Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 30

Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 Það hefur tekið áratugi að byggja upp viðunandi hafn- araðstöðu í Þorláks- höfn og nú vantar að- eins herslumun til að gera höfnina eins örugga og kostur er. Suðurgarð þarf að lengja til austurs og dýpka grynnslin í innsiglingarleiðinni svo aðkoman að höfn- inni verði örugg í öllum veðrum. Þetta er ekki lengur alfarið hags- munamál íbúa í Þorlákshöfn og Ölfusi. Siglingar Smyril Line Cargo með skipinu Mykinesi hafa opnað nýja og ódýrari leið fyrir fragtsiglingar frá meginlandi Evr- ópu til Íslands sem hreinlega hafa slegið í gegn á fyrsta árinu hjá innflytjendum og útflytjendum. Flutningskostnaður 40% lægri Í apríl 2017 hóf færeyska félag- ið Smyril Line Cargo siglingar á róró-skipinu Mykinesi á milli Rot- terdam í Hollandi og Þorláks- hafnar með viðkomu í Þórshöfn í Færeyjum á leiðinni til Íslands. Þessi tilraun sem staðið hefur í rúmlega eitt ár er komin til að vera og Smyril Line og hafnaryf- irvöld í Þorlákshöfn hafa nú gert með sér nýjan langtímasamning sem tryggir Þorlákshöfn meiri og öruggari tekjur. Strax á fyrsta árinu eru tekjur hafnarinnar af inn- og útflutningi með Mykinesi langt umfram væntingar. Þessar tekjur munu breyta öllu í rekstri og afkomu hafnarinnar á komandi árum. Með tilkomu þessarar siglinga- leiðar hafa farmgjöld til og frá landinu lækkað flutnings- kostnað einstaklinga og fyrirtækja um 40% en það er helsta ástæðan fyrir þeirri velgengni sem Þor- lákshöfn og Smyril Line Cargo hafa notið strax á fyrsta árinu. Minna kolefnisspor til Þorlákshafnar Vegna legu hafnarinnar er sigl- ingatíminn frá Rotterdam til Þor- lákshafnar 16 klukkustundum styttri en ef siglt er á Faxaflóa- hafnir. Þess vegna nær eitt skip að dekka siglingaáætlunina í viku- legum siglingum milli Íslands og meginlands Evrópu, en komið er við í Þórshöfn í Færeyjum á leið- inni frá Rotterdam. Styttri sigl- ingatími sem nemur 16-18 klukku- stundum hefur jákvæð áhrif á fleiri þætti. Kolefnisspor vöru- flutninga þessa sjóleið til og frá landinu er mun minna en til ann- arra áfangastaða við Faxaflóa eða þeirra hafna sem eru lengra frá stærstu mörkuðum landsins. Lægra vöruverð og samkeppnishæfni Ferskar sjávarafurðir og eldisfiskur sem fara vikulega á föstudagskvöldum með Mykinesi eru komnar til sölu á mörkuðum síðdegis á mánudegi í vestanverðri Evrópu en á þriðjudagsmorgni á Ítalíu, Spáni og í Portúgal. Með þessari nýju og styttri sigl- ingaleið, lægri flutningsgjöldum sem nemur 40%, ætti það að hafa áhrif til lækkunar á vöruverði á Íslandi og gera útflutningsgreinar samkeppnishæfari á erlendum mörkuðum. Tollsvæðið sem höfnin útbjó í upphafi fyrir innflutning er löngu sprungið, þess vegna er nýtt 40.000 fermetra afgirt og upplýst tollsvæði norðan hafnarinnar að verða klárt í notkun til að mæta mikilli og brýnni þörf. Frá Þor- lákshöfn eru greiðar samgöngur við höfuðborgarsvæðið og Vest- urland um Þrengsla- og Suður- landsveg, um Ölfusárbrú að Sel- fossi og Suður- og Suðausturland og um Suðurstrandarveg við Suð- urnes og alþjóðaflugvöllinn í Keflavík. Þorlákshöfn er vel staðsett í 50 km radíus frá markaðssvæði þar sem 2/3 hlutar þjóðarinnar búa og starfa. Auk nálægðar við stærsta markaðinn eru helstu náttúru- og ferðamannaperlur landsins í innan við 2-3 klst. akstur frá höfninni í Þorlákshöfn, en skemmtiferðaskip hafa komið inn í höfnina á þessu ári og þeim gæti fjölgað. Nýr lóðsbátur og bætt innsigling Þær breytingar sem gerðar hafa verið á innviðum hafnarinnar í Þorlákshöfn á liðnum árum hafa tekist framúrskarandi vel og verið langt undir kostnaðaráætlun. Lag- færingin hefur gjörbreytt aðstöðu og möguleikum hafnarinnar til að taka á móti stærstu skipum sem til landsins koma. Það liggur þó fyrir að innsiglingin í höfnina þeg- ar hvass vindur er að sunnan eða suðaustan gerir innsiglinguna varasama á stórum skipum með mikið vindfang. Þess vegna höfðu skipstjórnarmenn á Mykinesi æft innsiglinguna í Þorlákshöfn í sigl- ingahermi, alls um 200 inn- og út- siglingar, áður en vikulegar sigl- ingar hófust. Þeir voru því við öllu búnir en í erfiðustu aðstæðunum sem áður er getið þarf skipið að sigla á töluverðum hraða til að halda stefnu við þröngar og krefj- andi aðstæður. Þessar aðstæður þarf að lagfæra til að bæta öryggi hafnarinnar og sjófarenda við suð- urströndina og hluti af því er að nýr og öflugri lóðsbátur verði fenginn að höfninni. Sveitarfélagið Ölfus er öflugt samfélag í mikilli sókn og hefur yfir sterkum innviðum að ráða, auk nægs landrýmis til að takast á við aukin verkefni á sviði farm- og farþegaflutninga. Þar er hefð fyrir öflugri útgerð og fiskvinnslu, út- flutningur á vikri og öðrum jarð- efnum hefur farið fram um höfn- ina í áratugi og fiskeldi vex fiskur um hrygg í sveitarfélaginu. Í fárra kílómetra fjarlægð frá höfninni eru ein gjöfulustu vatnsvernd- arsvæði landsins sem og öflugt jarðhitasvæði sem eru óinnheimt tækifæri fyrir framtíðina. Þorlákshöfn hefur sannað gildi sitt – flutningskostnaður 40% lægri Eftir Ásmund Friðriksson »Með tilkomu þess- arar siglingaleiðar hafa farmgjöld til og frá landinu lækkað flutn- ingskostnað einstaklinga og fyrirtækja um 40%. Ásmundur Friðriksson Höfundur er alþingismaður. asmundurf@althingi.is Ljósmynd/Eigandi Þorlákshöfn Þorlákshöfn Mykines í höfninni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.