Morgunblaðið - 11.09.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2018
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Jón Birgir Eiríksson
Arnar Þór Ingólfsson
Ríkisstjórnin kynnti í gær aðgerða-
áætlun í loftslagsmálum fyrir árin
2018-2030. Markmiðið er að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda af
mannavöldum þannig að Ísland
standi við alþjóðaskuldbindingar sín-
ar samkvæmt Parísarsamningnum,
en áætluninni er einnig ætlað að
styðja við stefnu stjórnvalda um kol-
efnishlutleysi hér á landi fyrir árið
2040.
Á næstu fimm árum verður 6,8
milljörðum króna varið til sérstakra
aðgerða í loftslagsmálum hér á landi,
4 milljörðum til kolefnisbindingar,
1,5 milljörðum króna til uppbygging-
ar innviða fyrir rafbíla, rafvæðingar
hafna og fleiri nauðsynlegra aðgerða
í orkuskiptum, um 500 milljónum
króna til nýsköpunar vegna lofts-
lagsmála í gegnum nýjan sjóð, Lofts-
lagssjóð og um 800 milljónum króna í
margvíslegar aðgerðir, svo sem
rannsóknir á súrnun sjávar og aðlög-
un að loftslagsbreytingum, bætt kol-
efnisbókhald, alþjóðlegt starf og
fræðslu á sviði loftslagsmála.
Orkugjafanum verði skipt út
Lagðar eru fram 34 aðgerðir sem
flestar eru hluti tveggja meginmark-
miða: Orkuskipta í samgöngum og á
öðrum sviðum og átaki í kolefnis-
bindingu og bættri landnotkun.
Stefnt er að því að losun frá vega-
samgöngum verði 500.000 tonn árið
2030, helmingi minni en nú.
Meðal ellefu aðgerða til orku-
skipta í vegasamgöngum er að ný-
skráningar bensín- og díselbifreiða
verði óheimilar árið 2030, þó með til-
teknum undantekningum, og að út-
tekt verði unnin á mögulegum ávinn-
ingi þess að ráðast í tímabundið átak
við úreldingu bifreiða sem ganga
fyrir jarðefnaeldsneyti, í því skyni að
flýta fyrir orkuskiptum í vegasam-
göngum. Einnig að stutt verði við
innviði fyrir rafbíla og aðrar vist-
vænar bifreiðar, sérstakt átak verði
gert til að nýta metan frá urðunar-
stöðum sem eldsneyti, innviðir fyrir
rafhjól og reiðhjól verði bættir og að
almenningssamgöngur og deilihag-
kerfi í samgöngum verði efld. Til við-
bótar eru sex tillögur að aðgerðum í
orkuskiptum í öðrum geirum, m.a. í
flugsamgöngum og í tengslum við
siglingar og rekstur hafna.
Í kolefnisbindingu eru fimm að-
gerðir lagðar til. Efling nýskógrækt-
ar og landgræðslu til kolefnisbind-
ingar eru þar á meðal. Þá er lögð
áhersla á að takmarkanir á fram-
ræslu votlendis verði hertar og eft-
irlit bætt og átak gert í endurheimt
votlendis. Einnig verður hafið sam-
starfsverkefni með sauðfjárbændum
um minni losun kolefnis og aukna
bindingu við búskap og landnotkun.
Efnahagslegt sjálfstæðismál
Sjö ráðherrar stóðu að fundinum í
gær, þeirra á meðal Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, umhverfisráðherra,
sem sagði verkefnið risavaxið og að
með áætluninni væru tekin fyrstu
skrefin í að umbylta samgöngukerf-
inu með því að skipta úr olíu yfir í
aðrar og umhverfisvænni leiðir til að
knýja það áfram.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, sagði í ræðu sinni
að áætlunin væri ekki aðeins til þess
fallin að takast á við þær áskoranir
og ógnir sem steðjuðu að mannkyn-
inu vegna loftslagsbreytinga, heldur
myndi hún einnig stuðla að betra lífi
og sjálfbærari tilveru á Íslandi.
„Það er í því fólgið stórkostlegt
tækifæri fyrir okkur ef við náum að
taka þessar tæknibreytingar okkur
til handargagns við að byggja sam-
göngur í landinu á sjálfbærum inn-
lendum orkugjöfum, í stað þess að
sækja orkuna til annarra landa í
formi olíu. Það er eitt og sér efna-
hagslegt sjálfstæðismál,“ sagði hann
í samtali við mbl.is í gær.
Slagkraftur með fjármagninu
Nokkrir ráðherranna nefndu að
auknar fjárveitingar til loftslags-
mála væri til marks um alvöru um
málaflokkinn. Katrín Jakobsdóttir,
forsætisráðherra, sagði að straum-
hvörf hefðu orðið í fjárveitingum til
loftslagsmála. „Þau birtust auðvitað
í fjármálaáætluninni okkar síðastlið-
ið vor og í síðustu fjárlögum, en það
má segja að nú sé það staðfest
hvernig við ætlum að verja þessum
fjármunum og það skiptir auðvitað
máli að fjárfesta í þessum gríðarlega
mikilvægu málaflokkum,“ sagði hún.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
sagði tækifæri felast í því að orku-
skipti væru efnahagslega jákvæð að-
gerð fyrir Ísland vegna gjaldeyris-
sparnaðar. Með því að nota
endurnýjanlega orku sem framleidd
væri hér á landi lækkaði rekstrar-
kostnaður ökutækja umtalsvert og
ávinningurinn kæmi neytendum til
góða. Eftir sem áður mætti standa
undir vegakerfinu með gjaldtöku.
Nefndi hann að net rafhleðslustöðva
þyrfti að þétta með hjálp einkaaðila.
Þannig gætu bændur jafnvel fram-
leitt eigin orku með afgasi af mykju
og sett upp hleðslustöðvar.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, sagði
gríðarlegan áhuga meðal bænda á
því að gera betur á sviði loftslags-
mála. Nefndi hann að von væri á til-
lögum frá sauðfjárbændum um kol-
efnisbindingu og sambærileg vinna
væri í öðrum búgreinum einnig.
Blásið til sóknar í loftslagsmálum
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum 2018-2030 kynnt í gær Áherslan á orkuskipti og kolefnisbindingu
Bensín- og dísilbílar verði bannaðir fyrir árið 2030 Fyrstu skrefin að umbyltingu samgöngukerfisins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Loftslagsmál Sjö ráðherrar ríkisstjórnarinnar boðuðu til blaðamannafundar í gær þar sem kynnt var ný aðgerða-
áætlun í loftslagsmálum. 6,8 milljörðum verður varið í sérstök verkefni í tengslum við loftslagsmál næstu fimm ár.
Skógræktin og Landgræðsla rík-
isins fá stórt hlutverk í kolefnisbind-
ingu samkvæmt aðgerðaáætlun í
loftslagsmálum. Að sögn Þrastar
Eysteinssonar, skógræktarstjóra, er
þegar hafin vinna við að undirbúa
kolefnisbindingu næstu tveggja ára.
Á næsta ári fær hvor stofnun um
100 milljónir króna úr ríkisjóði „Við
höfum starfshópa sem vinna nú að
því að skipuleggja þetta, þ.e. hvað
við viljum gera og hvar við viljum
helst bera niður,“ segir hann, en von
er á niðurstöðu innan fárra vikna.
Fyrri verkefni verði efld
Verkefni Skógræktarinnar og
Landgræðslunnar verða fjölbreytt á
næstu árum og er ætlunin að efla
nytjaskógrækt á bújörðum, skóg-
rækt á löndum stofnananna, land-
græðsluskógrækt o.fl. „Fjármagnið
verður notað til að styrkja einhver
verkefni sem fyrir eru, t.d. sam-
starfsverkefni á borð við Heklu-
skóga og Þorláksskóga. Það blasir
við að auka aðgerðir á þeim stöðum,“
segir Þröstur, en óráðið er hvaða
verkefni önnur verði ráðist í, sem áð-
ur sagði. Þröstur nefnir einnig að
efla þurfi rannsóknir á sviði kolefn-
isbindingar.
Ákveðið hefur verið að hið aukna
fjármagn á næsta ári verði að
stórum hluta nýtt til aukinnar gróð-
ursetningar á birki. Auðvelt er að
auka birkirækt með skömmum fyr-
irvara og þegar er hafin framleiðsla
á hálfri milljón birkiplantna sem
gróðursettar verða næsta vor. Brátt
verður boðin út framleiðsla á svip-
uðu magni til gróðursetningar næsta
haust. Einnig er ráðgert útboð á
aukinni trjáplöntuframleiðslu fyrir
árið 2020 þegar aukið framlag til
kolefnisbindingar verður 450 millj-
ónir, að því er fram kemur í áætlun
ríkisstjórnarinnar. jbe@mbl.is
Búa sig undir
verkefni næstu ára
Hálf milljón birkiplantna í framleiðslu
Útboð Stórt útboð um birkiplöntu-
framleiðslu er framundan.
María Jóna Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasambands-
ins, segir að heppilegra sé að fella
niður vörugjöld á bílum og skatt-
leggja notkun á þeim en að banna
nýskráningar bensín- og dísilbíla.
„Þá væru bensín- og dísilbílar
skattlagðir hærra og þetta myndi
hvetja fólk til þess að kaupa um-
hverfisvænni bíla,“ segir hún.
„Bílaiðnaðurinn í heild sinni hefur
lagt gríðarlega mikið af mörkum
við að framleiða umhverfisvæna
bíla með nýjum orkugjöfum. Bæði
bensín- og dísilbílar menga um-
talsvert minna í dag en þeir gerðu
fyrir tíu árum. Það þarf að leggja
áherslu á að fá hingað nýja bíla í
stað þess að stöðva nýskráningar
á bílum,“ segir María.
„Ef við komum eldri bílum ekki
af götunum í staðinn fyrir að
banna nýskráningar, þá erum við á
villigötum. Þá verðum við bara
áfram með eldri og mengandi bíla
á götunum,“ segir hún.
Komi eldri bílum af götunum
NIÐURFELLING VÖRUGJALDA HEPPILEGRI LEIÐ