Morgunblaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 10
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Hjónin Anton Miller fiðluleikari og
Rita Porfiris víóluleikari eru tón-
listarmenn í fullu starfi auk þess að
sinna tónlistarkennslu í Hartfoord-
háskólanum í Connecticut í Banda-
ríkjunum eða Hartt-skólanum eins
og hann er kallaður. Hjónin hafa
fasta búsetu í Connecticut en eru
þó svo heilluð af landi og þjóð að
þau nýta hvert tækifæri til að koma
til Íslands og ákváðu á endanum að
festa kaup á íbúð hér á landi.
Hjónin komu hingað fyrst til
lands fyrir 6 árum og segjast hafa
orðið ástfanginn af landinu um leið.
Þau eru nú á landinu til að spila á
tónleikum til heiðurs Guðnýju Guð-
mundsdóttur konsertmeistara sem
Kammermúsíkklúbburinn stendur
fyrir og verða haldnir í Hörpu á
sunnudag
Morgunblaðið náði tali af þeim
milli æfinga.
„Fyrir 6 árum ákváðum við að
fara í frí. Rita spurði mig á hvaða
stað, sem ég hafði aldrei komið á
áður, mig langaði að fara. Ég hafði
kennt og kynnst frábæru íslensku
fólki og sagðist vilja fara til Íslands.
Við lentum á Íslandi um hávetur og
urðum samstundis yfir okkur ást-
fangin af landinu. Við ákváðum þá
og þegar að við myndum koma
hingað oftar,“ rifjar Anton upp.
„Eftir það heimsóttum við Ísland
á hverju ári og stundum tvisvar á
ári. Á endanum ákváðum við að
kaupa íbúð hér á landi,“ skýtur Rita
inn í.
Elska allt við Ísland
Aðspurð hvað það sé helst sem
heillar þau hjónin við land og þjóð
kemur smáhik áður en þau þylja
upp það fjölmarga sem þau elska
við Ísland.
„Fólkið er að sjálfsögðu ynd-
islegt. Í okkar augum er þetta land
elds og íss. Hraunið, heitu laug-
arnar og norðurljósin. Þetta er allt
svo magnað,“ segja þau eins og vel
æfður dúett, sem þau eru að vísu.
Þau ferðast nefnilega saman um
allan heim til þess að spila sem dú-
ett.
„Þegar við erum á Íslandi erum
við mjög dugleg við að fara í sund-
laugarnar. Við förum á hverjum
degi og okkur finnst það alveg
draumi líkast að geta gert það. Það
er svo róandi, endurnærandi og
yndislegt. Það er engin slík menn-
ing í Bandaríkjunum,“ segir Anton
með mikilli áherslu á þessi sterku
lýsingarorð sem hann notar.
Anton og Rita keyptu íbúð hér á
landi fyrir um átján mánuðum og
fengu góðar ráðleggingar frá sjálfri
Guðnýju Guðmundsdóttur.
„Ástæðan fyrir því að við keypt-
um íbúðina var sú að okkur langar
að koma hingað eins oft og við
mögulega getum, við viljum alltaf
vera hér. Það er mjög gott að eiga
samastað í landi sem við elskum
svona mikið. Á Íslandi líður okkur
eins og við séum heima,“ segir Ant-
on og bætir við:
„Við eigum ketti í Bandaríkj-
unum og þeir eru það eina sem við
söknum þegar við dveljum hér. Ef
það væri ekki fyrir kettina þá vær-
um við hérna enn oftar.“
Rita segir að þau hjónin ferðist
mikið vegna vinnu sinnar og dvelji
ekki nema tæplega helming árs í
Connecticut. Þegar þau fá frí frá
vinnu komi þau til Íslands.
„Að lokum viljum við bæta því við
að við kunnum virkilega vel að meta
Ísland. Við elskum að vera hér og
við elskum fólkið,“ segir Anton áð-
ur en hjónin rjúka á næstu æfingu.
Ljósmynd/Úr einkasafni
Íslandsvinir Anton Miller fiðluleikari og Rita Porfiris víóluleikari eru hjón og elska Ísland af öllu hjarta.
Hjón og dúett elska
Ísland af öllu hjarta
Heimsóttu Ísland svo oft að þau ákváðu að kaupa íbúð
Þú færð tveggja ára aukaábyrgð
með allri þjónustu innifaldri þegar
þú kaupir notaðan, viðurkenndan
Mercedes-Benz bíl hjá okkur.
Viðurkenndir
Mercedes-Benz.
Nýskráður 5/2016, ekinn
31 þús. km, dísil, 1950 cc
og 195 hestöfl.
Nýskráður 5/2017, ekinn
34 þús. km, dísil, 2143 cc og
136 hestöfl. Fjórhjóladrifinn.
Nýskráður 5/2015, ekinn
39 þús. km, dísil, 2143 cc og
170 hestöfl. Fjórhjóladrifinn.
Nýskráður 5/2015, ekinn
51 þús. km, dísil, 2143 cc
og 136 hestöfl.
E-Class 220d
6.490.000 kr.
GLA 200d
5.790.000 kr.
GLK 220 CDI
4.490.000 kr.
B-Class 200
3.150.000 kr.
Askja notaðir bílar
www.notadir.is
Nýskráður 2/2017, ekinn14 þús. km,
bensín, 3982 cc og 511 hestöfl.
C 63 S AMG Coupe
17.690.000 kr.
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar
520 5200 - ferdir.is
Vesturvör 34, 200 Kópavogi,
outgoing@gjtravel.is
Edinborg er höfuðborg Skotlands, næst stærsta
borg landsins og þykir einstaklega fögur.
Jólamarkaðurinn hefur verið staðsettur við
rætur Kastalahæðarinnar í hjarta Edinborgar í
mörg ár. Þar geta gestir upplifað ævintýralega
stemningu þar sem þeir rölta á milli sölubása
listamanna sem bjóða fallega handverks-
muni og þeirra sem bjóða kræsingar sem
kitla bragðlaukana. Einnig er tilvalið að líta í
stórverslanir á Princess street, ganga á milli
vertshúsa og verslana á „Royal Mile“ skoða
Edinborgarkastala eða bara slappa af og njóta
þess að horfa á mannlífið. Gist er á Mercure
hóteli, Princess street.
Aðventuferð til Edinborgar
Verð 98.500
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggja
manna herbergi, morgunverður og akstur samkvæmt
lýsingu. Aukagjald fyrir eins manns herbergi 43.500,-
22.–25. nóv.