Morgunblaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
SÆKTU APPIÐ
Sæktu Hreyfils appið - þannig ræður þú ferðinni!
Nú er auðvelt að panta bíl með snjallsímanum
Þú pantar
bíl,
2
3
1
og færð SMS
skilaboð
að bíllinn
sé kominn
fylgist
með
bílnum
í appinu
Hreyfils appið
fyrir iphone og android
á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is
eða í App Store og Google Play
Með Hreyfils appinu er fljótlegt og einfalt að panta leigubíl.
Þú getur líka pantað bíl fram í tímann, á tilteknum tíma næsta
sólarhringinn eða lengra.
Það eina sem þarf, er iPhone eða Android snjallsími.
Þú hleður niður Hreyfils-appi með App Store eða Google Play.
Þú pantar bíl, færð SMS skilaboð þegar bíllinn er mættur á
staðinn. Þú getur fylgst með hvar bíllinn er staddur hverju sinni.
Ef þú ferðast á vegum fyrirtækis getur þú valið viðskiptareikning
og opnað aðgang.
Hreyfils-appið er ókeypis.
Sæktu þér Hreyfils appið
og þú ræður ferðinni.
Hvalfjarðargöng verða lokuð í fjórar
nætur í næstu viku vegna viðhalds og
hreingerningar frá miðnætti til kl. 6
að morgni.
Lokað verður aðfaranótt þriðju-
dags 18., miðvikudags 19., fimmtu-
dags 20. og föstudags 21. september.
„Hausthreingerning“ í göngunum
hefur jafnan verið síðar á árinu en er
nú í september vegna eigendaskipta
mannvirkisins um næstu mán-
aðamót. Þetta er því í síðasta sinn
sem Spölur lokar Hvalfjarð-
argöngum vegna árvissra verka við
þrif og viðhald, segir í frétt á heima-
síðu Spalar.
Sem kunnugt er stendur til að
hætta gjaldtöku í göngin föstudaginn
28. september nk. Spölur mun síðan
afhenda ríkinu göngin til eignar og
rekstrar sunnudaginn 30. september.
Þar með lýkur 20 ára aðkomu fyr-
irtækisins að rekstri ganganna.
Vegagerðin mun reka göngin fyrir
hönd ríkisins. sisi@mbl.is
Göngin
lokuð í fjór-
ar nætur
Síðasta haust-
hreingerning Spalar
Ljósmynd/Spölur
Göngin Hreinsibílar verða á ferð-
inni að nóttu til í næstu viku.
Nýtt torg á Klambratúni, sem unnið
hefur verið að undanfarin misseri,
er nú tilbúið. Aðalhönnuður þess er
Elízabet Guðný Tómasdóttir, lands-
lagsarkitekt hjá Landslagi. Torgið
er staðsett sunnan við Kjarvals-
staði.
Torgið opnar möguleika á að
færa mannlífið á Klambratúni inn á
Kjarvalsstaði og starfsemi safnins
út undir bert loft, segir í frétt á
heimasíðu Reykjavíkurborgar.
Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safn-
stjóri Listasafns Reykjavíkur, segir
tilkomu torgsins tengja safnið betur
við Klambratún og að í framtíðinni
verði það nýtt með margvíslegum
hætti í sýningarstarfinu.
Torgið er hannað með listrænu
yfirbragði sem endurspeglar hönn-
un Kjarvalsstaða sem teiknaðir
voru af Hannesi Kristni Davíðssyni
arkitekt, en safnið er orðið eitt
helsta kennileiti borgarinnar, segir
í fréttinni.
Steyptir setstallar við torgið eru
gerðir úr sjónsteypu sem er einmitt
eitt helsta sérkenni safnsins. Stærsti
stallurinn fyrir framan safnabygg-
inguna skapi skjólgóðan áning-
arstað og viðburðatorg sem nýtist
fyrir stórar og minni uppákomur,
óháðar og í beinum tengslum við
starfsemi listasafnsins.
Þá var ráðist í endurbætur á lýs-
ingu á Klambratúni. Lýsingin þótti
ófullnægjandi og jafnvel hættuleg.
Bætt var við ljósastaurum og perur
endurnýjaðar. sisi@mbl.is
Nýtt torg á Klambratúni
Ljósmynd/Þráinn Hauksson
Nýja torgið Efnisvalið tekur mið af Kjarvalsstöðum sem eru í grenndinni.
Viðburðatorg sem nýtast mun fyrir ýmsar uppákomur
Áhugafólk um framtíðarþróun borg-
arskipulagsins er hvatt til þess að
koma til opins fundar í Safnahúsinu
við Hverfisgötu í Reykjavík klukkan
tólf í dag, laugardag. Fundurinn ber
yfirskriftina Til róttækrar skoðunar,
fundarstjóri verður Ögmundur Jón-
asson, fyrrverandi þingmaður og
ráðherra, og ræðumenn verða þau
Gestur Ólafsson skipulagsfræðingur
og arkitekt, Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson alþingismaður, Sigríður
Kristjánsdóttir skipulagsfræðingur
og Magnús Skúlason arkitekt.
Í fréttatilkynningu segir að mörg
dæmi séu um að arðsemissjónarmið
en ekki almannahagur ráði þróun
byggðar á höfuðborgarsvæðinu.
Vönduð og fagleg vinnubrögð eigi
erfitt uppdráttar og „varðstöðu-
menn lýðræðisins séu vart sjáan-
legir þegar handhafar peninganna
reisa kröfur sínar“. Sem dæmi um
þetta eru nefnd uppbyggingin á út-
varpsreitnum í Efstaleiti og fyrir-
huguð hótelbygging á Austurvelli.
Opinn fundur
um borgar-
skipulag