Morgunblaðið - 15.09.2018, Síða 23

Morgunblaðið - 15.09.2018, Síða 23
BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Verðbréfafyrirtækið Fossar mark- aðir hf. hafa fengið aðild að kaup- höllum Nasdaq í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi, en félagið er þar með fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið í meira en áratug til að tengjast er- lendum kauphöllum beint með þess- um hætti. Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa, segir í samtali við Morg- unblaðið að þessi aðild þýði að fyr- irtækið geti nú haft milligöngu um viðskipti í þessum kauphöllum milli- liðalaust, og bendir á að tvö íslensk fyrirtæki eru skráð í báðar þessar kauphallir, Össur og Arion banki. „Þetta gerir okkur kleift að þjónusta betur okkar viðskiptavini hér heima og erlendis,“ segir Haraldur. Hann segir að vaxandi áhugi sé hjá fjárfestum hér á landi að fjárfesta í verðbréfum utan Íslands. „Okkar tengslanet er þar að auki mjög al- þjóðlegt og með þessu getum við í raun þjónustað okkar erlendu við- skiptavini betur, ekki hvað síst fjár- festa frá Bandaríkjunum, sem hafa áhuga á að nota okkar þjónustu á fleiri mörkuðum en bara á Íslandi.“ Aukin samkeppnishæfni Haraldur segir að aðildin geri Fossa samkeppnishæfari hvað þjón- ustu á þessum mörkuðum varðar. Spurður að því hvort það hafi verið mikil vinna að fá þessa aðild, í ljósi þess að þeir eru fyrsta fyrirtækið í langan tíma til að tengjast þessum mörkuðum, segir Haraldur að svo sé, ekki hvað síst þegar kemur að því að hafa allt til staðar hvað varðar frá- gang og uppgjör viðskipta. Aðild fyr- irtækisins að Nasdaq Iceland hafi þó gert ferlið þægilegra en ella. Þrettán starfsmenn eru hjá Foss- um og segir Haraldur að ekki þurfi að bæta við fólki vegna aðildarinnar, a.m.k. ekki fyrst um sinn. Fossar hafa lengi sérhæft sig í þjónustu við erlenda fjárfesta sem vilja fjárfesta á Íslandi, og spurður um hvort að áhuginn sé enn mikill segist Haraldur áfram upplifa vax- andi áhuga á íslenska markaðnum. „Allar grunnstærðir í hagkerfinu eru mjög góðar. Við erum tiltölulega ný- komin úr umhverfi hafta, og hindr- unum til fjárfestinga erlendra aðila hér á landi er jafnt og þétt að fækka.“ Haraldur nefnir að alþjóðleg markaðssetning á Arion banka fyrir skráningu bankans á hlutabréfa- markað í sumar hafi aukið áhuga á Íslandi. „Það setti kastljósið á Ísland hjá mörgum aðilum sem hafa ekki beint því þangað í langan tíma. Nú er verk- efnið í framhaldinu að vinna með þessum aðilum.“ Fossar til Norðurlandanna  Arion-útboðið setti kastljósið aftur á Ís- land  Bandaríkja- menn áhugasamir Morgunblaðið/Eggert Verðbréf Haraldur segir að aðildin geri Fossum kleift að þjónusta viðskiptavini sína betur, hér heima og erlendis. FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 Audi Q7 e-tron quattro Rafmagnaður Nokkrir Audi Q7 e-tron quattro hlaðnir aukahlutum á einstöku tilboðsverði. Á rafmagninu kemstu flestra þinna daglegra ferða en í lengri ferðum tekur dísilvélin við. Listaverð 11.690.000 kr. Tilboðsverð 10.990.000 kr. Aukahlutir umfram staðalbúnað: • Sportsæti með leður-/alcantara áklæði • LED inniljósapakki • Samlitir brettakantar og stuðarar • Dökkar rúður • Audi Connect tenging fyrir SIM kort • Bakkmyndavél • Snjallsímatenging fyrir Apple CarPlay • Lengri hleðslukapall • Leðurklætt sport aðgerðastýri, fjögurra arma með flipaskiptingu • Lykillaust aðgengi með snertilausri opnun á afturhlera • 20” álfelgur 10-Spoke Star Design • Ambient inniljósapakki • Dráttarbeisli með bakkaðstoð • Hæðastillanleg loftpúðafjöðrun 5 ár a áb yr g ð fy lg ir fó lk sb íl u m H E K LU að u p p fy ll tu m ák væ ð u m áb yr g ð ar sk il m ál a. Þ á er að fi n n a á w w w .h ek la .i s/ ab yr g d Til afhend ingar strax Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á 15. september 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 112.72 113.26 112.99 Sterlingspund 147.14 147.86 147.5 Kanadadalur 86.56 87.06 86.81 Dönsk króna 17.551 17.653 17.602 Norsk króna 13.656 13.736 13.696 Sænsk króna 12.536 12.61 12.573 Svissn. franki 116.22 116.86 116.54 Japanskt jen 1.0102 1.0162 1.0132 SDR 157.65 158.59 158.12 Evra 130.93 131.67 131.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 156.7134 Hrávöruverð Gull 1206.65 ($/únsa) Ál 1981.0 ($/tonn) LME Hráolía 79.6 ($/fatið) Brent ● Íslenska krónan styrktist um ná- lægt 2% í gær. Breytingarnar eru taldar tengjast fregnum af útboði WOW air. „Eftir því sem fregnir hafa skýrst þá virðist bjartari yfir ferða- þjónustunni seinni partinn í dag [í gær] en útlit var fyrir í byrjun vikunnar. Það er túlkunin á markaði og endurspeglast í krónunni,“ segir Stefán Broddi Guð- jónsson, sérfræðingur hjá greining- ardeild Arion banka. Gengi íslensku krón- unnar styrkist um 2% STUTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.