast allra syðst. Súld eða rigning með köflum austantil á landinu, en annars víða skúrir, einkum síðdegis. Hiti 6 til 13 stig. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Nemendur 10. bekkjar í þremur grunnskólum sem urðu fyrir barðinu á tæknilegum vandamálum við fyrirlagningu samræmdu próf- anna í vor þreyttu prófin að nýju í gær. Nemendur fengu val um hvort þeir myndu þreyta prófin aftur og samkvæmt upplýsingum frá Menntamálastofnun þreyttu 49 nemendur próf í gær. Langflestir grunnskólar landsins héldu endur- tekningarprófin í maí en rúmlega 10 skólar ákváðu að halda þau nú í september og fá skólarnir fjóra daga til að leggja fyrir próf í ís- lensku og ensku. „Þessa vikuna er- um við að klára þessa ákvörðun ráð- herra um að nemendur fengju að taka prófin aftur, semsagt endur- tekningarpróf. Hluti skólanna tók prófin í byrjun maí og hluti er að taka þau núna,“ segir Sverrir Ósk- arsson, sviðstjóri hjá Menntamála- stofnun. Örfáir skólar ekki með próf Nemendur hafa val um endurtekt eður ei en skólinn verður að verða við ósk nemenda ef þeir kjósa að taka prófin. Að sögn Sverris voru örfáir minni skólar með enga nem- endur sem óskuðu eftir endurtekt. „Það eru svo einstaka börn sem tóku prófin en vilja taka aftur og próftaka gekk vel í bæði skiptin. Það tóku um 120 til 130 skólar þetta í maí en nú eru bara 15 eftir af þess- um fyrrverandi níunda bekk, núver- andi tíunda bekk,“ segir Sverrir en 10 skólar verða með prófin í vik- unni. Hann segir að svipaður fjöldi nemenda muni þreyta prófin næstu daga þ.e. um 50 á dag. Próftakan gekk vel fyrir sig í gær og kom ein- ungis upp eitt smávægilegt vanda- mál sem Menntamálastofnun leysti samstundis. „Við fengum bara eitt símtal. Þá vantaði nemanda próf- kóða en það var nemandi sem var í öðrum skóla í maí og var kominn í nýjan skóla núna og ekki búið að senda prófkóðann á milli skóla og því var reddað,“ segir Sverrir. Setja enga pressu á nemendur Nemendur í Réttarholtsskóla þreyttu próf í ensku í gær og taka íslenskuprófið í dag. Að sögn Mar- grétar Sigfúsdóttur, skólastjóra í Réttarholltsskóla, gekk próftakan vel og rúmlega einn þriðji nemenda skráði sig í prófin. Nemendur í Garðaskóla munu svo þreyta fyrsta prófið sitt í dag en að sögn Bryn- hildar Sigurðardóttur skólastjóra eru afar fáir nemendur skráðir í prófið. „Það eru fáir skráðir og þeim hefur fækkað eitthvað. Þau eru að verða teljandi á fingrum annarrar handar,“ segir Brynhildur og bætir við að engin pressa hafi verið lögð á nemendur skólans til að taka prófin að nýju. „Í okkar skóla var engin pressa á nemendur og við ræddum það í vor að prófin væru af ýmsum ástæðum orðin marklaus, bæði vegna inni- halds þeirra, ágalla í framkvæmd- inni og vegna þess að þau hafa svo lítið vægi út á við. Þau skipta ekki máli fyrir námsferil nemenda eða annað slíkt,“ segir Brynhildur og bætir við að tilgangur prófanna og markmið sé nú í endurskoðun. Þreyta samræmd próf að nýju  Þrír skólar buðu nemendum upp á endurtekningu á samræmdu prófunum í gær  Alls tóku 49 nem- endur próf  10 skólar bjóða upp á endurtekt í vikunni  Langflestir héldu endurtektarprófin í vor Morgunblaðið/Eyþór Skólamál Síðustu nemendurnir ljúka við samræmd próf í vikunni. Bæjarráð Kópa- vogs hefur ákveðið að leita samninga við Ís- lenska gáma- félagið hf. um að annast sorphirðu í bænum til árs- ins 2021. Fyrir- tækið var lægst- bjóðandi í útboði sem auglýst var á Evrópska efnahagssvæðinu. Tvö tilboð bárust; Íslenska gámafélagið bauðst til að hirða sorpið fyrir 614 milljónir og Gáma- þjónustan vildi fá tæpar 810 millj- ónir fyrir sama verk. Kostnaðar- áætlun ráðgjafa bæjarins hljóðaði upp á 739 milljónir þannig að lægsta tilboð var 125 milljónum undir áætlun. Tvöfalt fleiri tunnur Verkið felst í tæmingu á öllum sorp- og endurvinnsluílátum bæj- arins við íbúðarhúsnæði í Kópa- vogi ásamt flutningi til móttöku- stöðvar. Íslenska gámafélagið hefur ann- ast sorphirðuna undanfarin ár. Sorpílátum hefur fjölgað mjög. Í fyrra útboði voru 7.800 tunnur og önnur ílát en nú eru þau 15.600. Fjölgunin er mest vegna endur- vinnslutunna. Samningur bæjarins og Íslenska gámafélagsins tekur gildi þegar frestur til að kæra útboðið er lið- inn, samkvæmt upplýsingum Kópa- vogsbæjar. helgi@mbl.is Tilboð í sorphirðu í Kópavogi 125 millj- ónum undir áætlun Rusl Mikill munur var á tilboðum. Fulltrúar Reykjavíkurborgar og Sjómannadagsráðs, eiganda Hrafn- istu, undirrituðu í gær samning um rekstur hjúkrunarrýma og dagdval- ar við Sléttuveg í Fossvogi í Reykja- vík. Áður hafði borgin samið við vel- ferðarráðuneytið um byggingu hjúkrunarheimilisins og leitað í kjöl- farið til Sjómannadagsráðs og Hrafnistu um að hafa umsjón með framkvæmdinni fyrir sína hönd. Samningurinn sem gerður var kveður á um að Hrafnista reki 99 hjúkrunarrými á fimm hæðum við Sléttuveg. Hrafnista skuldbindur sig til að reka heimilið á sem hagkvæm- astan hátt, en þó alltaf með velferð íbúa að leiðarljósi. Sambyggð hjúkrunarheimilinu, sem verður tilbúið eftir ár héðan í frá, verður þjónustumiðstöð sem Sjómannadagsráð reisir. Þar mun Hrafnista starfrækja 30 dagdvalar- rými fyrir Reykjavíkurborg. Auk þess verður þar ýmis þjónusta sem nýtist íbúum á svæðinu. Samið um nýtt hjúkrunarheimili  Alls 99 hjúkrunarrými og dagdvöl Hrafnista Borgin samdi við Sjómannadagsráð um reksturinn og starfið. Sigurður Bogi Sævarsson Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Nærri fjórðungur pilta og þriðj- ungur stúlkna sem voru í fram- haldsskóla árið 2016 hafði þá hug- leitt sjálfsvíg, eða alls 2.834 ungmenni. Það sama ár höfðu 12% stelpna í framhaldsskólunum gert tilraun til að svipta sig lífi. Þetta kemur fram í skýrslu frá Embætti landlæknis sem var birt í gær á málþingi á Alþjóðadegi sjálfsvígs- forvarna. Í skýrslunni er sjónum beint að sjálfvígshugsunum og -tilraunum ís- lenskra ungmenna – svo og sjálf- skaða og hugsunum þar að lútandi. Skýrslan byggist á könnunum um þetta efni sem hafa verið gerðar reglulega frá aldamótum. Og staðan er sú að frá 2000-2016 hélst hlutfall framhaldsskólapilta sem sögðust hafa gert tilraunir til þess að svipta sig lífi á bilinu 5-7%. Hlutfallið rokkaði meira hjá stúlkunum. Alls 40% stelpna og 26% drengja sögðu að einhver nákominn þeim hefði gert tilraun til sjálfsvígs. Sterkustu áhrifaþættir sjálfvígs- hugsana voru þunglyndi, reiði, það að einhver annar segði viðkomandi frá sjálfsvígshugsunum sínum, kyn- ferðisofbeldi og lítill stuðningur for- eldra. – Ungmenni af erlendum uppruna í erfiðri félagslegri stöðu og samkynhneigð ungmenni voru öðrum líklegri til sjálfsvígstilraun- ar. Á ráðstefnunni í gær tilkynnti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra þá ákvörðun sína að ráðu- neytið verði 25 milljónir króna til að framfylgja aðgerðaáætlun í sjálfsvígsforvörnum. Starfshópur sem hafði það hlutverk að fara yfir gagnreyndar aðferðir til að fækka sjálfsvígum og tilraunum skilaði til- lögum að aðgerðaáætlun í maí á þessu ári. Aðgerðaáætlunin inni- heldur yfir fimmtíu tillögur í sex flokkum og hefur heilbrigðisráð- herra fallist á þær allar. Svandís sagði ennfremur á fundinum í gær geðheilbrigðismál brýn og aðkall- andi og mikilvægt væri að hugsa um fólkið en ekki bara kerfin. Allt að fjórðungur hugleitt sjálfsvíg  Aukið fé veitt til forvarnamálanna Morgunblaðið/Eggert Stuðningur Aðkallandi málefni, segir Svandís Svavarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.