Morgunblaðið - 15.09.2018, Síða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
Það hefur tekið
áratugi að byggja upp
viðunandi hafn-
araðstöðu í Þorláks-
höfn og nú vantar að-
eins herslumun til að
gera höfnina eins
örugga og kostur er.
Suðurgarð þarf að
lengja til austurs og
dýpka grynnslin í
innsiglingarleiðinni
svo aðkoman að höfn-
inni verði örugg í öllum veðrum.
Þetta er ekki lengur alfarið hags-
munamál íbúa í Þorlákshöfn og
Ölfusi. Siglingar Smyril Line
Cargo með skipinu Mykinesi hafa
opnað nýja og ódýrari leið fyrir
fragtsiglingar frá meginlandi Evr-
ópu til Íslands sem hreinlega hafa
slegið í gegn á fyrsta árinu hjá
innflytjendum og útflytjendum.
Flutningskostnaður 40% lægri
Í apríl 2017 hóf færeyska félag-
ið Smyril Line Cargo siglingar á
róró-skipinu Mykinesi á milli Rot-
terdam í Hollandi og Þorláks-
hafnar með viðkomu í Þórshöfn í
Færeyjum á leiðinni til Íslands.
Þessi tilraun sem staðið hefur í
rúmlega eitt ár er komin til að
vera og Smyril Line og hafnaryf-
irvöld í Þorlákshöfn hafa nú gert
með sér nýjan langtímasamning
sem tryggir Þorlákshöfn meiri og
öruggari tekjur. Strax á fyrsta
árinu eru tekjur hafnarinnar af
inn- og útflutningi með Mykinesi
langt umfram væntingar. Þessar
tekjur munu breyta öllu í rekstri
og afkomu hafnarinnar á komandi
árum. Með tilkomu
þessarar siglinga-
leiðar hafa farmgjöld
til og frá landinu
lækkað flutnings-
kostnað einstaklinga
og fyrirtækja um 40%
en það er helsta
ástæðan fyrir þeirri
velgengni sem Þor-
lákshöfn og Smyril
Line Cargo hafa notið
strax á fyrsta árinu.
Minna kolefnisspor
til Þorlákshafnar
Vegna legu hafnarinnar er sigl-
ingatíminn frá Rotterdam til Þor-
lákshafnar 16 klukkustundum
styttri en ef siglt er á Faxaflóa-
hafnir. Þess vegna nær eitt skip
að dekka siglingaáætlunina í viku-
legum siglingum milli Íslands og
meginlands Evrópu, en komið er
við í Þórshöfn í Færeyjum á leið-
inni frá Rotterdam. Styttri sigl-
ingatími sem nemur 16-18 klukku-
stundum hefur jákvæð áhrif á
fleiri þætti. Kolefnisspor vöru-
flutninga þessa sjóleið til og frá
landinu er mun minna en til ann-
arra áfangastaða við Faxaflóa eða
þeirra hafna sem eru lengra frá
stærstu mörkuðum landsins.
Lægra vöruverð og
samkeppnishæfni
Ferskar sjávarafurðir og
eldisfiskur sem fara vikulega á
föstudagskvöldum með Mykinesi
eru komnar til sölu á mörkuðum
síðdegis á mánudegi í vestanverðri
Evrópu en á þriðjudagsmorgni á
Ítalíu, Spáni og í Portúgal. Með
þessari nýju og styttri sigl-
ingaleið, lægri flutningsgjöldum
sem nemur 40%, ætti það að hafa
áhrif til lækkunar á vöruverði á
Íslandi og gera útflutningsgreinar
samkeppnishæfari á erlendum
mörkuðum.
Tollsvæðið sem höfnin útbjó í
upphafi fyrir innflutning er löngu
sprungið, þess vegna er nýtt
40.000 fermetra afgirt og upplýst
tollsvæði norðan hafnarinnar að
verða klárt í notkun til að mæta
mikilli og brýnni þörf. Frá Þor-
lákshöfn eru greiðar samgöngur
við höfuðborgarsvæðið og Vest-
urland um Þrengsla- og Suður-
landsveg, um Ölfusárbrú að Sel-
fossi og Suður- og Suðausturland
og um Suðurstrandarveg við Suð-
urnes og alþjóðaflugvöllinn í
Keflavík.
Þorlákshöfn er vel staðsett í 50
km radíus frá markaðssvæði þar
sem 2/3 hlutar þjóðarinnar búa og
starfa. Auk nálægðar við stærsta
markaðinn eru helstu náttúru- og
ferðamannaperlur landsins í innan
við 2-3 klst. akstur frá höfninni í
Þorlákshöfn, en skemmtiferðaskip
hafa komið inn í höfnina á þessu
ári og þeim gæti fjölgað.
Nýr lóðsbátur og
bætt innsigling
Þær breytingar sem gerðar hafa
verið á innviðum hafnarinnar í
Þorlákshöfn á liðnum árum hafa
tekist framúrskarandi vel og verið
langt undir kostnaðaráætlun. Lag-
færingin hefur gjörbreytt aðstöðu
og möguleikum hafnarinnar til að
taka á móti stærstu skipum sem
til landsins koma. Það liggur þó
fyrir að innsiglingin í höfnina þeg-
ar hvass vindur er að sunnan eða
suðaustan gerir innsiglinguna
varasama á stórum skipum með
mikið vindfang. Þess vegna höfðu
skipstjórnarmenn á Mykinesi æft
innsiglinguna í Þorlákshöfn í sigl-
ingahermi, alls um 200 inn- og út-
siglingar, áður en vikulegar sigl-
ingar hófust. Þeir voru því við öllu
búnir en í erfiðustu aðstæðunum
sem áður er getið þarf skipið að
sigla á töluverðum hraða til að
halda stefnu við þröngar og krefj-
andi aðstæður. Þessar aðstæður
þarf að lagfæra til að bæta öryggi
hafnarinnar og sjófarenda við suð-
urströndina og hluti af því er að
nýr og öflugri lóðsbátur verði
fenginn að höfninni.
Sveitarfélagið Ölfus er öflugt
samfélag í mikilli sókn og hefur
yfir sterkum innviðum að ráða,
auk nægs landrýmis til að takast á
við aukin verkefni á sviði farm- og
farþegaflutninga. Þar er hefð fyrir
öflugri útgerð og fiskvinnslu, út-
flutningur á vikri og öðrum jarð-
efnum hefur farið fram um höfn-
ina í áratugi og fiskeldi vex fiskur
um hrygg í sveitarfélaginu. Í fárra
kílómetra fjarlægð frá höfninni
eru ein gjöfulustu vatnsvernd-
arsvæði landsins sem og öflugt
jarðhitasvæði sem eru óinnheimt
tækifæri fyrir framtíðina.
Þorlákshöfn hefur sannað gildi
sitt – flutningskostnaður 40% lægri
Eftir Ásmund
Friðriksson
»Með tilkomu þess-
arar siglingaleiðar
hafa farmgjöld til og frá
landinu lækkað flutn-
ingskostnað einstaklinga
og fyrirtækja um 40%.
Ásmundur
Friðriksson
Höfundur er alþingismaður.
asmundurf@althingi.is
Ljósmynd/Eigandi Þorlákshöfn
Þorlákshöfn Mykines í höfninni.