Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 32

Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is SUZUKI SWIFT GL nýskr. 06/2015, ekinn 95 Þ.km, bensín, sjálfskiptur. Verð 1.490.000 kr. Raðnúmer 258433 SUZUKI SWIFT GL nýskr. 05/2016, ekinn 74 Þ.km, bensín, sjálfskiptur. Verð 1.590.000 kr. Raðnúmer 258418 ÓSKUM EFTIR BÍLUMÁ SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI PORSCHE CAYENNE S Árg. 2004, ekinn 173 Þ.km, 8 cyl bensín, sjálfskiptur, leður, lúga ofl. Gott eintak! TILBOÐSVERÐ 1.190.000 kr. Raðnúmer 258288 KIA SPORTAGE EX nýskr. 03/2017, ekinn 58 Þ.km, diesel, sjálfskiptur. TILBOÐSVERÐ 3.790.000 kr. Raðnúmer 258417 FORD EXPLORER LIMITED 4X4 09/2008, ekinn 188 Þ.km,V8 bensín, sjálfskiptur. Glæsilegur jeppi! Verð 1.880.000 kr. Raðnúmer 258405 Bílafjármögnun Landsbankans Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2019 Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til heilsueflingar og forvarna. Áhersla er lögð á eftirfarandi: • Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu. • Verkefni sem tengjast geðrækt barna. • Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu. • Áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir. • Verkefni sem tengjast kynheilbrigði. • Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu, eða verkefni sem eru til þess fallin að stuðla að auknu jafnrétti kynjanna í tengslum við heilsu. Við úthlutun verður tekið mið af eftirfarandi stefnum: • Lýðheilsustefnu og aðgerðum sem stuðla að heilsueflandi samfélagi. • Stefnu í áfengis- og vímuvörnum til 2020. • Stefnu og aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum til 2020. Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang: • Sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila. • Eru með eigin fjármögnun eða aðra fjármögnun. Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið. Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila framvinduskýrslu að verkefni loknu. Opnað verður fyrir umsóknir þann 20. september en frestur til að sækja um rennur út þann 15. október 2018. Sótt er um á vefsvæði Lýðheilsusjóðs http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/ Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins. Embætti landlæknis - Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík - Sími 510 1900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is Atvinnublað Morgunblaðsins fimmtudaga og laugardaga Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað? Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í s Allar auglýsingar birtast í Mogganum, ámbl.is og finna íma 569 1100 .is Okkar ágæti fjár- málaráðherra og for- maður Sjálfstæð- isflokksins, Bjarni Benediktsson, hefur margoft haldið því fram að greiðslur til eldri borgara hafi hækkað úr 200 þús. krónum á mánuði í 300 þúsund krónur á mánuði. Kaupmáttur launa þeirra sem séu á lágmarks- kjörum hafi því vaxið mjög. Hér er ekki rétt farið með stað- reyndir. Eingöngu þeir eldri borg- arar sem búa einir hafa tryggingu fyrir því að fá 300 þús. kr. greiðslu á mánuði (um 250 þús. kr. útborg- aðar). Þessi hópur er um 20% af eldri borgurum landsins. Hjónum og sambýlisfólki eru tryggðar 240 þús. kr. á mánuði (um 200 þús. kr. útborgaðar). Það er því mjög villandi og hrein- lega rangt hjá fjármálaráðherra að öllum eldri borgurum séu tryggðar 300 þús. kr. á mánuði. Það er nauðsynlegt að leiðrétta þessar endurteknu fullyrðingar fjármálaráðherra. Vissulega var það til bóta að þeir sem búa einir fengju lagfæringu, en það gengur ekki að einstaklingur í hjónabandi eða í sambúð fái 60 þús. kr. lægri upp- hæð á mánuði en þeir sem búa einir. Hvers vegna fá eldri borgarar ekki lagfæringu sinna kjara? Um síðustu áramót voru greiðslur frá Almannatryggingum hækkaðar um 4,6% til eldri borgara sem fá greiðslur frá TR. Launaþró- unin var samt 7,1%. Samkvæmt nýframlögðu fjárlaga- frumvarpi ríkisstjórnar Vinstri- grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er ekki hægt að sjá að hagsmunir eldri borgara séu ofarlega á blaði. Fyrir síðustu kosn- ingar vantaði ekki fögur fyrirheit um að bæta þyrfti kjör þeirra verst settu á meðal eldri borgara. Það er staðreynd að á síðustu mánuðum hafa margir starfshópar fengið myndarlegar lagfæringar á sínum kjörum. Þar var ekki verið að tala um neinar litlar tölur í flestum tilfellum. Hækkanir námu tugum prósenta til margra, þar á meðal til alþingismanna og ráðherra. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu munu greiðslur frá Trygginga- stofnun hækka um 3,4% til eldri borgara um næstu ára- mót. Það á svo að gilda fyrir allt árið 2019, hvað sem líður nið- urstöðu kjarasamninga á vinnumarkaðnum. Engar breytingar á almenna frítekjumark- inu, sem er og verður 25 þús. á mánuði, og áfram óbreytt tala á þeirri upphæð sem má vinna fyrir án skerð- ingar, eða 100 þúsund kr. á mánuði. Ætla stéttarfélögin að standa með okkur? Fram undan er hjá flestum stétt- arfélögum að vinna að því að ná samningum fyrir sína félagsmenn. Opinberir aðilar hafa gefið út að ekki sé meira svigrúm til launa- hækkana en 4%. Ef sú tala verður notuð til að leiðrétta kjör þeirra verst settu hlýtur svigrúmið að aukast. Núverandi eldri borgarar eru fyrrverandi félagar í stéttarfélagi. Ætlar forysta stéttarfélaganna að horfa upp á það aðgerðalaus að skammta eigi 3,4% hækkun til þeirra sem fá greiðslur frá Trygg- ingastofnun? Velferðarráðuneytið gefur út að framfærslukostnaður einstaklings sé um 350 þúsund krónur á mánuði. Það er því furðulegt að for- ystumenn ríkisstjórnarinnar skuli ekki gera sér grein fyrir að það get- ur ekki gengið lengur hvernig stór hluti eldri borgara er meðhöndl- aður. Auðvitað hafa margir eldri borgarar það ágætt, en það er of stór hópur í þeirra röðum sem hef- ur það verulega slæmt. Því miður virðist ekkert vera í farvatninu til að lagfæra þá stöðu af hálfu yf- irvalda. Því spyr ég: Ætla stéttarfélögin ekkert að gera í því í viðræðum sín- um við stjórnvöld að setja það á oddinn að eldri borgarar landsins fái lagfæringu á kjörum sínum? Rangt að allir fái 300 þúsund krónur Eftir Sigurð Jónsson Sigurður Jónsson » Það er því mjög villandi og hreinlega rangt hjá fjármála- ráðherra að öllum séu tryggðar 300 þús. kr. á mánuði. Höfundur er varaformaður Landssambands eldri borgara. Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.