Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 25

Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 Reykjavík Akranes Borgarnes göngHvalfjarðarl Veglyklar Veglyklarnir eru eign Spalar eins og kveðið er á um í áskriftarsamningum. Notendur skulu afhenda veglykla fyrir lok nóvember 2018 gegn 3.000 króna skilagjaldi fyrir hvern lykil. Tekið verður við lyklunum á skrifstofu Spalar ehf. á Akranesi og hjá • Olíudreifingu ehf. að Hólmaslóð 8-10 í Reykjavík • N1 Ártúnshöfða • N1 Háholti í Mosfellsbæ • N1 Borgarnesi • OLÍS í Borgarnesi Þeir sem ekki hafa tök á að skila veglyklum á þessa staði geta sent þá í umslagi til Spalar, Kirkjubraut 28, 300 AKRANES fyrir lok nóvember. Afar áríðandi er að með fylgi upplýsingar um nafn sendanda, kennitölu, símanúmer og bankaupplýsingar svo unnt sé að koma greiðslu til skila. Ekki er tekið við veglyklum í gjaldskýlinu í Hvalfirði. Spölur gerir upp við viðskiptavini sína Lokadagur innheimtu veggjalds í Hvalfjarðargöngum verður 28. september 2018*. Eftir það aka menn ókeypis um göngin. Í framhaldinu gerir Spölur upp við viðskiptavini sína með því að taka við veglyklum gegn skilagjaldi, greiða út inneignir á áskriftarreikningum og endurgreiða ónotaða afsláttarmiða. Með þökk fyrir viðskipti og samskipti í 20 ár! Tölur af afsláttarmiðum sem skrá skal á skilagreinar. Inneign á áskriftarreikningum • Notendur veglykla fá inneignir sínar á áskriftarreikningum greiddar þegar þeir hafa skilað veglyklum og fyllt út tilheyrandi skilagreinar. • Ef nauðsyn krefur áskilur Spölur sér lengri frest en 30 daga til að ljúka uppgjöri vegna þess að uppgjörsmálin skipta tugum þúsunda og taka óhjákvæmilega talsverðan tíma. Afsláttarmiðar Olíudreifing ehf. að Hólmaslóð 8-10 í Reykjavík tekur við afsláttarmiðum og skrifstofa Spalar á Akranesi. Þjónustustöðvar N1 taka ekki við afsláttar- miðum. Frestur til að skila rennur út 30. nóvember 2018. Afsláttarmiða má senda í umslagi til Spalar, Kirkjubraut 28, 300 AKRANES. Afar áríðandi er að með fylgi upplýsingar um nafn sendanda, kennitölu, símanúmer, bankaupplýsingar, fjölda afsláttarmiða og númer afsláttarmiða, til þess að unnt sé að koma greiðslu til skila! • Þjónustustöðvar N1 taka ekki við afsláttarmiðum. Nánari upplýsingar er að finna á vefnum spolur.is og þar er líka hægt að prenta út eyðublöð til útfyllingar fyrir þá sem senda Speli veglykla eða afsláttarmiða í pósti. Tölur af veglyklum sem skrá skal á skilagreina. Sími 431 5900. spolur@spolur.is *sjá fyrirvara í frétt á vefnum spolur.is Yfirvöld á Filippseyjum vöruðu í gær við því að fellibylurinn Mang- khut gæti valdið mikilli eyðilegg- ingu á norðurhluta Luzon, stærstu eyju landsins. Vindhraðinn mældist 57 m/s þeg- ar fellibylurinn kom að landi klukk- an 17.40 að íslenskum tíma í gær, kl. 1.40 að staðartíma, að sögn veð- urstofu landsins. Nokkrum klukkustundum áður var vindhraðinn 71 m/s þegar felli- bylurinn nálgaðist eyjuna. Þúsundir manna forðuðu sér frá heimilum sínum eftir að yfirvöld vöruðu við óveðrinu. Embættis- menn segja að fjórar til fimm millj- ónir manna búi á svæðinu sem spáð var að fellibylurinn færi yfir, þar af um milljón manna sem eru undir fátæktarmörkum og búa í húsum sem eru illa varin fyrir fellibyljum og úrhellinu sem fylgir þeim. Varað við háum öldum Flugferðum var aflýst, skólum lokað og hermenn voru tilbúnir til útkalls á svæðum þar sem talið var að koma þyrfti fólki til bjargar. Við- búnaðurinn var mestur í strandhér- uðunum Cagayan og Isabela. Yfirvöldin sögðu að stormöld- urnar sem fylgdu óveðrinu gætu orðið allt að sjö metra háar og ótt- ast var að þær gætu valdið miklu tjóni í fátækum fiskveiðiþorpum. Embættismenn vöruðu einnig við því að úrhellið gæti leitt til skriðu- falla og flóða. Stefnir að Kína Að meðaltali fara 20 fellibyljir eða stórviðri yfir Filippseyjar á ári. Embættismenn í Manila sögðu að fellibylurinn Mangkhut væri sá öfl- ugasti í ár. Mannskæðasti fellibyl- urinn í sögu landsins, Haiyan, kost- aði rúmlega 7.350 manns lífið þegar hann gekk yfir miðhluta landsins í nóvember 2013. „Yfirvöldin sögðu að fellibylurinn væri tvisvar sinnum öflugri en sá síðasti, þess vegna erum við ótta- slegin,“ hafði fréttaveitan AFP eft- ir konu í þorpi í norðurhluta Luzon- eyju. Hún sagði að þorpið hennar hefði síðast orðið fyrir öflugum fellibyl fyrir tveimur árum. „Við létum okkur hann að kenningu verða. Vatnið náði upp að þaki á húsinu okkar.“ Talið er að fellibylurinn komi að landi í Kína á morgun og fari yfir þéttbýl svæði við strönd landsins. Óttast mikla eyðileggingu í óveðrinu  Viðbúnaður í strandhéruðum við mesta fellibyl ársins á Filippseyjum AFP Þúsundir flúðu Filippseyingur ber dýnu inn í skóla þar sem fólk leitaði skjóls eftir að hafa forðað sér frá heimilum sínum í Cagayan-héraði vegna fellibyls sem kom að landi í norðurhluta Filippseyja síðdegis í gær. Bandaríska veðurstofan spáði því í gær að úrkoman sem fylgir fellibylnum Flórens yrði álíka mikil í Norður- og Suður-Karólínu og þegar fellibyljirnir Dennis og Floyd gengu yfir strandhéruð í Bandaríkjunum árið 1999. „Eini munurinn er sá að þá var úrkoman í fjórtán daga og við sjáum nú fram á sama úrkomumagn á þremur dögum,“ hafði fréttavefur CNN- sjónvarpsins eftir veðurfræðingnum Chris Wamsley. Fellibylurinn Flórens Heimild: Fellibyljastofnun Bandaríkjanna 250 km ATLANTSHAF B A N D A - R Í K I N Mexíkó- flói Í gær 14. sept. kl. 11.15 að ísl. tíma Kom að landi Bláa keilan sýnir mögulegt frávik frá spánni 06.00 Í dag 18.00 Í dag06.00 Á morgun 06.00 Mánudag 06.00 Þriðjudag Maryland Neyðarástandi lýst yfir Vindhraði WASHINGTON D.C. Virginía Vestur- Virg. Norður- KarólínaSuður-Karólína Braut fellibylsins skv. spá í gær 33-49 m/s 18-33 m/s < 18 m/s Í cm Heimild: Fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna, skv. spá sem var birt í fyrradag ATLANTSHAF B A N D A R Í K I N Mexíkó- flói Maryland Virginía WASHINGTON Norður-Karólína Suður-Karólína Georgía 250 km Úrkomuspá fyrir dagana 12. til 19. september Aftakarigning fylgir fellibylnum 50,8 38,1 25,4 15,2 10,2 5,1 2,5 Mikil úrkoma í þrjá daga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.