Morgunblaðið - 15.09.2018, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 15.09.2018, Qupperneq 38
Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 hönd hennar og kyssti á ennið. „Bíddu,“ sagði hún, kreisti hönd mína og horfði í augu mín. „Takk fyrir að Kristín kom heim.“ „Það var ekki mitt,“ svaraði ég, „hún Kristín á alfarið heiðurinn af því.“ Þannig voru síðustu samskipti okkar Svövu, sem eru um leið svo lýsandi fyrir þessa sterku, góðu og fallegu konu sem nú hefur fengið hvíld frá þrautum veikind- anna. Tenging okkar var í mörg- um lögum, fyrst í gegnum pabba og mömmu, trésmíði og Kerling- arfjöll, svo varð Kristín nemandi hjá okkur í umhverfisskipulaginu og ég man hvað Svava varð glöð. Þá urðu Sigmar og Axel Máni minn góðir vinir og seinna urðu Pétur Ómarsson og Vignir sonur Kristjáns Inga allra bestu vinir Gutta míns og margt var nú brall- að. Stofnað var smíðafyrirtækið PG (Pétur og Gutti) með sömu nöfnum og smiðirnir og vinirnir afar þeirra, smíðað og sett upp skrifstofa. Síðastliðið haust fluttu svo Kristín og Øyvind heim frá Noregi með börnin þrjú og hún hóf störf við umhverfis- skipulagsbraut Landbúnaðar- háskóla Íslands, þar sem hún hef- ur nú verið ráðin í stöðu lektors. En það voru þó ekki þessar teng- ingar sem skiptu mestu máli í samskiptum okkar Svövu. Það var kjarninn sem bjó í konunni, kjarninn sem tók MS-veikindun- um af einstöku æðruleysi, svo eft- ir var tekið, kjarninn sem spurði um líðan annarra og talaði um það sem raunverulega skipti máli. Í kjarnanum áttum við löng gefandi samtöl sem búa með mér. Það er líkn að vera leystur frá kvölum en alltaf jafn sársauka- fullt fyrir þá sem eftir lifa að fletta á þessa blaðsíðu í lífsbókinni. En huggun er í góðum minningum, einstakri konu sem var elskuð af öllum og mun lifa sem fyrirmynd með breytni sinni. Elsku Pétur minn, Ómar, Kristján, Kristín, Sigmar, Pétur, Vignir og stórfjöl- skyldan öll. Okkar kærleiksrík- ustu kveðjur sendast frá mér, mömmu, Axel Mána og Gutta. Helena Guttormsdóttir. Haustið 1967 kom til náms- dvalar í Hússtjórnarskólann að Varmalandi föngulegur hópur ungra stúlkna. Kennarar við skól- ann voru þá Steinunn Ingimund- ardóttir skólastjóri, Elín Magnús- dóttir, Rósa Finnsdóttir, Katrín Hjálmarsdóttir og Snjólaug Guð- mundsdóttir. Í hópnum voru vin- konurnar Svava Kristjánsdóttir og Guðfinna Magnúsdóttir, en þær kynntust í Reykholtsskóla fjórtán ára gamlar og hélst þeirra góða vinátta alla tíð síðan. Þetta var góður hópur, glaðvær, dug- legur og námfús. Námið lá vel við Svövu og var hún í alla staði góður nemandi. Haustið 1968 var Svava ráðin aðstoðarstúlka við skólann til vorsins 1969. Það var sama hvort hún aðstoðaði í eldhúsi, þvottahúsi, saumum eða vefnaði, alls staðar gekk hún ákveðin og fumlaus til verka og leysti þau fljótt og vel af hendi. Þennan vet- ur óf Svava stórt veggteppi sem hékk í borðstofu sólans allt þar til skólinn var aflagður árið 1986. Teppið er nú varðveitt í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borganesi. Svava hafði rólegt og glaðlegt yfirbragð og þar mátti sjá ákveðna, heiðar- lega, heilsteypta og góða konu. Glettin var hún og oft til í prakk- arastrik og það var gott að hlæja með henni. Svava og Pétur kynnt- ust um það leyti sem hún var á Varmalandi og bjuggu þau fyrst á Akranesi, síðan um tíma í Dan- mörku og eftir það á Hvanneyri. Pétur er smiður að mennt og stofnuðu þau hjónin fyrirtækið P.J. Byggingar ehf. Svava sá um bókhald fyrirtækisins og átti sinn þátt í velgengni þess. Svava og Pétur eignuðust þrjú myndarleg börn sem öll eru búsett á Hvann- eyri og nú hafa synir þeirra tekið við rekstri fyrirtækisins. Fyrir nokkrum árum greindist Svava með MS-sjúkdóminn sem með tímanum fór hægt versnandi. Sjúkdóminn bar Svava með miklu æðruleysi og var hvorki með væl né vol heldur hélt hún glaðlynd- inu og sínum heilsteypta persónu- leika, ákveðin í að njóta lífsins eins og hægt var – dugleg að fara á mannamót og ferðast um með dyggri aðstoð Péturs. Í vor sem leið hittist hópurinn sem kom í Varmaland haustið 1967 og voru þá liðin fimmtíu ár frá útskrift þeirra. Okkur kennurunum var boðið og mættum við allar fjórar og áttum gleðilegan og góðan endurfund. Steinunn er látin fyrir nokkrum árum. Vinkonurnar Svava og Guðfinna tóku á móti hópnum á heimili Svövu og Pét- urs þar sem þær buðu upp á góm- sæta súpu að kvöldi fimmtudags- ins og síðan var farið um Borgar- fjörð á föstudeginum undir leiðsögn Péturs. Um kvöldið borðuðum við saman í matsal Landbúnaðarháskólans og var Svava með okkur allt kvöldið. Skömmu áður en við hittumst hafði Svava greinst með krabba- mein og gegn því barðist hún með sínum sterka lífsvilja að vopni þar til yfir lauk. Ég vil með þessum orðum senda Pétri og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur frá okkur sem kenndum á Varma- landi veturinn nítjánhundruð sex- tíu og sjö til átta og vorum sam- kennarar Svövu veturinn á eftir. Minningin um gegnheila, glað- væra og sterka vinkonu mun lifa með okkur öllum sem henni kynntumst. Snjólaug Guðmundsdóttir. Nú er komið að kveðjustund hjá kærri vinkonu, Svövu Sjöfn, og margar minningar streyma fram um árin frá því við kynnt- umst, en eiginmenn okkar eru báðir félagar í Oddfellowreglunni á Akranesi. Svava gekk til liðs við Rbst. Nr. 5, Ásgerði I.O.O.F. snemma árs árið 2000, og starfaði ötullega í stúkunni meðan heilsan leyfði. Hún hvatti mig síðan eindregið til að ganga til liðs við þennan góða félagsskap rúmu ári síðar og var stoð mín og stytta á fyrstu skref- um mínum í Reglunni. Margar ógleymanlegar minn- ingar eigum við hjónin frá ferða- lögum, bæði innanlands og utan með Svövu og Pétri, sem voru frá- bærir ferðafélagar. Ekki má held- ur gleyma höfðinglegum mót- tökum á þeirra fallega heimili á Hvanneyri sem þau höfðu nýverið byggt sér á frábærum stað með útsýni yfir Borgarfjörðinn, heim- ili þar sem allt var hugsað með þarfir Svövu í huga. Svava var glæsileg kona sem ég bar mikla virðingu fyrir og við hjónin þökkum fyrir vináttu hennar og samfylgd á liðnum ár- um og hana viljum við kveðja með þessum orðum. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Kristný Lóa og Ólafur. Elskuleg vinkona okkar Svava Sjöfn Kristjánsdóttir frá Óslandi er látin eftir áralanga baráttu við illvígan og óvæginn MS-sjúkdóm. Fyrir stuttu greindist hún svo öll- um á óvart með krabbamein sem hún varð að lúta fyrir eftir hetju- lega baráttu. Hún sýndi ótrúlegt æðruleysi fram á síðustu stundu. Kynni vinahóps okkar má rekja til þess að nokkrir félagar héldu til framhaldsnáms í Ár- ósum í Danmörku og voru Svava og fjölskyldan unglingarnir í hópnum. Lífið lék við okkur öll á Árósaárunum og eftir heimkom- una hélt vinskapurinn áfram með okkar aðferðum og hefur nú enst í 46 ár. Svava og Pétur bjuggu allan sinn búskap á menningarstaðnum Hvanneyri, þar sem þau eignuð- ust stóran og tryggan vinahóp sem naut gestrisni Svövu, en hún tók á móti öllum með sama ljúfa hætti og með léttan húmor að vopni. Århusklíkan sendir Pétri og afkomendum þeirra hugheilar samúðarkveðjur og biðjum þeim farsældar um ókomin ár. Nú þögn er yfir þinni önd og þrotinn lífsins kraftur í samvistum á sæluströnd við sjáumst bráðum aftur. (Ingvar N. Pálsson) Hulda, Pétur, Dórótea, Krist- ján, Áslaug, Olga, Snæbjörn. Í dag er kær vinkona kvödd hinstu kveðju. Leiðir okkar Svövu hafa legið saman á mörgum sviðum hin seinni ár. Við vorum sveitungar, störfuðum saman í kvenfélaginu 19. júní, vorum systur í Rebekku- stúkunni Ásgerði og síðast en ekki síst dansfélagar í danshópn- um Sporinu. Alls staðar var gott að vinna með Svövu enda var hún einstök manneskja. Samviskusöm og heiðarleg, hlý og glöð í viðmóti, hjálpsöm og alltaf tilbúin að leggja sín lóð á vogarskálina. Sem dæmi má nefna að þegar vinna þurfti einhver störf sem hún átti erfitt með vegna heilsu sinnar, til dæmis fyrir kvenfélagið okkar, fann hún oftar en ekki önnur verkefni í staðinn sem hún átti auðvelt með að sinna. Margar góðar minningar eig- um við Jóhannes um samvistir með þeim Svövu og Pétri í dans- hópnum Sporinu, ekki síst úr mörgum ferðalögum bæði innan- lands og utan. Þau voru alla tíð mjög virk í starfi hópsins á meðan heilsa hennar leyfði og var þá oft glatt á hjalla. Síðasta ferð þeirra með okkur var árið 2010 þegar hópur- inn tók þátt í þjóðdansamóti í Rúmeníu. Þá hafði MS-sjúkdómurinn knúið dyra hjá Svövu þannig að hún gat ekki tekið þátt í dansinum en með góðri aðstoð Péturs gat hún fylgt okkur eftir bæði í skrúð- göngum og á æfingar og sýningar og að sjálfsögðu tókst henni að finna sér gagnleg hlutverk sem endranær. Alla tíð síðan hefur Svava fylgst með starfi hópsins af miklum áhuga þótt vaxandi heilsuleysi hafi hamlað frekari þátttöku. Síðustu mánuði hefur Svava þurft að berjast við illvígt krabba- mein og gerði hún það af einstöku hugrekki og æðruleysi eins og hennar var von og vísa. Baráttan var ströng en stutt og er nú komið að leiðarlokum. Hennar er saknað af mörgum en minningarnar lifa og munu ylja um ókomin ár. Við Jóhannes vottum Pétri og fjölskyldunni allri innilega samúð. Guðrún J. Guðmundsdóttir. Úr djúpum geimsins er dagurinn risinn og slær dýrlegum roða á óttuhimininn bláan, – og lof sé þér, blessaða líf, og þér, himneska sól, og lof sé þér, elskaða jörð, að ég fékk að sjá hann. (Guðmundur Böðvarsson) Elskuleg skólasystir Svava Sjöfn er kvödd í dag frá Reyk- holtskirkju í Borgarfirði. Þar kveður mikil mannkostakona, vönduð að allri gerð með einstak- lega þægilegt og heillandi viðmót. Það var sérstök reisn yfir Svövu, glettni og glaðværð. Svava settist að í Borgarfirðinum og bjó þar með Pétri eiginmanni sínum og þremur börnum á Hvanneyri, þar sem þau stofnuðu umfangsmikið byggingarfyrirtæki og reistu sér hús með miklum glæsibrag. Svava vann skrifstofustörf meðan heilsan leyfði, bæði fyrir fyrirtæki þeirra hjóna og á skrifstofu Land- búnaðarháskólans. Þar komu samviskusemi og dugnaður henn- ar sér vel. Svava var smekkleg og listfeng í höndunum. Hún unni góðri tónlist, dansi og félagsskap góðra vina, enda vinsæl af sam- ferðafólkinu. Það eru fimmtíu ár síðan glaðvær hópur ungra stúlkna útskrifaðist frá Hús- mæðraskólanum að Varmalandi í Borgarfirði. Upp á það var haldið fyrir þremur mánuðum á heimili Svövu og Péturs. Það var ógleym- anleg helgi þar sem þau opnuðu sitt glæsilega heimili og hlýja faðm fyrir fjölmennum hópi skólasystra og maka. Hlátrasköll- in ómuðu jafnt í bílskúrnum sem í íbúðarhúsinu. Móttökunefndina skipuðu þær aldavinkonur Svava og Guðfinna ásamt Pétri. Pétur var leiðsögumaður um Borgar- fjörðinn og hótelið gerði okkur dýrindis veislu. Þarna var trega- blandin gleði þar sem ljóst var að hverju stefndi. Rifjað var upp margt skemmtilegt frá skólaárinu góða og vinaböndin treyst. Svava og Pétur eiga ríkan sess í góðum minningum og samheldni hópsins og hvergi hefur hópurinn oftar komið saman en á heimili þeirra. Svava var samnefnari fyrir hóp- inn. Hún var alltaf með í öllum okkar ferðum og samkomum og dreif sig fyrir nákvæmlega ári í Borgarfjörð eystra til að vera með okkur þar. Svava sýndi fá- dæma æðruleysi og styrk í veik- indum sínum sem hún mátti tak- ast á við á besta aldri og svo nú í vor og sumar þegar ósigrandi sjúkdómur bættist við og vitjaði hennar af miklu harðfylgi. Pétur hefur staðið sem klettur við hlið konu sinnar í öllum þessum veik- indum. Áður hafa þrjár skólasyst- ur týnst úr hópnum og nú fer Svava og hópurinn verður aldrei samur eftir. En lífið er núna og við skulum nota það vel og þakka fyrir að hafa mátt deila því með Svövu. Við vottum Pétri og börn- unum ásamt fjölskyldum þeirra og ástvinum Svövu okkar dýpstu hluttekningu. Blessuð sé minning Svövu Sjafnar Kristjánsdóttur. Fyrir hönd skólasystra frá Varmalandi, Kristín Sigfúsdóttir. Með örfáum orðum viljum við kveðja kæra bekkjarsystur, hana Svövu okkar. Það var kampakátur hópur sem kvaddi Reykholtsskóla vorið 1966 að lokinni útskrift, eftir mik- inn kátínusprett undir það síð- asta, sem þjappaði hópnum sam- an. Sum okkar hurfu þá á braut eftir þriggja vetra dvöl þar, eins og var um Svövu. Ekki er að undra þó við slíka langdvöl á ung- lingsárum myndist taug til stað- arins. Við innilokun á vistunum á löngum skammdegiskvöldum myndaðist sérstætt samfélag nemanda og ekki síst á kvenna- vistinni. Þar knýttust vináttu- bönd sem hafa reynst æði sterk og varanleg. Margs er að minnast úr skóla- lífinu en Svava var skólafélagsfor- maður síðasta vetur sinn í skól- anum og hafði því forstöðu, ásamt félögum sínum í stjórninni, fyrir því margháttaða félagslífi sem þar var bryddað upp á. Það fórst henni vel úr hendi, sem hennar var von og vísa, enda óumdeild. Þannig kom hún okkur fyrir sjón- ir, fyrr og síðar, sem heilsteypt og vönduð mannkostamanneskja sem mannbætandi var að hafa kynni af. Við bekkjarsystkini höfum flest haldið sambandi meira og minna þessa ríflega hálfu öld og þó auðvitað sérstaklega þau okk- ar sem voru á kvennavistinni. Við höfum komið saman í Reykholti á fimm ára fresti síðustu áratugi og endurnýjað kynnin og vinskap- inn. Þar hefur Svava verið ómiss- andi og ekki látið sig vanta með sitt fágaða fas og framkomu. Það hefur verið indælt að vita Svava Sjöfn Kristjánsd. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, ELÍAS BIRGIR ANDRÉSSON pípulagningamaður, varð bráðkvaddur á heimili sínu. Útförin fer fram frá safnaðarheimilinu í Sandgerði föstudaginn 21. september klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á SÁÁ. Elva Katrín Elíasdóttir Heiðar Logi Elíasson Anna Sóley Viðarsdóttir Sandra Ósk Elíasdóttir Jón Ingi Jónsson Helgi Snær Elíasson Kristófer Arnar Ragnarsson og systkini hins látna Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, sambýliskona og systir, ÞÓRDÍS HARÐARDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 9. september. Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 17. september klukkan 13. Hörður Lúðvíksson Sigurveig Sigurðardóttir Laufey Rúnarsdóttir Hjalti Hjaltason Sigurlaug Rúnarsdóttir Stefán Karlsson barnabörn Aðalsteinn Blöndal systkini Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES PÁLMI RAGNARSSON, Kjarrmóa 11, Selfossi, lést á gjörgæsludeild Landspítalans þriðjudaginn 11. september. Ragnhildur Óskarsdóttir Guðný Ósk Pálmadóttir Jón V. Albertsson Ragnar Waage Pálmason Kolbrún Rut Pálmadóttir Páll Geirdal Elvarsson Gyða Waage Pálmadóttir Ásgeir Benónýsson Guðni Gestur Pálmason Anna Berglind Svansdóttir Sandra Ósk Pálmadóttir Bjarni Unnarsson barnabörn og barnabarnabörn Faðir okkar, SVERRIR SCHEVING THORSTEINSSON jarðfræðingur, lést laugardaginn 8. september. Útförin fór fram í kyrrþey fimmtudaginn 13. september frá Hafnarkirkju. Þorsteinn Scheving Thorsteinsson Brynhildur Scheving Thorsteinsson Árni Scheving Thorsteinsson AGNAR ÞÓRISSON, Naustabryggju 17, Reykjavík, lést 12. september. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 19. september klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim er vildu minnast hans er bent á Langveik börn. Lára Guðmunda Vilhjálmsdóttir Linda Kristín Pálsdóttir Kjartan Reynir Hjaltason Hildur Þórisdóttir Bjarki Borgþórsson Ester Rut Þórisdóttir Sigvaldi Fannar Jónsson Eva María Lárudóttir Ísak Líndal og frændsystkin Elskuleg móðir mín, amma og langamma, HELGA ÞÓRDÍS BENEDIKTSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Stórholti 22, lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 30. ágúst. Útförin fer fram í kyrrþey. Guðbjörg B. Petersen Benedikt G. Ófeigsson Þórunn Ósk Þorgeirsdóttir Helga Þórdís og Hlynur Þorri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.