Morgunblaðið - 19.09.2018, Side 14

Morgunblaðið - 19.09.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir passann, ökuskírteinið, ferilskrána o.fl. Skjót og hröð þjónusta Engar tímapantanir Góð passamynd skiptir máli Dásamlegur þvottur - einfalt, íslenskt stjórnborð Íslenskar leiðbeiningar fylgja. Þurrkarinn TDB130WP fékk góða einkunn í úttekt þýsku neytendasamtakanna árið 2017. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Þvottavél 119.990 kr. Þurrkari 149.990 kr. Árleg æfing sprengjusérfræðinga, Northern Challenge, er haldin á Suðurnesjum um þessar mundir. Frá þessu er greint á heimasíðu Landhelgisgæslu Íslands. Um er að ræða alþjóðlega NATO- æfingu sem Landhelgisgæslan stýr- ir og fer hún fram á starfssvæði Gæslunnar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og hafn- arsvæðum í Helguvík, Höfnum, Garði og í Hafnarfirði. Þetta er í sautjánda sinn sem æfingin er hald- in. Við fjölbreyttar aðstæður Fram kemur í fréttinni að til- gangur Northern Challenge sé að æfa viðbrögð við hryðjuverkaárás- um þar sem heimatilbúnum sprengj- um hefur verið komið fyrir. Búinn er til samskonar búnaður og fundist hefur víðs vegar um heim og að- stæður hafðar eins raunverulegar og kostur er. Æfingin fer fram við fjöl- breyttar aðstæður, t.d. á flugvelli, í höfnum, í skipi og við bryggju. Þá er jafnframt virkjuð sérhæfð stjórn- stöð þar sem öll uppsetning og verk- fyrirkomulag er samkvæmt alþjóð- legum ferlum Atlantshafsbandalagsins (NATO). Æfingin veitir sprengjusérfræð- ingum, sem koma hvaðanæva úr heiminum, einstakt tækifæri til að samhæfa aðgerðir auk þess að miðla reynslu og þekkingu sinni til ann- arra liða. Northern Challenge hefur notið mikilla vinsælda á undan- förnum árum og hefur skipað sér sess sem ein mikilvægasta æfing sprengjusérfræðinga í Evrópu. Að þessu sinni eru þátttakendurnir frá 16 þjóðum og alls eru 25 lið skráð til leiks. Æfingin stendur yfir í um tvær vikur og að henni koma hátt í 300 manns. gudmundur@mbl.is 300 æfa viðbrögð við hryðjuverkum  Árleg æfing sprengjusérfræðinga haldin á Suðurnesj- um þessa dagana Ljósmynd/Landhelgisgæsla Íslands Sprengjuæfing Þátttakendur í æfingunni klæðast sprengjuheldum búningum og líkja eftir raunverulegum aðstæðum við hryðjuverkaógn. Eftir Líneyju Sigurðardóttur, Þórshöfn Ný brunavarnaáætlun hefur verið samþykkt fyrir starfssvæði Slökkvi- liðs Langanesbyggðar, en því til- heyra tvö sveitarfélög, Langanes- byggð og Svalbarðshreppur, sem bæði hafa samþykkt áætlunina. Þéttbýliskjarnarnir innan þess eru Þórshöfn og Bakkafjörður en íbúa- fjöldi svæðisins er um 650 manns. Björn Karlsson, forstjóri Mann- virkjastofnunar, heimsótti Langa- nesbyggð af þessu tilefni og und- irritaði áætlunina ásamt Elíasi Péturssyni sveitarstjóra. Björn lýsti ánægju með aðbúnað og störf slökkviliðsins á svæðinu og undir það tók sveitarstjórinn sem segir mikilvægt að til séu áætlanir um rekstur og fjármagnsþörf deilda innan sveitarfélagsins fram í tím- ann. Slökkvilið Langanesbyggðar og Isavia eru með samstarfssamn- ing um björgunar- og slökkvistörf á Þórshafnarflugvelli og þar með samrekstur á dælubíl sem er báðum aðilum hagkvæmt. Ennfremur er slökkviliðið með samstarfssamning við Slökkvilið Norðurþings og Brunavarnir Austurlands. Sveitarfélögin sem standa að Slökkviliði Langanesbyggðar eru meðal fyrstu sveitarfélaga sem hafa gengið frá brunavarnaáætlun í sam- ræmi við nýja reglugerð frá um- hverfis- og auðlindaráðuneytinu sem tók gildi 1. ágúst sl. Í henni er meðal annars kveðið á um lág- markskröfur um tækjakost, hús- næði og mannafla slökkviliða, sem og um vatnsöflun til slökkvistarfa, búnað og þjálfun slökkviliðsmanna vegna mengunaróhappa á landi og fleira. Ný brunavarnaáætlun gerð í LanganesbyggðJökull Gunn-arsson hefurverið ráðinn for- stjóri kísil- málms- verksmiðju PCC á Bakka. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu sem fyrir- tækið sendi á fjölmiðla í gær. Um innanhússráðningu er að ræða, en Jökull var áður fram- leiðslustjóri PCC BakkiSilicon hf. Starfar áfram fyrir félagið Hafsteinn Viktorsson lætur af störfum sem forstjóri en sam- kvæmt fréttatilkynningunni mun hann áfram sinna verkefnum fyrir félagið, þar á meðal hvað varðar mögulega stækkun verksmiðj- unnar en Hafsteinn hefur frá júni 2016 unnið að byggingu og gang- setningu kísilverksmiðjunnar á Bakka við Húsavík. Í tilkynningu fyrirtækisins kem- ur einnig fram að hluthafar PCC BakkiSilicon hf. þakki honum kærlega fyrir það lykilhlutverk sem hann hefur gegnt í því verk- efni og hlakki til að vinna með honum að nýjum viðfangsefnum. mhj@mbl.is Jökull Gunnarsson nýr forstjóri kísilverksmiðju PCC á Bakka Jökull Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.