Morgunblaðið - 19.09.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 19.09.2018, Qupperneq 4
Skúli Halldórsson sh@mbl.is FISK-Seafood ehf. á Sauðárkróki hefur gengið frá samningi um kaup á öllum eignarhlut Brims hf. í Vinnslu- stöðinni hf. í Vestmannaeyjum. Um er að ræða tæpan þriðjung alls hluta- fjár í Vinnslustöðinni og nemur kaupverðið 9.400.000.000 krónum. Ítarlega var fjallað um kaupin í gær á 200 mílum, sérvef Morgun- blaðsins og mbl.is um sjávarútveg, og sagði Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK-Seafood, að fyrirtækið sæi mikil tækifæri í rekstri Vinnslustöðvarinnar. „Það hefur verið mikil umræða um að Brim hygðist selja þennan eign- arhlut, og í framhaldinu fórum við í viðræður um þessi kaup.“ Vænta farsæls samstarfs Tekur hann fram að hjá FISK hafi menn væntingar um gott og farsælt samstarf við aðra eigendur og stjórnendur Vinnslustöðvarinnar. Spurður um þau tækifæri sem FISK sjái í Vinnslustöðinni segir Jón Eðvald að horft sé á uppsjáv- argeirann. „FISK hefur lengi haft áhuga á að tengjast með eignarlegum hætti fyr- irtæki sem er í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski,“ segir hann. „Við náum því með þessum kaup- um, en ekki síður finnst okkur þetta spennandi fyrirtæki til að eiga í, og við teljum að til staðar séu ýmsir möguleikar á samvinnu þessara tveggja sjávarútvegsfyrirtækja.“ Átök og deilur á milli hluthafa Miklar deilur hafa ríkt í hluthafa- hópi Vinnslustöðvarinnar undanfar- in ár og hafa fundir hluthafanna ein- kennst af átökum, á milli Brims hf. annars vegar og meirihluta hluthafa hins vegar. Hluthafar Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum samþykktu til að mynda á hluthafafundi félagsins í júní síðastliðnum að farið yrði fram á rannsókn á skuldaafskriftum Lands- bankans gagnvart félögum tengdum Guðmundi Kristjánssyni, eiganda Brims. Í ályktuninni sem samþykkt var á fundinum sagði að rannsakað yrði hvort um óeðlilega undirverðlagn- ingu hefði verið að ræða þegar félagi tengdu Guðmundi var veitt heimild til að kaupa Brim hf. út úr gjaldþrota móðurfélagi sínu, Línuskipum ehf., og skilja Línuskip eftir sem eigna- laust félag með milljarðaskuld við bankann. Umræddur hluthafafundur var þó haldinn að kröfu Brims, til að af- greiða tillögu um að rannsaka lán- veitingar Vinnslustöðvar- innar hf. til tveggja starfs- manna og hlut- hafa í Vinnslu- stöðinni á árinu 2008. Einungis tíu prósent hlut- hafa þurfa að vera samþykkir til þess að slík rannsókn fari fram og var tillagan því samþykkt, enda átti Brim nær þriðjungshlut. Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður Vinnslustöðvar- innar, hvatti samt sem áður Brim til að draga tillöguna til baka og greiddu allir aðrir hluthafar atkvæði gegn tillögunni. Mjög ánægð með kaupin Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar, segir að þar á bæ ríki mikil ánægja með kaup FISK-Seafood ehf. á öllum hlut Brims hf. í Vinnslu- stöðinni. „Við erum mjög ánægð með er betra að vinna með fólki heldur en á móti því. Það er ekki flókið. Þannig að í þessu hljóta að felast ýmis tæki- færi.“ Fari ekki „jafn langt niður“ Spurður hvort hann búist við betri samskiptum við nýja hluthafa félags- ins en verið hafa undanfarin misseri svarar hann játandi. „Ég held að það sé alveg óhætt að segja það. Ég hef enga trú á að aðrir fari jafn langt niður og hluthafinn hefur farið. Eftir allar þessar ásak- anir og allt sem á undan er gengið.“ Líti á þetta sem tækifæri Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir það ánægju- legt að sjá þennan vilja til að fjár- festa í sjávarútvegi í bæjarfélaginu. Íris sat áður í stjórn Vinnslustöðv- arinnar en sagði sig úr stjórninni eft- ir að hún var kjörin til að gegna starfi bæjarstjóra í vor. „Það hafa náttúrlega verið deilur í kringum félagið og auðvitað gekk ýmislegt á, á meðan ég sat í stjórn með Guðmundi, en núna á ég ekki von á öðru en að menn komi inn í þetta með opnum huga og líti á þetta sem spennandi tækifæri í fyrirtæki sem er í góðum rekstri,“ segir Íris. Kaupa allan hlut Brims í VSV  Brim selur tæpan þriðjungshlut í Vinnslustöð Vestmannaeyja til FISK-Seafood  Ánægja í Eyjum  Kaupverðið nemur 9,4 milljörðum króna  FISK lengi haft hug á að tengjast uppsjávarveiðum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Í Eyjum Átök hafa einkennt hluthafafundi Vinnslustöðvarinnar, þar sem Brim hefur tekist á við aðra hluthafa. Framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar segist aðspurður búast við betri samskiptum við nýja hluthafa félagsins. FISK-Seafood sér mikil tækifæri í rekstri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson Íris Róbertsdóttir Jón Eðvald Friðriksson þetta,“ segir Brynjar. Bendir hann þó á að samtal við nýja hluthafa sé stutt á veg komið. „Ég er búinn að heyra í Jóni Eð- vald [Friðrikssyni, framkvæmda- stjóra FISK-Seafood], en við höfum ekki náð að ræða málin ítarlega,“ segir hann. „Það er þó auðvitað þannig að það Stjórn HB Granda samþykkti í síðustu viku að kaupa útgerðarfélagið Ög- urvík af Brimi hf., sem er í eigu Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra HB Granda. Guðmundur tók við stöðu forstjóra í júní eftir að hann keypti í gegnum Brim 34,1% eignarhlut í HB Granda af Kristjáni Loftssyni og Halldóri Teitssyni, en með því varð Brim stærsti hluthafi útgerðarinnar. Hluthafafundur Brims ákvað svo á föstudag að breyta nafni fyrirtæk- isins í Útgerðarfélag Reykjavíkur. Á sama fundi var Runólfur Viðar Guðmundsson ráðinn framkvæmda- stjóri félagsins en Ægir Páll Friðbertsson lét af starfi framkvæmdastjóra í síðustu viku þegar hann tók við starfi framkvæmdastjóra hjá HB Granda. Brim gerir út skuttogarana Guðmund í Nesi RE-13 og Kleifaberg RE-70, en þeir fengu samtals úthlutað aflamarki fyrir nýhafið fiskveiðiár sem nemur um 15.580 þorskígildistonnum. Útgerðarfélag Reykjavíkur BREYTINGAR HJÁ BRIMI 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 Veður víða um heim 18.9., kl. 18.00 Reykjavík 10 skýjað Bolungarvík 7 alskýjað Akureyri 7 rigning Nuuk 9 léttskýjað Þórshöfn 11 alskýjað Ósló 19 heiðskírt Kaupmannahöfn 23 heiðskírt Stokkhólmur 20 heiðskírt Helsinki 14 skýjað Lúxemborg 27 heiðskírt Brussel 24 heiðskírt Dublin 18 skúrir Glasgow 16 skýjað London 20 skýjað París 22 heiðskírt Amsterdam 20 léttskýjað Hamborg 30 heiðskírt Berlín 30 heiðskírt Vín 25 heiðskírt Moskva 14 heiðskírt Algarve 26 léttskýjað Madríd 25 þrumuveður Barcelona 24 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 26 þrumuveður Aþena 25 heiðskírt Winnipeg 4 þoka Montreal 22 alskýjað New York 24 rigning Chicago 22 rigning Orlando 26 heiðskírt  19. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:03 19:41 ÍSAFJÖRÐUR 7:06 19:48 SIGLUFJÖRÐUR 6:49 19:31 DJÚPIVOGUR 6:32 19:11 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á fimmtudag Norðan og norðvestan 10-18 m/s, hvassast með austurströndinni. Úrkoma norðantil á landinu, rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma ofan 100-200 metra yfir sjávarmáli. Hiti 1-9 stig. Víða norðan og norðaustan 13-20, en hvassari í vindstrengjum við Vatnajökul. Rigning norðan- og austanlands og slydda eða snjókoma til fjalla á þeim svæðum síðar með kólnandi veðri. Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.