Morgunblaðið - 15.09.2018, Page 49

Morgunblaðið - 15.09.2018, Page 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari flytja tónverk frá barokktímanum og til okkar daga á tónleikum í Innra-Hólmskirkju í Hvalfjarðar- sveit á morgun kl. 16. Það er listafélagið Kalman sem stendur fyrir tónleikunum og á næstu misserum munu fara fram tónleikar í kirkjunni þar sem allur aðgangseyrir mun renna í viðhalds- sjóð kirkjunnar. Laufey og Páll í Innra-Hólmskirkju Samstillt Laufey og Páll. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Þetta er fyrsta heila raftónlistar- platan mín sem byggist aðallega á upptökum þar sem ég spila á þera- mín. Ég blanda saman mörgum upp- tökum af þeramíninu við mína rödd auk þess sem Mr. Silla syngur bak- raddir í „Hatur“ og „Stundum“ og spilar smá á gítar,“ segir Hekla Magnúsdóttir tónskáld um plötuna Á sem gefin var út á 180 gramma ví- nyl í gær, föstudaginn 14. september og jafnframt er aðgengileg á Spotify. Hekla fagnar plötunni með útgáfu- tónleikum í London 15. október. Hekla heyrði fyrst af hljóðfærinu þeramín hjá vinkonu sinni og fannst það mjög spennandi hljóðfæri. „Hún átti plötu með þeramínlögum og eftir að ég heyrði hana ákvað ég að kaupa hljóðfærið við fyrsta tækifæri, en það er hvorki dýrt né fyrirferðarmikið. Það er hægt að smíða sitt eigið þera- mín, kaupa mo og þeramín sem eru vinsæl og svo eru til sjaldgæfari og dýrari þeramín.“ Fór að semja í Listaháskólanum „Ég lærði á selló og spilaði lög eft- ir aðra. Eftir að ég fór í Listaháskól- ann fór ég að semja mína eigin tón- list,“ segir Hekla og bendir á að þeramín sé eina hljóðfærið í heim- inum sem spilað er á án þess að snerta hljóðfærið sjálft. Að sögn Heklu er þeramín eitt af fyrstu rafhljóðfærunum. Það var fundið upp í Rússlandi árið 1919 af Léon Theremin. „Hljóðfærið byggist upp á tveimur loftnetum og hljóðfæraleikarinn spil- ar með höndunum á raftíðnisviðið sem myndast á milli loftnetanna. Því nær sem fingur spilarans fer að öðru loftnetinu því hærri verður tónninn og því fjær sem farið er að hinu loft- netinu því hærri verður hjóðstyrk- urinn,“ segir Hekla og bætir við að þeramín sé mónófónískt hljóðfæri sem spili eina nótu í einu. Tíu lög eru á plötunni Á og segir Hekla að hún sé mjög hrifin af því sem hægt er að nota á marga vegu líkt og þeramín, og Á getur þýtt svo margt eftir því í hvaða samhengi það er notað. Langur tími að læra á þeramín „Það eru engar reglur um það hvernig spilað er á þeramín en það tekur langan tíma að læra á það. Lögin á plötunni eru byggð á graf- ískri nótnaskrift sem er óvenjuleg nótnaskrift, einskonar teiknað mynstur sem spilað er eftir,“ segir Hekla. Fyrsta lag Á heitir „Hatur“ og er eitt af tveimur lögum á plötunni sem byggð eru á nótnaskrift og munstri að sögn Heklu sem segir að þegar spilað sé í loftinu sé það eins og að verið sé að teikna í loftinu. Hekla notar nótnaskrift og munst- ur í öðru lagi plötunnar, „Í hring“. „Það eru bara lykkjur í laginu sem fara endalaust í hringi og svo byggist alltaf meira og meira ofan á munstr- in. Lykkja eða loop eins og það er kallað er stutt stef sem spilað er aft- ur og aftur,“ segir Hekla og heldur áfram: „Muddle“, þriðja lag plötunnar, er byggt á hljóðum sem ég var að leika mér að. Þetta eru drungaleg hljóð, einhvers konar skrímslahljóð. Mér finnst gaman að blanda saman dimmum hljóðum og björtum,“ segir Hekla. „Heyr, himna smiður“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson er fjórða lag plöt- unnar. „Mig hefur alltaf langað til að taka það lag, mér finnst það svo ofsalega fallegt. Ég var farin að æfa það áður en ég ákvað að hafa það með á plöt- unni með því að taka upp hverja rödd frá kórnótunum, sópran, alt, tenór og bassa,“ segir Hekla sem samið hefur tónlist fyrir tvær kvikmyndir. „Fimmta lagið á plötunni, „Arms“, samdi ég fyrir frönsku kvikmyndina The Wild Boys sem kom út í Frakk- landi í janúar. Lagið er samið og tek- ið upp á stafrænt þeramín. Það er auðvelt að vera falskur á þeramíni en í hátækni stafræna þeramínið set ég inn tóna sem hljóðfærið spilar óað- finnanlega,“ segir Hekla og bætir við að það sé gaman að prófa sig áfram með nýja tækni í tónsmíðunum. „Ekki er allt gull sem glóir“ er sjötta lag plötunnar en það byggist á lykkju sem tekin er upp aftur og aft- ur og spiluð aftur og aftur að sögn Heklu sem segir að þegar lagið „A Way“, sjöunda lag plötunnar, var samið hafi hún verið komin með heimþrá. „Lagið er endurtekning sem byggist á lykkjum í byrjun en í lokin er meiri dramatík og melódía í lag- inu. Þetta er lag um óvænta já- kvæðni,“ segir Hekla og lýsir átt- unda lagi plötunnar, „Í felum“. Lagið sé frekar drungalegt kvikmyndalag. Það megi segja að þetta sé instru- mental lag og það sé einungis spilað eftir munstri. „Slit“ er níunda lag plötunnar og er frekar drungalegt kvikmynda- lag,“ segir Hekla sem bætir við að „Stundum“ sé tíunda og lokalagið á plötunni Á, við samnefnt ljóð eftir Leif Ými Eyjólfsson sem hljóði svo: „Stundum er það svona en stundum er það hinsegin“. „Lagið byggist á lykkjum sem lykkja sig hver í kring- um aðra og enda í einskonar súpu,“ segir Hekla sem samdi lagið við ítalsk-slóvensku kvikmyndina Story of Chestnut Woods sem kemur út seinna á þessu ári. Kraum-verðlaunin hvatning Breska útgáfufyrirtækið Phantom Limb gefur plötu Heklu út. Eftir að Hekla kláraði Listahá- skóla Íslands í Reykjavík 2016 flutti hún til Þýskalands með þýskum eiginmanni sínum. Þau búa nú í Berl- ín ásamt ungum syni. „Mér líkar vel að búa í Berlín. Hér er gott veður, ódýrt að lifa, hægt að ferðast og gera ýmsa hluti,“ segir Hekla sem gaf út smáskífu árið 2014. „Ég gaf henni ekkert nafn en hún hefur alltaf verið kölluð Hekla.“ Fyr- ir plötuna hlaut Hekla Kraum- tónlistarverðlaunin sem að hennar sögn veitti henni hvatningu til þess að halda áfram að semja tónlist. Hekla segir að hún hafi spilað hjá hinum og þessum á þeramín en nú er hún að leggja lokahönd á nýja plöt- um með surf-rokkhljómsveitinni Bárujárn. „Platan kemur út á endanum,“ segir Hekla hlæjandi og bætir við að platan sé í anda The Beach Boys en tónlist Bárujárns sé öllu drunga- legri. Tónlistin beri keim af hrjúfum ströndum Íslands og þungum brim- hljóðum og þar af leiðandi sé meiri harka í lögum Bárujárns. „Platan er sinfóníuplata með fjór- um löngum lögum,“ segir Hekla en með henni í hljómsveitinni eru Sindri Freyr Steinarsson, Oddur Báruson og Leifur Ýmir Eyjólfsson. „Ég er byrjuð að spá í ný verkefni og semja lög fyrir þeramín og raddir, einnig langar mig að semja kvart- ettverk fyrir þeramín,“ segir Hekla sem bíður spennt eftir því að fá vínylplötuna Á í hendurnar. En Heklu finnst nauðsynlegt að eiga plötuna í föstu formi sem og í hinum rafræna heimi á Spotify. „Þeramín er mónófónískt hljóðfæri“ Tónskáld Hekla Magnúsdóttir gefur út hljómplötuna Á þar sem þeramín er í aðalhlutverki auk eigin raddar með smá aðstoð Mr. Silla og gítarleiks.  Hekla Magnúsdóttir heillaðist af þeramínlögum  Eina hljóðfærið sem spilað er á án snertingar Öðruvísi Grafísk nótnaskrift er teiknað mynstur sem spilað er eftir. Þungarokkssveitin Judas Priest heldur tónleika í Laugardalshöll 24. janúar á næsta ári og mun hljómsveitin Dimma hita upp fyrir hana. Judas Priest er ein þekktasta þungarokkssveit tónlistarsögunnar og hefur verið að í nær fimmtíu ár en hljómsveitin var stofnuð árið 1970. Var hún í fremstu röð þeirra sem mótuðu þungarokkið, eins og því er lýst í tilkynningu, og hefur gefið út átján hljómplötur. Nýjasta platan, Firepower, komst í 5. sæti á Billboard 200-listanum yfir mest seldu plöturnar í Bandaríkjunum og í fyrra var hljómsveitin innlimuð í Frægðarhöll rokksins. Hún hlaut Grammy-verðlaun árið 2010 fyrir bestu frammistöðu þungarokks- sveitar á sviði. Rokkarar Félagarnir í þungarokkssveitinni Judas Priest koma til Íslands. Judas Priest leikur í Laugardalshöll Matur Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.