Morgunblaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 47
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Hákon starfrækti síðrokks-sveitina Lúna í kringumaldamótin, hefur leikið með
Singapore Sling og er nú að spila
með Brian Jonestown Massacre,
hljómsveit ólíkindatólsins Anton
Newcombe. The Third Sound hófst
hins vegar sem sólóverkefni Há-
konar er hann
bjó í Róm og kom
samnefnd plata
út árið 2011. Síð-
ustu þrjár plötur,
þessi meðtalin,
hafa svo komið út
hjá Fuzz Club
Records, en útgáfan gerir út frá
London og einbeitir sér að síð-
sýrurokki og hefur m.a. gefið út
plötur Singapore Sling. Plöturnar
sem um ræðir eru The Third Sound
Skælt skuggarokk
Reffilegir The Third Sound án sólgleraugna. Hákon er lengst til vinstri, fremst.
of Destruction and Creation (2013)
og Gospels of Degeneration (2016).
Hákon býr nú og starfar í Berlín, og
er með fasta liðsskipan í sveitinni,
en þeir Robin Hughes (gítar), Ant-
onio D’Orazio (bassi) og Fred Sune-
sen (trommur) lögðu allir til krafta
sína á plötunni sem var tekin upp
síðasta vetur í borginni.
Geirinn sem The Third Sound
tilheyrir fylgir nokkuð stífum, fag-
urfræðilegum reglum. Svartur er
liturinn, Velvet Underground er
Guð almáttugur og sólgleraugu,
hljóðbjögun og tambúrínur stað-
albúnaður. The Third Sound fetar
þennan stíg nokkuð nákvæmlega,
unnið er með téða áhrifavalda, sýru-
rokk sjöunda áratugarins og hart
bílskúrsrokk þeirra tíma er með
sanni á matseðlinum. Heyra má
áhrif frá þýsku súrkálsrokki einnig,
í níunda áratugar síð-sýrusveitum
eins og Spacemen 3 og söngrödd
Hákonar kallar m.a. fram meistara
eins og Johnny Thunders og Nikki
Sudden. Þessi þröngt skorni, stíllegi
stakkur er þó síst til trafala og þessi
fjórða plata Hákonar og félaga skil-
ar mjög svo slípuðu, heilsteyptu
verki. Nú kunna menn á dæmið, eru
öruggir í eigin skinni, og þá er líka
hægt að víkka rammann, þó ekki sé
nema lítið eitt. Sjá t.d. „Half Alive“,
naumhyggjulegt drunuverk með
skemmtilega klingjandi gítartónum,
sem koma fram eins og þeir séu í
andnauð, líkt og upp úr kafi. Áhrifa-
ríkt. Anton gamli Newcombe á þá
gott innslag í síðasta laginu, „Pho-
tographs“. Newcombe fékk lagið
sent í prufuformi en í stað þess að
velta því eitthvað fyrir sér tók hann
það á lofti, söng yfir og sendi um
hæl. Lýsandi fyrir þann einstaka
mann.
Plötunni er hægt að streyma í
gegnum helstu veitur en einnig
kemur hún út á vínyl, m.a. í bláum
og grænum lit.
» Þessi þröngtskorni, stíllegi stakk-
ur er þó síst til trafala
og þessi fjórða plata
Hákonar og félaga skil-
ar mjög svo slípuðu,
heilsteyptu verki.
The Third Sound er
sveit, leidd af Íslend-
ingnum Hákoni Aðal-
steinssyni, og er All
Tomorrow’s Shadows
fjórða plata hennar
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
Einn þekktasti listamaður Belgíu,
Jan Fabre, sem unnið hefur sem
myndlistarmaður, leikskáld, leik-
stjóri, danshöfundur og hönnuður,
er sakaður af fjölda karla og kvenna,
sem unnið hafa með honum, um kyn-
ferðislega áreitni, í opnu bréfi sem
birt var opinberlega í vikunni. Erna
Ómarsdóttir, listdansstjóri Íslenska
dansflokksins, er þeirra á meðal og
efst á listanum yfir þá sem skrifa
undir bréfið. Bréfritarar eru 20 tals-
ins og segja raddir þeirra hluta af
#metoo-byltingunni. Þeir hafa allir
starfað með Fabre í Troubleyn-
leikhúsinu sem hann stofnaði í Ant-
werpen árið 1986.
Vildi kynlíf að launum
Á fréttavefnum Brussel Times
kemur fram að þessar tuttugu
manneskjur, sem voru ýmist starfs-
menn eða lærlingar við Troubleyn,
hafi allar unnið með Fabre og saki
hann nú um ósæmilega hegðun í
bréfinu sem birtist fyrst á vef list-
tímaritsins rekto:verso. Í því kemur
fram að Fabre hafi bæði niðurlægt
og ógnað starfsmönnum og ljós-
myndað í laumi. Fabre er gefið að
sök að hafa boðið dönsurum hlut-
verk í sviðsverkum en fyrir þau áttu
dansararnir að þóknast honum kyn-
ferðislega. Sumum dönsurum bauð
hann háar fjárhæðir eftir slíka þjón-
ustu, að því er fram kemur í frétt
Brussel Times um málið. Þeir sem
vildu ekki þóknast Fabre lentu í því
að hlutverk þeirra væru minnkuð og
áttu á hættu að vera niðurlægðir og
misnotaðir, að því er fram kemur í
bréfinu. Átta þeirra sem saka Fabre
um ofbeldi og kúgun skrifa undir
bréfið með nafni en hinir eru nafn-
lausir.
Fabre er einnig gefið að sök að
niðurlægja konur á æfingum með
þjáningarfullum og oft á tíðum karl-
rembulegum athugasemdum. Þeir
sem skrifa undir bréfið hafa ýmist
orðið fyrir slíkri kúgun af hendi
Fabre eða orðið vitni að henni.
Bréfritarar segja ástæðuna fyrir
því að þeir ásaka Fabre opinberlega
þá að ekki hafi verið hlustað á kvart-
anir þeirra í leikhúsinu. Þá segja
þeir einnig að Fabre hafi misboðið
þeim með því að halda því fram í við-
tali að hann hefði aldrei orðið var við
að farið væri yfir einhver kynferð-
isleg mörk í samskiptum hans við
undirmenn sína á 40 ára starfsferli
hans. Að minnsta kosti sex starfs-
menn Troubleyn hafa sagt upp á síð-
ustu tveimur árum vegna þessa, að
því er fram kemur í bréfinu og í
fréttinni.
Hafna ásökunum
Fabre og stjórn Troubleyn hafna
öllum ásökunum og segja engan
starfsmann hafa verið neyddan til
neins sem þeir teldu misbjóða sér.
Þá þykir þeim miður að réttað sé yf-
ir Fabre og leikhúsinu í fjölmiðlum
án þess að fá tækifæri til að verja
sig. Á vef leikhússins má sjá yfirlýs-
ingu þessa efnis á vefslóðinni trou-
bleyn.be/eng en bréfið má finna á
vefslóðinni rektoverso.be/artikel/
open-letter-metoo-and-troubleynj-
an-fabre. helgisnaer@mbl.is
Jan Fabre sakaður um
ofbeldi í #metoo-bréfi
Erna Ómarsdóttir meðal þeirra sem skrifa undir
Jan Fabre Erna Ómarsdóttir
Paige Carnes
þakkar leikkon-
unni Oliviu Munn
fyrir stuðninginn
í bréfi sem birtist
í The Los Angel-
es Times í vik-
unni. Forsaga
málsins er sú að
þegar Munn,
skömmu fyrir
frumsýningu á
The Predator, komst að því að einn
mótleikara hennar, Steven Wilder
Striegel, hefði verið dæmdur fyrir
kynferðislegt ofbeldi fékk hún það í
gegn að allar senur með honum
yrðu klipptar út úr myndinni.
Striegel hlaut sex mánaða dóm
fyrir að hafa reynt að lokka 14 ára
stúlku til samræðis 2010 þegar
hann var 38 ára. „Ég gat ekki varið
mig þegar ég var 14 ára,“ skrifar
Carnes og bendir á að þegar brotið
sé kynferðislega á börnum missi
þau trúna bæði á öðrum og sjálfum
sér. „Það veitir mikinn styrk að fá
stuðning frá þekktum einstaklingi
sem ég þekki þó ekki persónulega,“
skrifar Carnes og vísar þar til
Munn. Leikstjóri myndarinnar,
Shane Black, vissi um dóminn sem
Striegel hlaut, en kaus að upplýsa
hvorki meðleikendur hans né kvik-
myndaverið þar sem hann vildi
hjálpa góðum vini sínum til 14 ára.
Þolandinn þakkar Munn stuðninginn
Olivia Munn
Viðar Hreinsson,
bókmennta- og
náttúrusögu-
rýnir á Náttúru-
minjasafni
Íslands, gengur
með gestum um
sýninguna Sjón-
arhorn í Safna-
húsinu við Hverf-
isgötu á morgun,
sunnudag, kl. 14.
Þar mun hann spá í náttúruna,
listina og vísindin og samspilið þar
á milli, með áherslu á Jón lærða
Guðmundsson. Leiðsögnin er
ókeypis.
Viðar Hreinsson
Náttúran og
sjónarhornin
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 15/9 kl. 20:00 56. s Fös 21/9 kl. 20:00 58. s Fös 5/10 kl. 20:00 60. s
Fim 20/9 kl. 20:00 57. s Lau 29/9 kl. 20:00 59. s Fim 11/10 kl. 20:00 61. s
Besta partýið hættir aldrei!
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Sun 16/9 kl. 20:00 2. s Lau 22/9 kl. 20:00 4. s Fim 27/9 kl. 20:00 6. s
Fös 21/9 kl. 20:00 3. s Sun 23/9 kl. 20:00 5. s Fös 28/9 kl. 20:00 7. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 Frums. Fös 28/9 kl. 20:00 5. s Lau 6/10 kl. 20:00 8. s
Lau 22/9 kl. 20:00 2. s Lau 29/9 kl. 20:00 6. s Sun 7/10 kl. 20:00 9. s
Sun 23/9 kl. 20:00 3. s Sun 30/9 kl. 20:00 aukas. Fim 11/10 kl. 20:00 10. s
Fim 27/9 kl. 20:00 4. s Fös 5/10 kl. 20:00 7. s Fös 12/10 kl. 20:00 12. s
Velkomin heim, Nóra!
Elly (Stóra sviðið)
Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Fim 27/9 kl. 20:00 149. s Lau 6/10 kl. 20:00 153. s
Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 28/9 kl. 20:00 150. s Sun 7/10 kl. 20:00 154. s
Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sun 30/9 kl. 20:00 151. s Lau 13/10 kl. 20:00 155. s
Mið 26/9 kl. 20:00 148. s Fim 4/10 kl. 20:00 152. s Sun 14/10 kl. 20:00 156. s
Síðasta uppklappið.