Morgunblaðið - 15.09.2018, Qupperneq 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér er mikið niðri fyrir og þarft nauð-
synlega að fá útrás fyrir tilfinningar þínar.
Skelltu þér á námskeið, þú munt ekki sjá eftir
því.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu nú að vinna draumum þínum
brautargengi því þú hefur byrinn með þér. Þú
átt marga fylgismenn. Ekki trúa kjaftasögum
sem þér berast til eyrna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Tilraunir þínar til að sannfæra aðra
geta komið þér í vandræði. Láttu allt slúður
sem vind um eyru þjóta. Hvíldu þig í kvöld.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að hafa mikið fyrir hlut-
unum, sem er allt í lagi ef þú bara gætir þess
að skila vel unnu verki. Er ástarsamband þitt
heilbrigt?
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Samskipti þín við vini þína gætu gengið
eitthvað stirðlega í dag. Eitthvað kemur þér í
opna skjöldu og skilur þig eftir með margar
spurningar í kollinum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það getur reynst erfitt að bregðast
rétt við þegar viðkvæm mál eru borin upp.
Næsti mánuður er hlaðinn verkefnum,
reyndu þó að taka frí inn á milli til að hlaða
batteríin.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þrá eftir fullkomnun og óraunsæjar
áætlanir eiga hug þinn um þessar mundir.
Líttu á björtu hliðarnar og þá sérðu að margt
í lífi þínu er í góðu lagi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gáðu að þér í dag, þú gætir lent
í illvígu rifrildi við einhvern alveg óvart. Settu
heilsuna í forgang næstu vikur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ekki halda þínu til streitu í dag,
hvort sem er gagnvart vini eða hópi fólks.
Hafðu í huga að þótt leiðin á tindinn sé tor-
sótt þá er hún vel möguleg.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að gæta þess vandlega
að þú hafir farið ofan í saumana á máli, sem
þú verður að ákveða þig með. Ekki gefast
upp, en gerbreyttu nálguninni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gefðu þér tíma til að huga að
reikningum og skuldum, trygginga- eða
erfðamálum í dag. Þú hefur ákveðið að láta á
það reyna hvort þú getir verið án bíls.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að læra að nýta þér þann
eiginleika sem fær fólk til þess að opna
hjarta sitt fyrir þér. Hertu upp hugann, því
endalaus undanlátssemi skilar þér bara örð-
ugleikum.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Skoppar hafsins öldum á.
Innst í búri finna má.
Eggskurn, þar sem unginn lá.
Undir rúmi mátti sjá.
Sigmar Ingason svarar:
Lítið og lélegt far
löngum nefnt koppur var.
Hjá innstu koppum í búri
oft trú’ ég valdið lúri.
Eggjakoppa oft má vitja
er í hreiðrum eftir sitja.
Ekki er koppur undir rúmi
staulast má á stjá í húmi.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Einn á koppi. Ýfðist sjór
um innsta kopp í búri
með eggjakopp, háf og hálfan bjór
og hlandkopp í þessum túri.
Helgi Seljan á þessa lausn:
Bátskoppur vaggar öldum á,
innsta koppinn í búri finn.
Eggjakoppinn ég enn mun sjá.
Undir rúmi var koppurinn.
Helgi R. Einarsson svarar:
Vísnagáta í vikulok
er vakna, það er toppurinn.
Hugmynd ein svo fer á flot,
og flýtur til mín koppurinn.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Koppur skoppar öldum á.
Innst í búri kopp má sjá.
Í koppi ungakríli lá.
Koppinn undir rúmi sá.
Þá er limra:
Úr loftinu dropar detta,
dæmalaus regnskúr er þetta,
Mikael sjálfur,
meira en hálfur,
er máske úr koppnum að skvetta.
Að lokum er ný gáta eftir Guð-
mund:
Upp af dvala í dögun hrökk,
dáðríkur á fætur stökk,
galvaskur ég gerði strax
gátu þessa laugardags:
Vopn í hendi veiðimanns.
Veggur þakinn röndum.
Strokið yfir streng með glans.
Straumlaga í höndum.
Í Vísnahorninu í gær misritaðist
Árnes fyrir Ármúla og er beðist
velvirðingar á því. Kristján Sig-
urðsson bóndi þar hafði farist í
flugslysi skömmu áður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þekkir kusi kopp sinn
Í klípu
ALLT ÞETTA SANNAÐI ÁST HANS Á HENNI
– SVO FREMI SEM FORMÚLAN STÆÐIST
RITRÝNI.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„AFSAKAÐU. VÉLIN ER AÐ GERA SKRÝTIÐ
HLJÓÐ OG LITLA LJÓSIÐ ER Í BEINNI
LÍNU.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að deila regnhlífinni
þinni.
GRETTIR! ELMAR!
ÉG ÞORI AÐ VEÐJA AÐ ÞÚ HAFIR
HULIÐ MATINN ÞVÍ MÉR MUN EKKI
LÍKA VIÐ HANN!
ÞÚ VILT FRESTA
VONBRIGÐUM MÍNUM EINS
LENGI OG MÖGULEGT ER!
ÍMYNDAÐU ÞÉR HVERNIG
MÉR LÍÐUR ÞEGAR ÞÚ FERÐ
ÚR AÐ OFAN!
Víkverji snæddi í vikunni kvöld-verð með hópi útlendinga, sem
hafði verið á ferð um landið. Átti
hópurinn ekki orð yfir fegurð lands-
ins og dásemdum, allt hafði verið
fyrsta flokks, hvort sem það voru
náttúruperlur, gisting eða matur,
þótt verðlagið mætti vera skap-
legra.
x x x
Talið barst um síðir að tungumál-inu. Flestir áttu í vandræðum
með staðarnöfn og voru jafnvel á
því að sum þeirra hefðu einfaldlega
verið búin til í því skyni að hrekkja
aðkomumenn.
x x x
Þeir áttu erfitt með að trúa því aðfólk gæti náð valdi á að tala
þetta tungumál og sennilega næðu
menn ekki þokkalegum tökum á að
skrifa það fyrr en við eftirlaunaald-
urinn.
x x x
Við þessa frásögn rifjaðist uppfyrir Víkverja grein sem fyrir
löngu birtist í erlendu blaði um
raunir höfundar í íslenskunámi.
Höfundurinn var frá Bandaríkj-
unum og vafðist margt fyrir honum.
Í greininni hafði tók hann sér-
staklega fyrir tölur í íslensku.
x x x
Ekki væri nóg með að tölurnar fráeinum upp í fjóra væru breyti-
legar eftir kyni, heldur fallbeygðust
þær í þokkabót. Þegar hann færi út
í búð yrði hann því alltaf að biðja um
að minnsta kosti fimm epli eða app-
elsínur.
x x x
Þá var höfundurinn siðprúður ogþví fannst honum óþægilegt að
næsta tala skyldi vera sama orðið
og í hans tungumáli er notað yfir
kynlíf. Gat hann ekki með nokkru
móti fengið sig til að biðja af-
greiðslufólk um kynlíf. Eftir það
léttist líf hans hins vegar töluvert í
myrkviðum íslenskra talna. Vakti
þessi frásögn nokkra kátínu ferða-
langanna, en varð ekki til að auka
áhuga þeirra á íslenskunámi.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Því að af náð eruð þið hólpin orðin
fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka.
Það er Guðs gjöf.
(Efesusbréfið 2.8)