Morgunblaðið - 15.09.2018, Page 14
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Norskir fjárfestar áforma að opna
bar og gallerí með höggmyndum úr
ís á Laugavegi 4-6 í janúar. Þeir
verða fyrstu leigutakarnir í nýbygg-
ingu og endurgerðum húsum.
Norsku hjónin Kirsten-Marie
Holmen og Hans-Petter Solvie eru
eigendur félagsins Magic Ice sem
munu eiga og reka ísgalleríið Magic
Ice Reykjavík á Laugavegi.
Þau voru að kanna stöðu fram-
kvæmda í nýbyggingunni þegar
Morgunblaðið leit þar inn í gær.
Holmen segir gesti Magic Ice
munu fá vetrarjakka og hanska áð-
ur en gengið er inn um ísgöng. Við
taki stórt rými með galleríi og bar.
Þar verði um 5 gráða frost.
Reiða fram drykki í ísglösum
Aðgangseyrir verður 3.000 krón-
ur. Innifalið er drykkur og leiga á
fatnaði. Opið verður allt árið.
„Gestir eru boðnir velkomnir með
drykk sem er borinn fram í ísglasi.
Barinn verður úr ís. Höggmynd-
irnar eru gerðar af listamönnum
okkar. Við höfum okkar eigin lista-
skóla sem kennir listamönnum út-
skurð í ís. Hafa þeir þá þegar lokið
sex ára listnámi. Íslistaverkin munu
skírskota til sögu Íslands. Þá verður
lítil minjagripaverslun hjá okkur og
jafnvel boðið upp á mat.“
Holmen segir ísgalleríin í Noregi
hafa vakið heimsathygli. Meðal ann-
ars hafi ísgalleríið á Lofoten fengið
alþjóðleg verðlaun sem áfanga-
staður fyrir ferðamenn.
Sjötta ísgalleríið á Íslandi
Rekstur Magic Ice hófst með
opnun samnefnds ísgallerís í bæn-
um Svolvær á Lofoten í Noregi árið
1983. Félagið opnaði svo annað ís-
gallerí á eyjunni St. Thomas, sem
tilheyrir Jómfrúaeyjum í Karíbahaf-
inu. Það opnaði svo þrjú önnur ís-
gallerí í Noregi; í Bergen, Ósló og
nú síðast í Tromsö í sumar sem leið.
Það sjötta verður á Laugavegi.
Holmen segir að endurnýja þurfi
ísbarinn og ísmyndirnar tvisvar til
þrisvar sinnum á ári. Meðal annars
geti myndirnar bráðnað vegna
snertingar forvitanna gesta.
Holmen segir Magic Ice lengi
hafa leitað að heppilegri staðsetn-
ingu fyrir ísgalleríið á Íslandi. Hún
sé afar ánægð með nýja húsnæðið.
Staðsetningin einstök
„Húsnæðið er vel hannað og hent-
ar vel undir svona rekstur. Sagt er
að þrennt skipti mestu máli í fast-
eignaviðskiptum; staðsetning, stað-
setning og staðsetning. Við höfum
varið miklum tíma og komið oftsinn-
is til Íslands í leit að hentugu hús-
næði. Þegar við sáum þessa bygg-
ingu í fyrrasumar hugsuðum við
með okkur að rétta húsið væri fund-
ið. Hér fer saman saga og arkitekt-
úr. Þá munu stórir gluggar skapa
tækifæri til að vekja athygli á ísgall-
eríinu. Við teljum okkur munu ná til
margra viðskiptavina, ekki síst
ferðamanna, sem eiga leið um
Laugaveginn,“ segir Holmen.
Með áratuga reynslu
Holmen er stofnandi og meðeig-
andi tveggja ferðaþjónustufyrir-
tækja. Annars vegar Magic Ice sem
starfar nú í þremur löndum. Hins
vegar stofnaði hún viðburðafyrir-
tækið Magic North árið 1980. Um
hundrað manns starfa hjá Magic
North yfir háannatímann. Fyrir-
tækið skipuleggur viðburði fyrir
fyrirtæki. Meðal annars sá félagið
um alþjóðlega kynningu á Volvo-
bifreið nýverið. Hundruð blaða-
manna sóttu viðburðinn sem fór
fram í Norður-Noregi.
„Þar sem ég hef starfað lengi í
ferðaþjónustu veit ég hvað snjórinn
og ísinn er heillandi fyrir marga
ferðamenn, sem eiga ekki að venjast
snjó. Ég veitti því athygli í störfum
mínum að margir blaðamenn höfðu
aldrei séð snjó og ís. Þeir töluðu
ekki um annað yfir kvöldverðinum
en íshótelið í Finnmörku. Ég hugs-
aði með mér hvers vegna enginn
hefði opnað safn, eða gallerí, úr ís,
sem væri alltaf opið. Þaðan kom
hugmyndin. Úr því að fyrirtæki mitt
hét Magic North hlaut nýja fyrir-
tækið að heita Magic Ice. Ég setti
hugmyndir mínar á blað og hafði
samband við formann ólympíu-
nefndarinnar í Noregi, Gérhard
Heiberg, sem sat einnig í stjórn
Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC).
Hann tók hugmyndinni fagnandi og
sagði: Ef þú opnar íssafn, eða ísgall-
erí með bar, skal ég verða við-
staddur opnunina og ferðast þangað
hvaðan sem ég verð þá staddur í
heiminum. Boltinn var farinn að
rúlla. Ég opnaði fyrsta Magic Ice-
staðinn fyrir 15 árum.“
Mikil tækifæri í Asíu
Holmen er jafnframt stofnandi og
meðeigandi í ferðaskrifstofunni Top
of Europe, sem sérhæfir sig í skipu-
lögðum ferðum á Norðurlöndum
fyrir Asíumarkað, einkum Kína.
Hún segir aðspurð mikil tækifæri
fyrir slíkar ferðir á Íslandi. Til
dæmis séu milljónir Kínverja í fé-
lagi náttúruljósmyndara. Margir fé-
laganna séu í góðum efnum og
áhugasamir um ferðir á fjarlæga
staði.
„Við vorum nýverið á gríðarstórri
ráðstefnu áhugaljósmyndara í Kína.
Þeir hafa tvö félög. Annað félagið er
með 2,7 milljónir félagsmanna en
hitt 3,6 milljónir félagsmanna.
Markaðurinn er því stór. Við erum
að skipuleggja nýjar ferðir til Nor-
egs og Íslands og munum funda um
málið í Peking á þriðjudaginn kem-
ur,“ segir Holmen, sem ferðast mik-
ið vegna starfs síns.
Hún kveðst bjartsýn á gengi
ferðaþjónustunnar á Íslandi.
Byggja þurfi upp innviði. Hún hafi
meðal annars upplifað það sjálf sem
ferðamaður að það skorti hótelher-
bergi í miðborg Reykjavíkur.
Holmen segir aðspurð að Magic
Ice sé að skoða fleiri tækifæri á Ís-
landi. Meira sé ekki hægt að segja á
þessu stigi.
Teikning/PKDM arkitektar
Drög Svona sjá arkitektar fyrir sér að byggingarnar líti út.
Ljósmynd/Magic Ice/Birt með leyfi
Úr ís Þessi Magic Ice-staður minnir á fjarlæga reikistjörnu.
Morgunblaðið/Eggert
Horft úr kjallaranum Ísgalleríið verður í kjallaranum.
Opna ísgallerí og bar á Laugavegi
Morgunblaðið/Eggert
Á Laugavegi Kirsten-Marie Holmen og Daníel Þór Magnússon hjá Kviku.
Norskir fjárfestar opna sjötta Magic Ice-ísgalleríið í janúar Þar verður bar og 5 gráða frost
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
An extraordinary general meeting of CCP hf., company no. 450697-3469, will
be held on Saturday 22 September 2018 at the office of LOGOS Legal Services
at Efstaleiti5, 103Reykjavík, starting at 14:00 GMT.
AGENDA:
The agenda for the meeting shall be the following:
To give the Board of Directors authority to convert CCP hf. from a public
limited company (HF) to a private limited company (EHF).
To give the Board of Directors authority to deregister CCP’s electronically
registered share certificates and replace them with the same number of
physical share certificates.
To give the Board of Directors authority to amend the Articles of Association
to effect the above changes.
In order to perfect and exercise the conversion of CCP to a private limited
company and deregister the electronically registered share certificates,
Articles 1.01, 2.04, 2.07-2.10, 5.07 and 10.01 need to be either deleted or
amended accordingly.
Other business lawfully brought to the meeting.
Reykjavík, 14 September 2018
CCP‘s Board of Directors
1.
2.
EXTRAORDINARY GENERAL
MEETING OF CCP HF.
3.
4.
Daníel Þór Magnússon, sjóðsstjóri Fasteignaauðs, sem er sjóður í umsjón
Kviku banka, segir fimm til sex leigurými í boði í nýja húsnæðinu.
„Það eru viðræður í gangi við sterka leigutaka um önnur rými í húsinu.
Fasteignin er að mörgu leyti einstök og hún býður upp á fjölbreytta notk-
un. Þetta er eina verslunarhúsið í Reykjavík sem tengir saman tvær
helstu verslunargötur borgarinnar, Skólavörðustíg og Laugaveg. Tenging
eldri húsa við nýbyggingu er vandasöm en arkitektum hefur tekist það
mjög vel. Inngangurinn frá Laugaveginum er eins og viðsnúið þak sem er
ákveðin andhverfa. Áfram er svo gengið inn í eins konar leikmynd þar
sem hið nýja og gamla blandast saman, enda standa gömlu húsin að inn-
an. Með því að einfalda byggingarefnin og einskorða þau við gömlu efnin
og gler er gömlu húsunum sýnd virðing,“ segir Daníel. Hann segir fram-
kvæmdirnar á lokastigi. Áformað sé að opna hluta húsnæðisins fyrir jól.
Hluti hússins tilbúinn fyrir jól
BYGGINGARNAR TENGJA SAMAN TVÆR GÖTUR