Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 4
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kristján Guðmundsson, formaður
samninganefndar Læknafélags
Reykjavíkur (LR), segir þá stefnu
Svandísar Svavarsdóttur heilbrigð-
isráðherra að færa alla heilbrigðis-
þjónustu undir ríkið geta haft þær
afleiðingar að það stefni í tvöfalt
heilbrigðiskerfi á
Íslandi. Annað
verði fyrir þá sem
sækja sér al-
menna þjónustu
og hitt fyrir þá
sem borga fyrir
þjónustuna.
„Það lítur út
fyrir að heilbrigð-
isráðherra ætli að
færa alla heil-
brigðisþjónustu
undir ríkið. Spurt er hvort rekstur-
inn sé einkarekinn. Sé svarið já seg-
ist ráðherra ekkert vilja við viðkom-
andi tala,“ segir Kristján.
Ráðherra svarar ekki
Hann segir alvarlegt fyrir starf-
semi sérfræðilækna að ráðherrann
hafi ekkert viljað ræða við þá.
„Það er kominn miður september.
Við áttum fund með Svandísi í jan-
úar. Fulltrúar Samtaka heilbrigðis-
fyrirtækja funduðu með henni í apríl
og svo var þetta svokallaða samtal 2.
júlí. Það er búið að reka á eftir svari
frá ráðherra með tölvupóstum. Í
byrjun júlí sendum við ráðherra
tölvupóst um að það mætti ekki
dragast að hefja viðræður. Hún
verður þá að minnsta kosti að segja
að hún ætli ekki að semja við okkur.
Þetta er auðvitað dónaskapur og set-
ur lækna í ómögulega stöðu. Sjúk-
lingar vita ekki hvað þeir eiga að
borga á næsta ári og læknar eiga
örðugt með að skipuleggja aðgerðir,
eftirlit og starfsemina almennt.“
2.000 manns á dag
Samningur sérfræðilækna við
Sjúkratryggingar Íslands rennur út
um áramótin. Að sögn Kristjáns leita
að meðaltali um 2.000 manns til sér-
fræðilækna sérhvern virkan dag, eða
um 10 þúsund í viku hverri.
Um 30% af öllum læknisviðtölum á
Íslandi fari fram hjá sérfræðingum.
Þá séu meðtalin viðtöl hjá spítölum,
heilsugæslu og á bráðamóttöku.
Kristján bendir á að sérfræðingar
séu bundnir af einkaréttarsamningi,
sem sé ætlað að tryggja að ekki verði
til tvöfalt kerfi. Þeim sé því óheimilt
að bjóða þjónustu utan samnings.
„Hér hefur því aldrei myndast
markaður fyrir lækna til að bjóða
sérfræðiþjónustu utan við þennan
samning. Á hinum Norðurlöndunum,
Noregi, Danmörku og Svíþjóð, er
komið svona kerfi við hliðina á opin-
bera kerfinu. Til dæmis er um helm-
ingur sjúklinga í Danmörku með
einkatryggingar, sem tryggja sjúk-
lingum aðgengi að sérfræðiþjónustu
án þess að þurfa að bíða. Víðast eru
tryggingar greiddar af vinnuveit-
endum, eða í gegnum hóptryggingar
stéttarfélaga,“ segir Kristján.
Verður of dýr fyrir marga
Kristján segir aðspurður að ef sér-
fræðingar verða án samnings muni
þátttaka Sjúkratrygginga Íslands í
kostnaði sjúklinga falla niður. Það
geti aftur haft þær afleiðingar að
þjónustan verði mörgum of dýr. Það
geti aftur skapað grundvöll fyrir tvö-
földu heilbrigðiskerfi.
Rammasamningur milli Sjúkra-
trygginga Íslands og sérgreina-
lækna um lækningar utan sjúkra-
húsa hefur gilt frá 1. janúar 2014.
Hann rennur út 31.desember nk.
Stefnan sé tekin á tvöfalt
heilbrigðiskerfi á Íslandi
Formaður samninganefndar LR segir stefnu ráðherra geta orðið afdrifaríka
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn við Hringbraut Samningar við sérfræðilækna eru að renna út.
Kristján
Guðmundsson
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Veður víða um heim 14.9., kl. 18.00
Reykjavík 11 heiðskírt
Bolungarvík 6 skýjað
Akureyri 6 alskýjað
Nuuk 5 súld
Þórshöfn 8 rigning
Ósló 15 skýjað
Kaupmannahöfn 16 rigning
Stokkhólmur 15 heiðskírt
Helsinki 15 skýjað
Lúxemborg 18 skýjað
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 14 skúrir
Glasgow 11 rigning
London 17 skúrir
París 20 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 18 heiðskírt
Berlín 19 léttskýjað
Vín 19 skúrir
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 24 heiðskírt
Madríd 32 léttskýjað
Barcelona 27 heiðskírt
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 27 heiðskírt
Aþena 24 léttskýjað
Winnipeg 15 skýjað
Montreal 23 léttskýjað
New York 21 rigning
Chicago 19 þoka
15. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:52 19:55
ÍSAFJÖRÐUR 6:54 20:03
SIGLUFJÖRÐUR 6:36 19:46
DJÚPIVOGUR 6:20 19:26
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á sunnudag Austan og norðaustan 8-15 m/s og
rigning um norðanvert landið fram undir hádegi en
annars hægari og úrkomulítið. Hiti 4 til 10 stig, hlýj-
ast S-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi austlæg átt, 10-20 m/s og rigning um landið S-vert síðdegis,
hvassast undir Eyjafjöllum og SA-lands. Hægari og þurrt að kalla N-til fram á kvöld.
Sigurður Ásgeir Kristinsson, bækl-
unarlæknir hjá meðferðastöðinni Cor-
pus Medica, segir brýnt að taka á
vanda þúsunda sjúklinga sem þjást af
langvarandi bak- og stoðkerfis-
verkjum. Sjúkratryggingar Íslands
taki ekki þátt í kostnaðinum þegar
þeir leita sér aðstoðar sérfræðilækna.
Það komi skýrt fram hjá sjúklingum
Corpus Medica að þótt kostnaðurinn
sé hlutfallslega lítill sé hann íþyngj-
andi fyrir marga. Sumir treysti sér ekki í viðtal, hvað þá
meðferð, vegna kostnaðar. Corpus Medica starfar sam-
kvæmt tilvísunum að eigin frumkvæði og er utan samn-
ings hjá Sjúkratryggingum Íslands.
Sigurður Ásgeir bendir á að hluti þjónustunnar við
slíka sjúklinga eigi betur heima hjá sérfræðingum en á
spítölum. Hún sé enda ódýrari og skilvirkari. Á spítölum
sé hins vegar betur hægt að takast á við erfiðustu til-
vikin og bjóða sjúklingum þverfaglega þjónustu. Miðað
við núverandi biðlista geti það tekið sjúklinga langan
tíma að komast á sjúkrahús í slíka meðferð.
Sigurður Ásgeir og meðeigandi hans í Corpus Me-
dica, Bjarni Valtýsson svæfingalæknir eru einu sjálf-
stætt starfandi læknarnir, ásamt Bjarka Karlssyni,
bæklunarlækni á Akureyri, sem sinna verkjameðferð.
Bjarki hafi áhuga á að leggjast á árarnar með Corpus
Medica en ekki meðan ekki er samningur við læknana.
„Það skapast tvöfalt heilbrigðiskerfi ef hluti sjúk-
linga á ekki rétt á endurgreiðslu gagnvart sínu vanda-
máli þegar aðrir sjúklingar með önnur vandamál eiga
það. Sjúklingar eins og okkar eiga engan endur-
greiðslurétt og það er enginn annar sem getur sinnt
þeirra vandamálum nema Bjarki sem starfar á Akureyri.
Hann sinnir aðeins hluta af þessum vandamálum.
Það er mjög óeðlilegt að sjúklingar á stærsta þétt-
býlissvæði landsins þurfi að leita til Akureyrar. Heil-
brigðisráðherra hefur sagt að það eigi að ríkja jafnræði
fyrir alla sjúklinga, hvar sem þeir búa á landinu. Við er-
um í öflugu samstarfi við bakdeildina í Stykkishólmi
þar sem sprautumeðferðir fara ekki lengur fram,“ segir
Sigurður Ásgeir.
Hann segir Corpus Medica lána Landspítala lækn-
ingatæki sem Bjarni Valtýsson notar þar í hlutastarfi.
Tæki spítalans sé bilað.
Fulltrúar VG ályktuðu nýverið að stefna bæri að heil-
brigðisþjónustu án hagnaðarsjónarmiða.
Sigurður Ásgeir segir aðspurður að hagnaður hafi
þríþætt hlutverk fyrir fyrirtæki. Til að greiða niður
skuldir, til að fjárfesta og/eða að greiða arð.
„Við Bjarni höfum persónulega lagt milljónir í þetta
fyrirtæki. Meðal annars keypt tæki og dýran innbúnað.
Þótt við reiknum okkur eðlileg laun og rukkum efnis-
kostnað, og annað slíkt, þurfum við að standa undir
fjárfestingunni. Þannig að þegar við hættum höfum við
ekki gengið á okkar persónulega sjóð. Það er eðlilegt að
það sé hagnaður sem endurgreiðir okkur fjárfest-
inguna,“ segir Sigurður Ásgeir.
Lána spítala lækningatæki
CORPUS MEDICA LIÐSINNIR SPÍTALANUM
Sigurður Ásgeir
Kristinsson
Vestmannaeyjabær hefur ákveðið
að höfða mál á hendur Lands-
bankanum hf. vegna greiðslu
þess sem bæjaryfirvöld segja
réttmætt endurgjald fyrir stofn-
fjárhluti í Sparisjóði Vest-
mannaeyja, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Vestmannaeyjabæ.
Þá segir að við yfirtöku Spari-
sjóðsins greiddi Landsbankinn
stofnfjáreigendum samtals 332
milljónir króna fyrir allt stofnfé.
Vestmannaeyjabær og Vinnslu-
stöðin gerðu athugasemdir við
verðmatið og féllust dómstólar á
að dómkvaddir matsmenn myndu
meta verðmæti stofnfjár sjóðsins.
Niðurstaða matsmanna var að
verðmæti stofnfjárins væri 483
milljónir króna eða um 45% hærri
upphæð en Landsbankinn greiddi
stofnfjáreigendum. Þegar þetta
mat lá fyrir var Landsbankinn
krafinn um að greiða stofnfjár-
eigendum mismuninn. Lands-
bankinn hefur hafnað þeirri
kröfu.
Landsbankinn
krafinn um rétt-
mætt endurgjald
Norsk Hydro er
hætt við að taka
yfir álverið í
Straumsvík.
Þetta kemur
fram í fréttatil-
kynningu sem
fyrirtækið sendi
frá sér í gær. Þar
segir að Norsk
Hydro og Rio
Tinto hafi skrifað undir samkomu-
lag um að Norsk Hydro hætti við að
taka yfir álverið í Straumsvík.
Greint var frá því í mars á þessu
ári að álframleiðandinn Norsk
Hydro ASA hefði gert skuldbind-
andi tilboð um kaup á öllu útgefnu
hlutafé í álverinu í Straumsvík af
Rio Tinto.
Upphaflega var búist við að kaup-
ferlinu yrði lokið á öðrum ársfjórð-
ungi þessa árs. Það hefur hins vegar
tekið lengri tíma en talið var að fá
samþykki samkeppnisyfirvalda
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins og í kjölfar þess fór Norsk
Hydro fram á að rifta tilboðinu og
hefur sú beiðni nú verið samþykkt.
Haft var samband við Rannveigu
Rist, forstjóra Rio Tinto á Íslandi,
en hún vísaði til fréttatilkynning-
arinnar sem send var á fjölmiðla og
sagði aðeins Rio Tinto geta veitt
frekari upplýsingar.
Straums-
vík ekki
seld Hydro
Riftu tilboðinu