Morgunblaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 Síðumúli 9 - 108 Reykjavík | Dalshraun 13 - 220 Hafnarfjörður Dalsbraut 1 - 600 Akureyri | 560-8888 • www.vfs.is Hnoðbyssa M12 BRT-201X ál, stál og ryðfrí 2,4-4,8 mm, ð 325x4.8 mm hnoð með rafhlöðu. r í tösku með rafhlöðu og utæki. kr. 59.900. Tekur hnoð allt a ryðfrí 2,0Ah Kemu 2,0Ah hleðsl Verð Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég er alveg óhrædd viðað segja frá því að égkeyrði mig út á sínumtíma þegar ég var at- vinnudansari. Oft er talað um að manneskjan vilji engu breyta fyrr en hún fer í þrot, og þannig var það með mig. Ég rakst á vegg eins og það er kallað, ég var orðin mjög kvalin í líkamanum og hafði alger- lega ofboðið mér, keyrt mig áfram í hörku, bæði andlega og líkamlega. Þá kom jógað inn sem heilun fyrir mig, en ég gerði meira, ég fór líka í gegnum 12 sporin. Það er nefnilega val að vinna í sínum málum, og það er ekkert sem maður klárar, það er meira eins og lífsstíll, og þannig hef- ur það verið hjá mér allar götur síð- an. Ég er ekki að tala um að fólk eigi að velta sér upp úr vandamálum, heldur öðlast meiri skýrleika og vaxa og þroskast sem manneskja,“ segir Auður Bjarnadóttir, eigandi Jógasetursins en þar verður boðið upp á námskeið sem fer af stað nk. miðvikudag þar sem tvinnað verður saman jóga og 12 sporin. „Rúmlega tveir áratugir eru frá því ég fór í gegnum 12 sporin fyrir sjálfa mig. Það breytti mínu lífi al- gerlega að fara í gegnum þessa and- legu vinnu, ég fór tvisvar í gegnum sporin með trúnaðarkonu og það hafði mikil og góð áhrif. Ég lærði að verða skýrari í samskiptum og draga línur, setja mörk, sjálfri mér og öðrum. Sporavinnan er algerlega frábær mannbætandi leið og jóga er það líka. Við þurfum öll andlegt akk- eri hvernig sem við sækjum okkur það, hvort sem við förum út að ganga, í sund, gerum 12 sporin eða förum í jóga. Það er svo gaman að festast ekki alltaf í því sama, heldur sjá hlutina frá annarri og nýrri hlið.“ Að leysa sitt hugarangur Auður segir að það að setja saman námskeið þar sem þessu tvennu er blandað saman, jóga og 12 sporunum, eigi upphaf sitt í því að fyrir áratug hitti hún konu í Frakk- landi og þær tóku upp á því að hræra þessu í einn rétt. „Hún kom hingað til lands og var með slíkt helgarnámskeið og við gerðum þetta svo aftur í fyrra. Ég veit af eigin reynslu líkt og margir aðrir, hversu gott það er þegar jóga verður öguð sjálfsvinna. Þá er ekki einvörðungu verið að teygja á vöðv- um, heldur er það stöðug vinna í að vera í nútvitund og skoða hvar mað- ur er með fyrirstöðu í lífinu, rétt eins og fólk gerir í sporavinnunni. Fólk er oft að reyna að leysa hugar- angur sitt í höfðinu, en þá er svo gott að fara inn í líkamann líka því hann er svo vitur. Í andlegri jóga- vinnu skoðar fólk hvar það er spennt í líkamanum og finnur út hvað sú til- finning stendur fyrir. Það eru ótrú- lega mörg tæki og tól fyrir svona sjálfsvinnu í jóga og þegar fólk bæt- ir 12 sporunum við, þá er þetta eins og samtal huga og líkama,“ segir Auður og bætir við að námskeiðið samanstandi af 12 skiptum, rétt eins og sporin. „Við komum inn á eitt spor í hverjum tíma, en ég tek fram að þetta eru ekki AA-tólf spora sam- tök, heldur jóganámskeið með til- vísun í sporin. Fólk fær líka að vinna heimavinnu, skoða hvert spor fyrir sig.“ Ekki vera þræll eigin huga Auður segir að eitt af sporunum sé bæn og hugleiðsla, en það sé ein- mitt hinn upprunalegi kjarni í jóga. „Því miður er hið andlega jóga á undanhaldi í vestrænum samfél- ögum sem kynna jóga án þessarar andlegu dýptar, heldur er það kynnt sem leikfimi og teygjuæfingar til að komast í líkamlega gott form. Upp- runalega er jóga fyrst og fremst andleg vinna og í jógakjarnanum er- um við að vinna með hugann, en jógastöðurnar og hugleiðslurnar hjálpa fólki við að koma jafnvægi á hugann. Þá getum við sagt að sá sem er til dæmis þræll í fíknum eða meðvirkni, hann sé þræll hugans, hann sér ekki lífið af því hann verð- ur að fá skammtinn sinn, eða er stöðugt að hugsa um álit annarra. Slíkur þræll er aldrei að lifa lífinu í núinu, því hugurinn er alltaf að búa til sögur um álit annarra eða næsta skammt. Jóga og sporin tólf geta hjálpað mikið í því að vinna á þessu. Kjarninn í jóga er að vinna með að róa öldur hugans, svo fólk hætti að vera þrælar síns þjakaða huga, held- ur verði hugurinn þjónninn okkar. Þegar hægt er á öldum hugans og áráttuhegðun, þá sér fólk skýrar og lífið færist í átt til jafnvægis.“ Streita hefur áhrif á líkama Auður segir að margir séu ekki meðvitaðir um að andleg og lík- amleg heilsa haldist í hendur. „Ég þekki það sjálf af eigin reynslu, allt sem við höfum upplifað, bæði áföll og annað sem unnið er með í 12 sporunum, spenna og streita, hvern- ig okkur líður andlega, það hvílir líka í líkamanum. Stundum er fólk svo ofvirkt í höfðinu að það finnur ekki fyrir líkamanum. En líkaminn er svo vitur og þess vegna er gott að hlusta á hann. Ef við erum stressuð þá kemur til dæmis spenna í mag- ann sem hefur áhrif á meltinguna. Viðkomandi er kannski alltaf spenntur í maganum af því að hann hefur alltaf þurft að verja sig fyrir einhverju frá því hann var lítið barn og kann ekki annað en spenna lík- amann og halda öllu inni. Bakverkir geta líka komið vegna streitu sem hefur svo áhrif á nýrun og svo fram- vegis. Þetta hangir allt saman og við þurfum að huga að öllum þáttum.“ Það er val að vinna í sínum málum „Sá sem er þræll í fíknum eða meðvirkni, hann er þræll hugans, hann sér ekki lífið af því að hann verður að fá skammtinn sinn, eða er stöðugt að hugsa um álit annarra,“ segir Auður Bjarnadóttir sem býður upp á nám- skeið í sjálfsvinnu. Morgunblaðið/Hari Glaðar og liðugar Auður Bjarnadóttir (t.v) og Edith Gunnarsdóttir en hún ætlar að kenna á námskeiðinu. Það breytti mínu lífi al- gerlega að fara í gegnum þessa andlegu vinnu. Öll höfum við verkefni að vinna úr, fíkn eða samskipti, meðvirkni eða eitthvað gamalt í bakpokanum. Jóga og 12 sporin eru frábær leið til að hreinsa til og létta bakpoka fortíðar, gefa von inn í framtíð og orku inn í núið. Jógasetrið býður upp á námskeið undir heitinu: 12 spor til vellíðunar. Þetta er 12 vikna námskeið sem stendur frá 18. sept. til 4. des. Kennari er Edith Gunnarsdóttir. Á heimasíðu kemur fram að mark- mið námskeiðsins sé að vinna með sjálfstyrkingu og gjafir 12 sporanna með nálgun jóga og hugleiðslu. Í hverjum tíma verður tekið fyrir eitt spor. Á námskeiðinu verður gert jóga og sérstök kundalini-jóga-hugleiðsla. Einnig mun jóga nidra eiga sinn stað til að losa um spennu líkamans og hindranir hugans. Námskeiðið hentar bæði fyrir byrj- endur í jóga og líka lengra komna; fyrir þá sem eru í 12 spora vinnu eða hafa áhuga á að kynna sér 12 spora leiðina í sjálfsvinnu og jóga. Eftir hvern tíma fá þátttakendur sent email með hugleiðingum og heima- vinnu út frá hverju spori. Jóga og 12 spor til vellíðunar Tími til að létta á bakpokanum? Getty Images/Thinkstock Jóga Auður leggur áherslu á að jóga sé fyrst og fremst andleg vinna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.