Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
Sigmundur Davíð Gunnlaugssonog nokkrir aðrir þingmenn
hafa lagt fram tillögu til þings-
ályktunar „um óréttmæti málshöfð-
unar Alþingis gegn ráðherrum og
afsökunarbeiðni“. Í tillögunni segir
að Alþingi álykti að „rangt hafi ver-
ið að leggja fram tillögu til þings-
ályktunar um málshöfðun gegn
ráðherrum hinn 28. september
2010“ og að viðkomandi ráðherrar
„verðskuldi afsökunarbeiðni vegna
þessa“.
Tillagan snýst umlandsdóms-
málið svokallaða,
þar sem Geir H.
Haarde var einn
ákærður en ósvífnir
klækir við atkvæða-
greiðslu í þingsal komu í veg fyrir
ákæru gegn þremur öðrum.
Enginn þessara átti skilið ákæruog atkvæðagreiðslan staðfesti
að málið var af pólitískum rótum
runnið.
Þá er rétt sem kemur fram ígreinargerð með þings-
ályktunartillögunni, að ekki „hefur
verið gætt samræmis við beitingu
laga um landsdóm þar eð lögunum
hefur ekki verið beitt í öðrum til-
vikum er varða stjórnmálalegar
ákvarðanir og aðgerðir sem stefnt
hafa hagsmunum ríkisins í hættu“.
Þá má taka undir það sem segir ítillögunni að lýðræðislegu
stjórnarfari í landinu standi ógn af
því „ef reynt er að fá starfandi eða
fyrrverandi stjórnmálamenn
dæmda til fangelsisvistar vegna
pólitískra aðgerða eða aðgerða-
leysis án þess að um hafi verið að
ræða ásetning um brot“.
Slík mál á, eins og segir í tillög-unni, að leiða til lykta í kosn-
ingum.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Tímabær tillaga
STAKSTEINAR
TUDOR rafgeymar
TUDOR TUDOR
Er fjórhjólið tilbúið fyrir
fyrir fjallaferðina?
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start með
TUDOR
NÝTT NÝTT,
Lithium rafgeymar fyrir mótorhjól
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Gunnlaugur Sævarsson og Kristján
M. Gunnarsson stóðu uppi sem sig-
urvegarar í tvímenningskeppni
Norðurljósamótsins í brids, sem
haldið er á Siglufirði um helgina.
Hart var barist um efstu sætin í
tvímenningnum í gær. Fyrir síðustu
umferðina höfðu Aðalsteinn Jörg-
ensen og Sigurður Sverrisson for-
ustuna en þeir Kristján og Gunn-
laugur fengu háa skor í síðustu
umferðinni og komust í efsta sætið.
Í þriðja sæti voru Danirnir Jacob
Røn og Freddie Brødum, í fjórða
sæti Ragnar Magnússon og Steinar
Jónsson og í fimmta sæti voru
Mads Eyde og Anders Hagen. Alls
tóku 47 pör þátt í tvímennings-
keppninni.
Norðurljósamótið hefur verið
haldið undanfarin þrjú ár og þar
taka þátt flestir sterkustu íslensku
spilararnir og einnig hafa erlendir
spilarar verið með enda verðlaunin
góð; sigurvegararnir skipta með sér
500 þúsund krónum.
Í dag hefst sveitakeppni, sem
lýkur á sunnudag. Þar tekur þátt 31
sveit og eru fyrstu verðlaun rúm-
lega 700 þúsund krónur.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Í þungum þönkum Keppendur á Norðurljósamótinu í brids á Siglufirði.
Spennandi bridsmót
Kristján og Gunnlaugur unnu tví-
menning eftir sviptingar í síðustu lotu
Það sem af er sumri hefur Hafrann-
sóknastofnun fengið fréttir af tveim-
ur hnúðlöxum, sem veiðst hafa í ám
hér á landi. Þetta er miklu minna en í
fyrra þegar þeir voru hátt í 70. Áður
höfðu mest fengist 12 hnúðlaxar.
Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri
ferskvatnslífríkis hjá Hafrannsókna-
stofnun, segir að annan hnúðlax
sumarsins hafi hann fengið inn á
borð til sín og veiddist sá austur í
Lóni. Af hinum frétti Guðni á sam-
félagsmiðlum. Hann útilokar ekki að
þeim eigi eftir að fjölga þegar farið
verður yfir veiðibækur. Segist þó
efast um að þeir nái tveggja stafa
tölu.
Fjöldi hnúðlaxa í fyrra var í sam-
ræmi við fréttir annars staðar frá um
mikinn fjölda. Það var ekki alveg
óvænt því oddaárið er alltaf stærra
hjá hnúðlaxi heldur en jafna árið og á
það bæði við Atlantshaf og Kyrrahaf.
Það skýrist m.a. af því að lífsferill
fisksins er stuttur og árgangarnir
blandast ekki saman. Þá hafi Rússar
náð í nýjan stofn hnúðlaxa í Kyrra-
haf, sem virðist standa sig betur í
Atlantshafinu en forverar hans.
Guðni segir að forvitnilegt verði að
fylgjast með hnúðlaxi í íslenskum ám
næsta sumar. Bæði endi árið á odda-
tölu og fyrir liggi að hnúðlaxar hafi
hrygnt hér í fyrra.
Aðspurður segir Guðni að út-
breiðsla flundru hafi aukist en talið
er að hún hafi fyrst fundist í ósum
Ölfusár 1999. Hana er nú að finna
vestur og norður með landinu og hef-
ur m.a. fundist í Miklavatni í Fljót-
um. Flundran hefur leitað norður
með Austfjörðum og hefur m.a. feng-
ist í Norðfjarðará. Flundran hrygnir
í sjó og gengur síðan upp í ferskvatn.
Hún er gjarnan í árósum og er talin
viðsjárverð þar sem í fæðu hennar
hafa m,.a. fundist seiði laxa og
bleikju. aij@mbl.is
Aðeins tveir hnúðlaxar í sumar
Í fyrra veiddust hátt í 70 hnúðlaxar Hrygndi hér í fyrra Flundra breiðist út