Morgunblaðið - 15.09.2018, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
Frábær smurefni sem einangra, verja
og koma í veg fyrir tæringu eins og
verkfæra o rafma nsvara.
100% eins árs RAKAVÖRN
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
og
og
Skákvertíðin fer vel af staðhjá elsta taflfélagi landsins,TR. Um síðustu helgi laukvel sóttu móti í bikarsyrpu
barna en þar voru tefldar sjö um-
ferðir með tímamörkunum 30 30. Þá
hófst Haustmót TR á sunnudaginn
en lengi vel voru forráðamenn fé-
lagsins uggandi um þátttökuna, en
það var að einhverju leyti ástæðu-
laust því að undanfarin ár hafa þátt-
takendur á skákmótum tekið upp
þann leiða sið að skrá sig til keppni
rétt áður en skráningarfrestur
rennur út.
Á lokamínútum bættust í hóp
keppenda fjölmargir sterkir skák-
menn í mótið og er þátttakan með
besta móti. Teflt er í þrem átta
manna riðlum þar sem allir tefla við
alla og svo er einn vel skipaður op-
inn flokkur.
Í A-flokki eru keppendur í stiga-
röð þessir: Björn Þorfinnsson, Vign-
ir Vatnar Stefánsson, Dagur Ragn-
arsson, Magnús Pálmi Örnólfsson,
Þorvarður Ólafsson, Jóhann Ingva-
son, Gauti Páll Jónsson og Aron
Thor Mai.
Björn Þorfinnsson er stigahæsti
keppandi mótsins og þ.a.l. sá sigur-
stranglegasti. Hann vann örugglega
í fyrstu umferð og virtist ætla að
vinna Dag Ragnarsson í 2. umferð.
Það var hörð baráttuskák þar sem
Björn fékk betra eftir byrjunina,
Dagur jafnaði taflið en virtist teygja
sig of langt í endatafli og Björn náði
aftur betri stöðu. Dagur missti af
nokkrum þvinguðum jafnteflis-
leiðum og eftir langa og stranga
baráttu kom þessi staða upp:
Dagur Ragnarsson – Björn Þor-
finnsson
Það er ótrúlegt annað en að
Björn hafi séð 75. ... Rf6+! sem
vinnur strax. Kannski hefur hann
haldið að Dagur myndi leika 76.
Kxg5 Rxe8 77. d7 en þá kemur
skemmtileg vending, 77. ... Rd6! og
78. d8(D) er svarað með 78. ... Rf7+
og hin nýfædda drottning fellur.
Hvítur getur hinsvegar vakið upp
riddara, 78. d8(R) en sá er of skref-
stuttur, 78. ... f3 79. Rc6+ Ke4 80.
Ra5 f2 81. Rb3 Ke3! og f-peðið
rennur upp í borð. Björn lék hins-
vegar …
75. ... Ke4??
… og eftir
76. Kxg5 f3 77. Rf6+ Rxf6 78.
Kxf6 f2 79. d7 f1(D)+ 80. Ke7!
… gat hann ekki hindrað för d-
peðsins upp í borð og mátti sætta
sig við jafntefli.
Meistaramót Hugins hófst svo á
mánudagskvöldið síðasta og er einn-
ig vel skipað. Meira um það síðar.
Kasparov gengur illa í „Fisc-
her random“
Það hefur allt gengið á afturfót-
unum hjá Garrí Kasparov í sýning-
areinvígi hans við Búlgarann Ven-
selin Topalov sem hófst 11.
september. Eftir þriðja keppnisdag
á fimmtudaginn var Topalov með
örugga forystu, 10 ½ : 7 ½. Keppn-
isfyrirkomulagið hefur verið með
þeim hætti að tefldar hafa verið
fjórar skákir á dag, tvær atskákir
(tímamörk 30 10 Bronstein) og tvær
hraðskákir ( tímamörk 5 5 Bron-
stein).
Atskákirnar hafa meira vægi en
fyrir sigur þar fást tveir vinningar
gegn einum í hraðskákinni. Þess
vegna hefur Topalov þriggja vinn-
inga forskot; hann hefur unnið fjór-
ar atskákir en Kasparov tvær en í
hraðskákunum er staðan Kasparov í
hag, 3 ½ : 2 ½.
Ein upphafsstaða af 960 mögu-
legum hefur verið dregin út fyrir
hvern keppnisdag og margar
skrítnar og skemmtilegar stöður
séð dagsins ljós. Þó að einvígi Kasp-
arovs og Topalovs veki mesta at-
hygli eru hin ekki síður athygl-
isverð. Þar var staðan þessi:
Aronjan – Dominguez 12: 6, So –
Giri 11 : 7, Nakamura – Svidler 9 ½
: 8 ½, Vachier-Lagrave – Shank-
land 11 ½: 6 ½.
Vel skipaður efsti
flokkur á Haustmóti TR
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Sveit Hörðuvallaskóla úr Kópavogi vann yfirburðasigur á Norðurlandmóti
grunnskólasveita, eldri flokki, sem fram fór í Finnlandi um síðustu helgi.
Sveitin hlaut 17½ vinning af 20 mögulegum. Hér sitja að tafli, f.v.: Vignir
Vatnar Stefánsson, Arnar Milutin Heiðarsson, Sverrir Hákonarson og
Benedikt Briem. Aðrir í sveitinni voru Stephan Briem og Óskar Há-
konarson auk liðsstjórans Gunnars Finnssonar.
Ljósmynd/Kjartan Briem
Yfirburðasigur á NM grunnskólasveita
Ég vil vekja athygli á Barnalopp-
unni, en þar er bæði hægt að kaupa
og selja notaða barnavöru, allt frá
fötum og leikföngum til barnavagna
og bílstóla. Hver kannast ekki við að
sitja upp með nær ónotuð barnaföt,
því barnið vex en brókin ekki. Endi-
lega gefið fötum og öðru barnadóti
nýtt líf.
Elsa.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Barnaloppan
Morgunblaðið/Eggert
Markaður Allt sem snýr að barnavörum er hægt að selja í Barnaloppunni.
Bílar