Morgunblaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2018 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is fyrir heimilið VifturHitarar LofthreinsitækiRakatæki Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við skorum á stjórnvöld að koma inn í þetta mál. Margar stofnanir ríkisins koma að en vinna hver í sínu horni. Það þarf meira samstarf til þess að hægt sé að stöðva brotastarfsemi strax og fyrsta stofnun mæti á vett- vang en hlutirnir dragist ekki þar til næsta stofnun fær málið til sín,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands (SGS), um aðgerðir gegn félagsum undirboðum og brotastarfsemi á vinnumarkaði. Málið var mikið rætt á formanna- fundi sambandsins sem fram fór á föstudag. „Kom í ljós að meira eða minna öll aðildarfélögin hafa rekið sig á. Það er greinilega vandamál að ver- ið er að svindla á öllum kerfum,“ seg- ir Björn. Brotið á starfsfólki Í ályktun frá fundinum eru nefnd eftirfarandi atriði: Ólögleg sjálfboða- liðastarfsemi, launastuldur, ófull- nægjandi ráðningarsamningar, mis- notkun á vinnandi fólki, brot á ákvæðum um hvíldartíma, óviðun- andi aðbúnaður og misnotkun í tengslum við útleigu íbúðarhúsnæðis í eigu atvinnurekanda. Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS, nefnir nokkur dæmi. Öll snúa þau að fólki sem kemur frá útlöndum til að vinna hér, aðallega í byggingar- iðnaði og ferðaþjónustu. Fólk sem kemur hingað til lands er látið vinna 12 til 16 tíma á dag, jafnvel án þess að fá yfirvinnu greidda, það fær fáa frídaga og er látið búa í óvið- unandi húsnæði. Nýlegt dæmi er um mann sem hol- að var niður í húsnæði með mörgum öðrum án þess að vera boðið upp á læsta hirslu. Ástandið á öðrum íbúum var allavegana, meðal annars vegna neyslu fíkniefna, og viðkomandi taldi öryggi sínu ógnað. Þessi starfsmaður var ekki skráður inn í landið og því á eigin vegum og engin félagsþjónusta til að grípa hann. Verkalýðsfélögin gera það sem þau geta til að hjálpa til og ganga stundum inn í hlutverk fé- lagsráðgjafa. Dæmi er um sjálfboðaliða sem koma til landsins og halda að þeir eigi að vinna fimm tíma á dag en eru sett- ir í fulla vinnu og rúmlega það. Þeir sem koma með þessum formerkjum eru ótryggðir og reynt er að kreista hvern einasta blóðdropa úr þeim og stela vinnuframlagi þeirra. Sektað fyrir launastuld Í ályktun formannafundarins er þess krafist að stjórnvöld grípi til að- gerða enda hafi stéttarfélögin tak- mörkuð úrræði til þess. Nefnt er að samræma þurfi og þétta vinnustaða- eftirlit. Björn nefnir að margar stofnanir komi að málum, Vinnueftirlitið, Vinnumálastofnun, Ríkisskattstjóri og lögreglan, auk stéttarfélaganna. Hann segir að stofnanir ríkisins vinni ekki nógu vel saman og hver um sig sé bundin sínu hlutverki. Samtökin segja að formgera þurfi samráð og samstarf og styrkja stoðir eftirlitsins þannig að fulltrúar stofnana geti einnig haft eftirlit með aðbúnaði og kjörum vegna húsnæðis sem atvinnu- rekandi leigir fólkinu. Björn bendir á að engin viðurlög séu við því að greiða ekki rétt laun á réttum tíma, það sem kallað er launa- þjófnaður í ályktun sambandsins. Tekur Björn fram að sumt sé gert af vanþekkingu en annað vísvitandi. Verkalýðsfélögin séu sífellt að rukka þessi laun eftirá fyrir félagsfólk. Vandamálið hafi farið vaxandi síðustu þrjú árin en hann telur að ástandið hafi verið verst í sumar. Ráð Starfsgreinasambandsins er að vinnuveitendum sem vísvitandi stela launum af starfsfólki verði refs- að með sektargreiðslum. Samræma þarf allt eftirlit á vinnustöðum  Krefjast aðgerða gegn félagslegum undirboðum og brotum Morgunblaðið/Ómar Byggingarvinna Misjafnt er hversu vel eða illa vinnuveitendur koma fram við starfsfólk sitt. Verkalýðsforingjar standa í ströngu. Myndin er úr safni. Umræður Björn Snæbjörnsson og Drífa Snædal forystumenn í SGS. Alfons Finnsson Ólafsvík Það var hátíðleg stund á dvalar- heimilinu Jaðri í Ólafsvík síðastliðinn föstudag þegar félög og fyrirtæki í Snæfellsbæ færðu heimilinu tvö þrekhjól að gjöf. Ásbjörn Óttarsson lýsti aðdrag- anda gjafanna fyrir hönd gefenda og sagði meðal annars að síðastliðinn áratug hefðu verið haldin kútmaga- kvöld einu sinni á ári í Röst á Hellis- sandi. Allur hagnaður af þeim hefur verið lagður inn á bók og þegar upp- hæðin var komin upp í 500 þúsund krónur var farið að huga að gjöfum. Þá var ákveðið að nota peningana í að kaupa þrekhjól fyrir Jaðar, en þegar til kom voru þessi tæki í dýrari kant- inum og því var talað við fyrirtæki og félög í Snæfellsbæ um að styrkja þetta verkefni enn frekar og voru all- ir þeir sem talað var við mjög jákvæð- ir. „Þessi þrekhjól eru af bestu gerð og vonandi koma þau heimilisfólki að góðum notum,“ sagði Ásbjörn. Síðan afhenti Sigurður Kristjónsson, heim- ilismaður á Jaðri og fyrrverandi skip- stjóri og útgerðarmaður, einn af upphafsmönnum kútmagakvöldsins, Ingu Jóhönnu Kristinsdóttur, for- stöðukonu Jaðars, gjafirnar. Jaðar í Ólafsvík fær góðar gjafir Morgunblaðið/Alfons Finnsson Góðar gjafir Sigurður Kristjónsson sem er heimilismaður á Jaðri afhendir Ingu Jónu Kristinsdóttur gjafirnar sem munu koma að góðum notum. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Spölur stefnir að því að afhenda Vegagerðinni Hvalfjarðargöng til eignar og rekstrar sunnudaginn 30. september nk. Innheimtu veggjalds verði hætt föstudaginn 28. sept- ember eða eftir rúman hálfan mánuð. Spölur mun á næstu mánuðum gera upp við viðskiptavini sína. Fyrirtækið mun taka við veglyklum gegn 3.000 króna skilagjaldi, taka við og endurgreiða ónotaða afsláttar- miða og greiða út inneignir á áskriftarreikningum notenda veg- lykla. Viðskiptavinir hafa frest til 30. nóvember til að skila veglyklum og afsláttarmiðum. Áskriftarsamningar Spalar eru liðlega 20 þúsund og yfir 53 þúsund veglyklar eru í umferð. Í ljósi þess að uppgjörsmálin skipta tugum þúsunda áskilur Spölur sér lengri frest en 30 daga til að afgreiða þau öll. Áskrifendur geta skilað veglyklum á nokkrum þjónustustöðvum og fá skilagjaldið greitt inn á bankareikn- inga sína. Upplýsingar um þjón- ustustöðvar má finna á spolur.is. Stjórn Spalar tilkynnti hluthöfum félagsins ákvörðun sína bréflega á föstudag en tekur jafnframt fram að tímasetningin sé kynnt að þeim for- sendum gefnum að Ríkisskattstjóri fallist á tiltekna meðferð á skatta- legri afskrift ganganna og í öðru lagi að Samgöngustofa skili fyrirvara- lausri úttekt á göngunum í aðdrag- anda eigendaskiptanna. Fram kemur í frétt á heimasíðu Spalar að stjórn fyrirtæksins hafi í júní síðastliðnum leitað álits Ríkis- skattstjóra á því hvernig fara skyldi með skattalega afskrift ganganna og hugsanlega skattlagningu Spalar á árinu 2018. „Svar hefur ekki borist við erindinu en þess er vænst að við- unandi botn fáist í málið í tæka tíð svo unnt sé að afhenda göngin í lok september,“ segir í fréttinni. Félaginu Speli verður slitið Hlutafélagið Spölur var stofnað á Akranesi 25. janúar 1991. Fram- kvæmdir við göngin hófust 30. maí 1996 og þau voru opnuð til umferðar 11. júlí 1998. Í lögfestum samningum var frá upphafi kveðið á um að veg- farendur greiddu fyrir göngin með veggjöldum og að Spölur myndi af- henda ríkinu mannvirkið skuldlaust. „Spölur hafði þann tilgang einan að undirbúa og sjá um framkvæmdir í Hvalfirði og eiga og reka Hvalfjarð- argöng. Félaginu verður slitið 2019 og það heyrir þá farsælli sögu til,“ segir á heimasíðunni. Hluthafar Spalar eru 45 og þeirra stærstir eru: Faxaflóahafnir 23,5%, Ríkissjóður Íslands 17,6%, Elkem Ís- land 14,7%, Hvalfjarðarsveit 11,6%, Vegagerðin 11,6% og Akraneskaup- staður 8,7%. Ljósmynd/Atli Rúnar Hvalfjarðargöng Gjaldtöku verður hætt föstudaginn 28. september. Spölur innkallar 53 þúsund veglykla  Hætt að rukka gjald 28. september

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.