Morgunblaðið - 19.09.2018, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 19.09.2018, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 ✝ Theodór Jó-hannesson fæddist í Reykjavík 18. september 1913. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Mörk 3. september 2018. Foreldrar hans voru hjónin Helga Vigfúsdóttir hús- móðir, f. 1875, d. 1918, og Jóhannes Jónsson trésmiður, f. 1872, d. 1944. Systkini Theo- dórs: Þórdís, f. 1904, Kristín f. 1906, Jónína, f. 1907, Vigfús, f. 1908, Karl, f. 1910, Þorbjörn, f. 1912, Elín, f. 1915; hálfbræður tvíburarnir Sólmundur og Sig- urjón, f. 1930, og lifir nú Sig- urjón einn systkinanna. Theodór kvæntist 29. maí 1943 Rögnu Jónsdóttur, f. 29. ágúst 1922, d. 28. júní 2016. For- eldrar hennar voru hjónin Guð- björg Káradóttir húsmóðir, f. 1894, d. 1974, og Jón Kristófers- son sjómaður, f. 1888, d. 1977. Börn þeirra: 1) Björn, f. 3. októ- Ingason, þau skildu. Dóttir þeirra Helga, f. 1973. M. Daniel Mars- hall, f. 1968. Dætur Helgu og Andrew Jehwo: Isabelle Dora, f. 2001, Eva Justine, f. 2003, Lea Bjorg, f. 2005, og Coco Anabel, f. 2007. 4) Helga, f. 21. desember 1954. M. Örn Friðrik Clausen, f. 1951. Börn þeirra a) Þóra Björg f. 1978. M. Bjarnólfur Lárusson, f. 1976. Þeirra börn: Elína Helga, f. 2006, Margrét Harpa, f. 2011, og Lárus Örn, f. 2013. b) Ragnar Örn, f. 1984. M. Þórhildur Ás- mundsdóttir, f. 1986. Þeirra dótt- ir Helga Sif, f. 2018. Sonur Ragn- ars Arnar og Þorbjargar Karlsdóttur er Viktor Óli, f. 2007. Theodór lauk Samvinnuskóla- prófi árið 1937 og vann versl- unar- og skrifstofustörf m.a. hjá Skóverslun Lárusar G. Lúðvíks- sonar á unglingsárum, síðan lengi hjá Remedía, Flugfélagi Ís- lands, síðan Flugleiðum til starfs- loka 1988. Einnig aðstoðaði hann um áratugaskeið við bókhald o.fl. hjá Þorbirni bróður sínum í Kjöt- búðinni Borg. Theodór var elstur karla á Íslandi er hann lést. Starfsfólki í Mörk eru færðar alúðarþakkir fyrir umönnun og virðingu sýnda hjónunum. Útför Theodórs fór fram í kyrrþey á 105 ára afmælisdegi hans. ber 1943. M.Val- gerður Kristjóns- dóttir, f. 1945. Kjördóttir þeirra Kristín Elísabet, f. 1969 (dóttir Dóru Bjargar, systur Björns). M. Árni Guðbrandsson, f. 1964. Þeirra börn: Dóra Björg, f. 1994, Vala Birna, f. 1999, og Tómas, f. 2003. 2) Jón, f. 8. maí 1946, d. 16. júní 2012. M.I. Elín Ágústsdóttir, f. 1948, þau skildu. Sonur þeirra Ágúst, f. 1967. M. Carrie Pasola, f. 1976. Þeirra börn: Theodor William, f. 2009, og Sarah, f. 2011. Sonur Ágústs af fyrra hjónabandi Anthony August, f. 1997. M.II. Anne Höst Madsen, f. 1947, d. 2017. Synir þeirra: Poul, f. 1977, Jon Kristofer, f. 1979, og Henrik, f. 1986. 3) Dóra Björg, f. 5.mars 1949, d. 31. janúar 1988. Barns- faðir Pétur Ólafsson, dóttir þeirra Kristín Elísabet (kjördóttir Björns, bróður Dóru). M. Björn Komið er að kveðjustund og með þakklæti í hjarta kveð ég Theodór afa minn sem var mér svo alltaf góður. Hann og amma voru svo ótrúlega mikilvæg í mínu lífi og sameiginlega veittu þau mér dýrmætan stuðning alla tíð. Fyrstu þrjú árin eftir að ég fæddist bjuggum við mamma heima hjá ömmu og afa í Sólheim- unum. Þar bjó ég við mikið ástríki og umhyggju og á þeim árum var lagður grunnurinn að þeirri inni- legu væntumþykju sem einkenndi samband mitt við ömmu og afa alla tíð. Ég var rúmlega þriggja ára gömul þegar mamma giftist og við fluttum í kjölfarið til Lúxem- borgar. Þar fæddist Helga systir og við bjuggum þar næstu tíu ár- in. Afi sendi mér reglulega hlýju yfir hafið í formi póstkorta þar sem hann sagði örfá falleg orð til að gleðja mig. Ég man líka vel þegar ég kom heim í sumarfríum að það var efst á mínum óskalista að vera með ömmu og afa. Hjá þeim þótti mér langbest að vera og með þeim ferðaðist ég í fyrsta skiptið hringinn í kringum Ísland og til Vestmannaeyja þegar ég var um 10 ára gömul. Þau ferða- lög eru mér mjög minnisstæð. Það er erfitt að hugsa um afa án þess að hugsa um ömmu í sömu andrá. Þau voru tvíeyki og bættu hvort annað upp. Amma svo einstaklega skrafhreifin, áhugasöm um svo margt og skemmtileg og hann aðeins til baka en samt svo góður við okkur öll, ljúfur og einstakur húmoristi. Þegar amma dó í júní 2016 var eins og afi týndist á einhvern hátt. Hann hafði ekki lengur lífsföru- nautinn sem hélt honum á réttri braut og hjálpaði honum að rata. Þrátt fyrir að vera týndur var hann alltaf sami ljúflingurinn, einstakt séntilmenni eins og hann hafði verið í lífinu og falleg sál. Og alltaf klæddur eins og hann væri á leið á mikilvægan fund, í skyrtu, jakka og með bindi. Afi hefði átt afmæli í dag, 18. september, og orðið 105 ára gam- all. Hann var búinn að eiga langa ævi og hans gæfuspor var að gift- ast ömmu því þau voru einstak- lega samrýnd og yndisleg saman. Í dag kveð ég bæði ljúflingsafa minn og þeirra tvíeyki sem var mér svo mikilvægt í lífinu. Ég trúi að síðustu kveðjuorð afa til ömmu hafi núna ræst og þau hittist fyrir hinum megin. Kristín. Látinn er tengdafaðir minn, Theodór Jóhannesson, nær 105 ára að aldri. Hann var borinn og barnfæddur Reykvíkingur og hér bjó hann langa ævi, utan nokk- urra ára vestur í Dölum. Það var svo vegna þess að móðir Theo- dórs lést í spænsku veikinni 1918 og var hann þá sendur til föður- systur sinnar sem bjó á Orms- stöðum á Fellsströnd. Þar dvaldi hann við gott atlæti fram að ferm- ingu er hann sameinaðist aftur föður og systkinum. Þessi lífs- reynsla varð honum mjög hug- stæð síðar á ævinni og rifjaði hann oft upp þessa raun. Theodór þráði að menntast og ganga í Verzlunarskólann en til þess voru hvorki efni né aðstæður og fór hann að vinna fyrir sér um ferm- ingu. Hann átti þess þó kost að fara í Samvinnuskólann og lauk þaðan prófi árið 1937. Vann hann síðan verslunar- og skrifstofu- störf, síðast hjá Flugleiðum uns hann lét af störfum 75 ára gamall. Theodór kvæntist 1943 Rögnu Jónsdóttur, þau eignuðust fjögur börn og bjuggu í afar ástríku hjónabandi í rúmlega 73 ár. Þau voru dugleg að ferðast um eigið land og önnur og komust alla leið til Kína sem var nýlunda á þeim árum. Um það leyti sem Theodór hætti störfum lést Dóra dóttir þeirra eftir langvarandi og erfið veikindi. Var það þeim þung sorg en þau báru harm sinn í hljóði og fetuðu áfram saman veginn. Síðar lést Jón sonur þeirra á besta aldri. Eftir starfslok nutu þau þess að taka þátt í félagsstarfi aldraðra og voru sjálfs sín ráðandi allt til ársbyrjunar 2015 er veru- lega tók að halla undan fæti og þau fluttu á Hjúkrunarheimilið Mörk, Ragna 92 ára og hann 101 árs. Þar nutu þau mjög góðrar umönnunar og atlætis saman uns Ragna lést fyrir rúmlega tveimur árum. Forlögin tóku frá honum minningar frá langri ævi en þau hlífðu honum við sorginni þegar Ragna dó. Theodór var glaðsinna, hann hafði yndi af léttu spaugi og bjó yfir miklu jafnaðargeði. Hann var heilsuhraustur maður með af- brigðum. Honum varð sjaldan misdægurt og hafði fótavist til síðasta dags. Árið sem er að líða varð honum svolítið erfitt. Hann var þreyttur. Honum þótti gott að sitja og hald- ast í hendur og svo töluðum við um veðrið. Það var alltaf gott og ef það rigndi, þá var það gott fyrir gróðurinn. Kvöldið áður en Theo- dór lést sat hann frammi í stofu og hjálpaði starfsfólkinu með létt húsverk. Síðan lagðist hann til svefns, sáttur við guð og menn, og vaknaði ekki aftur til þessa lífs. Við sem lifum enn um hríð mætt- um taka okkur til fyrirmyndar já- kvæða lífsafstöðu hans. Ég minn- ist Theodórs með gleði í hjarta. Valgerður Kristjónsdóttir. Elsku afi minn. Nú ertu farinn og þið amma hittist loksins fyrir hinum megin. Ég á svo fallegar og hlýjar minningar um þig afi minn enda nærvera þín svo góð og þú svo ljúfur ætíð. Þú fékkst húmorinn í vöggugjöf og gladdir okkur með hnyttni þinni allt til endaloka. Ég man svo hvernig þú hnipptir oft í olnbogann á mér, sagðir mér eitt- hvað sniðugt og hlóst svo með sjálfum þér. Ég á margar minningar af þér á Baldurshaga þar sem þú gekkst um landið ykkar og gættir að öllu og naust þess að vera í nátt- úrunni. Þú kenndir mér það að ef sólsetrið væri fallegt kæmi gott veður næsta dag og ef sólarupp- koman væri falleg yrði veðrið lík- lega ekki með besta móti þann daginn. Ég hef alltaf geymt þenn- an fróðleik með mér og er nokkuð viss um að þetta hafi ávallt stað- ist. Nú sest sólin hjá þér, afi minn, þegar þú leggst til hinstu hvílu og við kveðjum þig. Þín verður ávallt saknað, elsku afi, og ég bið að heilsa ömmu. Þín Tóta (Stjarnan þín). Þóra Björg Clausen. Nú hefur öðlingurinn Theódór Jóhannesson eða Dóri eins og hann var kallaður kvatt þetta jarðlíf. Dóri var æskuvinur föður míns Ólafs Beinteinssonar og hélst sá vinskapur eftir að hvor um sig kvæntist og stofnaði heim- ili. Þau Dóri og eiginkona hans Ragna Jóndóttir heitin og þeirra börn hafa því verið hluti af minni tilveru frá fyrstu tíð. Dóri var ein- staklega þægilegur maður. Hlýja og glaðværð voru áberandi þættir í fari hans. Þessir eiginleikar Dóra komu vel í ljós þegar þau hjón Ragna og hann voru sótt heim. Einna eftirminnilegustu minningarnar frá árum áður tengjast fallegum sumarbústað, sem Dóri og Ragna áttu nálægt Hólmsá ekki fjarri Rauðhólum. Þangað fórum við systkinin frá Fagranesi við Elliðavatn í heim- sókn á hverju sumri ásamt for- eldrum okkar Ólafi Beinteinssyni og Sigurveigu Hjaltested. Þessar heimsóknir til Rögnu og Dóra voru sannkallaðar ævintýraferð- ir. Við börnin lékum okkur frjáls og glöð í fögru umhverfi meðan foreldrar okkar röbbuðu saman um lífsins gang og tilveru. Þótt samskiptin yrðu ekki eins tíð með árunum féllu þau aldrei niður hvað mig snerti. Dóri og Ragna fluttu nefnilega í fjölbýlishúsið á Reynimel 88-92 í Reykjavík, þar sem tengdamóðir mín Aðalheiður Valdimarsdóttir bjó. Þar kíkti ég stundum í heimsókn til þeirra enda ekki um langan veg að fara, þar sem þau bjuggu í íbúð í næsta stigagangi við Heiðu tengda- mömmu. Eftir að þau hjónin fluttu af Reynimelnum hitti ég þau af og til gegnum starf mitt sem tónlistarmaður bæði á Vita- torgi meðan þau bjuggu þar og síðar í Mörk við Suðurlandsbraut. Er ég kom fram þar fyrir um hálfu ári hitti ég Dóra í síðasta sinn. Hans kæra Ragna látin og að- koman því á annan veg en verið hafði gegnum árin. Dóri bar sig þó vel að venju og var ótrúlega unglegur að sjá. Hann bar engan veginn með sér að vera orðinn elsti maður Ís- lands. Viðmótið var eins hlýlegt og áður en minnið nokkuð á undanhaldi. Mér þykir vænt um þennan lokafund okkar sem var nokkurs konar ábót á allar þær góðu samverustundir sem ég upp- lifði með Dóra heitnum gegnum tíðina. Það er óhætt að segja að Theodór Jóhannesson hafi staðið langa lífsvakt með einstökum sóma. Ég sendi eftirlifandi af- komendum hans, tengdabörnum og vinum samúðarkveðjur. Ólafur Beinteinn Ólafsson. Theodór Jóhannesson Smáauglýsingar Bækur Nú eru bara allir sem vettlingi geta valdið úti að hjóla! Sáuð þið ekki Macron Frakklandsfor- seta og Lars Lökke í Danmörku um daginn? Hjólabækurnar allar 5 frítt með Íslandspósti 7.500 kr. Vestfirðir - Vesturland - Suðvestur- land - Árnessýsla - Rangárvallasýsla. Ein góð bók fylgir í kaupbæti. Skaftafellssýslur í bígerð hjá Smára okkar. Vestfirska forlagið jons@snerpa.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com mbl.is alltaf - allstaðar Raðauglýsingar atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Sjálfstæðisflokkurinn Vikulegir viðtalstímar Birgir Ármansson, alþingis- maður og formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins, og Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi bjóða upp á viðtalstíma á föstudaginn, 21. september, á milli 12:00 og 13:00. Hver viðtalstími er að hámarki 15 mínútur að lengd. Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða á næstu vikum með opna viðtalstíma á skrifstofu flokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Viðtalstímarnir munu fara fram á föstudögum frá kl. 12:00 – 13:00. Upplýsingar um hvaða fulltrúar verða til viðtals hverju sinni, verða auglýstar nánar á heimasíðu og samfélagssíðum flokksins. Bóka verður tíma fyrirfram í s. 515-1700 eða með tölvupósti á skuli@xd.is . Kveðja Sjálfstæðisflokkurinn Fundir/Mannfagnaðir Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, HALLDÓRS SKAFTASONAR veitingastjóra. Ína Gissurardóttir Arna Björk Halldórsdóttir Hallur Halldórsson Petra Sigurðardóttir Sigurveig Halldórsdóttir Hermann Haukur Aspar barnabörn og barnabarnabarn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGA TRYGGVASONAR, bónda og fyrrverandi alþingismanns. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Skógarbrekku, hjúkrunardeildar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík, fyrir góða umönnun. Þorsteinn Ingason Steingrímur Ingason Guðný Eygló Gunnarsdóttir Unnsteinn Ingason Rósa Ösp Ásgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.