Morgunblaðið - 19.09.2018, Side 10

Morgunblaðið - 19.09.2018, Side 10
Morgunblaðið/Eggert Göngugata Hótelstjórum við Laugaveg líst ekki á að Laugavegurinn verði göngugata allt árið um kring. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þeir sem reka hótel við Laugaveg eru mjög andvígir þeim áformum Reykjavíkurborgar að gera Lauga- veginn að göngugötu allan ársins hring, en borgarstjórn samþykkti fyrr í mánuðinum að fela umhverf- is- og skipulagssviði Reykjavíkur að gera tillögu að útfærslu Lauga- vegar sem göngugötu allt árið. Rakel Ármannsdóttir er hótel- stjóri Sandhótels sem er á Lauga- vegi 34. Hún sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þessi áform Reykjavíkurborgar væru alls ekki góð fyrir rekstur eins og hótel- rekstur. „Við þurfum að koma gest- unum til okkar og frá okkur að lok- inni dvöl þeirra hjá okkur. Veðráttan er misjöfn á Íslandi, eins og allir vita, ekki síst á veturna,“ sagði Rakel. Erfitt fyrir viðskiptavinina Rakel segir að verði þessi áform að veruleika muni það klárlega hafa neikvæð áhrif á reksturinn og að gestir muni leita annað og forðast að vera svona nærri miðbænum. „Við vonum í lengstu lög að ekki verði af þessu því þetta hefði slæm áhrif á sókn í gistingu hjá okkur auk þess sem allt með aðföng yrði mjög snúið,“ sagði Rakel. Gísli Úlfarsson er hótelstjóri Hótel Fróns á Laugavegi 22. Hann tekur í sama streng og Rakel. „Við höfum frá upphafi verið andvígir því að Laugavegur verði að hluta til gerður að göngugötu. Þetta er orð- ið mjög erfitt fyrir viðskiptavini okkar að komast til okkar og frá okkur, eftir að aðgengi fyrir rút- urnar var takmarkað. Fólk getur verið að koma til okkar um miðja nótt og þarf þá kannski að draga töskurnar á eftir sér í niðamyrkri sem það kann auðvitað ekki að meta. Þetta er auðvitað ekkert grín því við fáum marga ellilífeyrisþega sem gesti, allt upp í níræða, og það sér það hver maður að þeir geta ekki paufast til okkar að nóttu til, jafnvel í snjókomu,“ sagði Gísli. Borgin að loka fyrir aðgang „Þetta með rúturnar var bara byrjunin, en borgin virðist bara vera að loka fyrir aðgang að okkur eftir föngum. Nú höfum við bara morgnana til þess að koma með að- föng og við eigum eftir að sjá hver útlistunin verður, komi þessi heils- ársplön til framkvæmda,“ sagði Gísli og bætti við að sér virtist sem ýmsir væru farnir að hugsa sér til hreyfings, burtu af Laugavegi, ekki síst verslunareigendur. Hann nefndi í því sambandi gler- augnabúðina sem er við hliðina á Hótel Fróni og verslun Franks Michelsen. „Ég held að verslun sé að hverfa af Laugaveginum og lítið verði ann- að í boði en lundabúðirnar. Það er bara staðreynd að borgaryfirvöld hafa aldrei hlustað á okkur og sjón- armið okkar og aldrei haft neitt samráð við okkur um útfærslur. Það er eins og við skiptum engu máli,“ sagði Gísli Úlfarsson enn- fremur. Aldrei hlustað á okkur  Hótelstjórar við Laugaveg eru andvígir því að Laugaveg- urinn verði gerður að göngugötu allt árið  Ekkert samráð 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 V ð f á 2024 SLT L iðLé t t ingur Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is er r 2.890.000 án vsk. Z-brautir & gluggatjöld Opið mánud.-föstud. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili Hátíð Hróksins í Kullorsuaq á Grænlandi, sem finna má 1.060 kílómetrum norðan við heim- skautsbaug, lauk með fjölmennri fjölskylduhátíð í íþróttahúsi bæj- arins. Við sama tækifæri var stofn- að skákfélag og skákskóli, og viðurkenningar veittar í mynda- samkeppni þar sem viðfangsefnið var sjálf hamingjan. „Þetta hefur verið ævintýraleg ferð,“ segir Máni Hrafnsson leið- angursstjóri. Hann segir nánast öll börn bæjarins hafa tekið þátt í skákæfingum og fjölteflum og áhuginn ekki verið síðri á sirkus- skólanum og listsmiðjunni. Aðrir leiðangursmenn voru sirkus- listamennirnir Axel Diego og Rob- erto Magro, og Joey Chan sem m.a. hafði umsjón með listsmiðj- unni. „Við komum til Kullorsuaq á afmælisdegi Hróksins og var fagn- að með afmælisköku og söng. Næstu daga flykktust jafnt börn sem fullorðnir í skák og sirkus og myndlistina. Allt gekk fullkomlega upp og gleðin var allsráðandi,“ segir hann. Birgitta Kamman Danielsen, æskulýðsfulltrúi Kullorsuaq, sem hafði veg og vanda af skipulagn- ingu hátíðarinnar ásamt Margréti Jónasdóttur af hálfu Hróksins, sagðist vera í skýjunum með hvernig til tókst. „Ég átti mér þann draum að Hrókurinn kæmi í heimsókn með skák og sirkuslistir, til að gleðja börnin hér á alveg sér- stakan hátt í tilefni af 90 ára af- mæli Kullorsuaq. En þetta varð miklu meira. Börnin og margir fullorðnir öðluðust reynslu og inn- blástur sem verður til þess að þau munu halda áfram þegar okkar góðu gestir eru horfnir á braut. Nú er búið að stofna hér skákfélag og skipuleggja skákkennslu og viku- legar sirkuslistaæfingar.“ Birgitta sagði að hátíðin hefði farið langt fram úr sínum björt- ustu vonum. „Börnin lærðu svo ótal margt og skemmtu sér kon- unglega á meðan. Þau lærðu að meta gildi samvinnu og þolinmæði og að eiga sér drauma og þrár. Það var ótrúlegt að sjá hvað jafn- vel yngstu börnin voru áhugasöm um að læra að tefla. Fjölmörg þeirra báðu um að fá að halda áfram að tefla þegar gerð voru hlé. Sama var upp á teningnum í sirkusskólanum.“ Í skýjunum með hátíð Hróksins í Kullorsuaq  Nánast öll börn tóku þátt í gleðinni Pjakkur Þessi ungi drengur lék listir sínar með sirkushringi á hátíðinni. Skákmenn Krakkarnir á Græn- landi hafa lengi notið skákkennslu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.