Morgunblaðið - 19.09.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 19.09.2018, Qupperneq 36
N o r ð u r - A t l a n t s h a f G r æ n l a n d s h a f Norðurhe imskautsbaugur Vopnafjörður Þórshöfn Egilsstaðir GRÆNLA Ilulis Kulu N Narsars GRÆNLAND Nerlerit Inaat FÆREYJAR Tórshavn . Ke Í S L A N D kureyri Grímsey Ísafjörður YKJAVÍK ND sat suk uuk uaq 50 m ín. 40 m ín . Þegar upp er staðið hefur þú meiri orku og rýmri tíma til að gera það sem þig lystir. airicelandconnect.is Nýttu tímann og fljúgðu á vit ævintýranna Innanlandsflug frá 7.680 kr. aðra leiðina Skátar aftur á svið eftir fimm ára hlé Rokksveitin Skátar heldur sína fyrstu tónleika í Reykjavík í rúm fimm ár á skemmtistaðnum Húrra í kvöld kl. 20, ásamt tveimur reyk- vískum rokksveitum, Bagdad Brothers og Man Kind. Skátar lögðu upp laupana árið 2009 og höfðu þá vakið athygli fyrir hressilega sviðs- framkomu og búninga og ágenga en um leið dansvæna rokktónlist. MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 262. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr. „Mér fannst ég þurfa á meiri áskor- un að halda til að taka framförum. Þá horfði ég til toppliðanna. Mér leist vel á aðstæður hjá Breiðabliki og eins á leikmannahópinn sem var og er skipaður ungum leikmönn- um,“ segir hin 18 ára gamla Alex- andra Jóhannsdóttir, nýkrýndur Ís- landsmeistari í knattspyrnu með Breiðabliki. »4 Þurfti meiri áskorun til að taka framförum ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Nýliðar KA sendu skýr skilaboð þegar þeir völtuðu yfir Hauka með ellefu marka mun í annarri umferð Olísdeildar karla í handbolta um síðustu helgi. Morgunblaðið fer yfir umferðina í ítarlegum pistli í dag og velur úrvalslið umferðarinnar. KA-menn eiga þar tvo menn af sjö í byrjunarliðinu. Annar þeirra er markvörðurinn Jovan Kukobat sem er kom- inn aftur til félagsins. Sex rauð spjöld hafa þegar farið á loft í deildinni og svo virðist sem leik- menn séu farnir að „fiska“ andstæðingana út af í auknum mæli. »3 Nýliðar KA sendu skýr skilaboð gegn Haukum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ísrael er upplifun. Sagan opnast svo auðvelt verður að skapa í huganum myndir af þeim atburðum sem gerð- ust fyrir um tvö þúsund árum og seg- ir frá í Biblíunni. Fólkið sem ég fer með núna er búið að setja sig vel inn í málin; lesa og sækja fyrirlestra. Það er skemmtilegt að ferðast með slíku fólki,“ segir séra Þórhallur Heimis- son, prestur og fararstjóri. Íslenskur hópur, alls 185 manns, heldur suður til Ísraels næstkomandi sunnudag og fer með beinu flugi á Ben Gurion- flugvöll í Tel Aviv. Frímúrarastúkan Hamar í Hafnarfirði stendur fyrir ferðinni fyrir félaga sína og maka, en svo slást frímúrarar úr öðrum stúk- um reglunnar á Íslandi með í för. Olíufjallið og boðorðin tíu Ferðin hefur verið lengi í undir- búningi og þar hefur sr. Þórhallur haft hönd í bagga, en hann er að- stæðum vel kunnugur. Á fyrsta degi ferðar verður gamli borgarhlutinn í Jerúsalem skoðaður; farið að Gullna hliðinu, upp að Olíu- fjallinu, að Getsemanegarðinum, stoppað við Grátmúrinn og farið að grafarkirkju Krists á Golgata. Á öðr- um degi munu reglubræður svo halda frímúrarafund í Námum Salómons sem eru vel þekktur staður á þessum slóðum. Verða kjólfötin því með í töskum Ísraelsfaranna, sem einnig skoða helfararsafnið Yad Moshem, fæðingarkirkju Krists og kapelluna í Mjólkurhellinum. Hópurinn mun þá fara að Dauða- hafinu og Galíleuvatni; hvar fiski- mennirnir lögðu á djúpið forðum. Einnig verður heimsótt kirkjan á Beattitues-fjalli þar sem Kristur hélt fjallræðuna, en inntak hennar er boð- orðin tíu. Þegar líður á þessa tíu daga ferð verður farið til Jórdaníu og borg- arinnar Petru og áhugaverðir staðir þar í kring skoðaðir. Menningarsagan í sviphendingu „Ísrael og Palestína eru meðal áhugaverðustu staða í heiminum sem ég hef komið til. Þar birtist stór hluti af menningarsögu heimsins í svip- hendingu. En vissulega eru sagan og samfélagið á þessum slóðum flókin. Maður fær kannski ekki alltaf fullan skilning á atburðarás og umgjörð í fréttum af þessum slóðum, sem gjarnan eru af stríðsátökum. Þau eru líka að mestu háð við landamæralínur og ná lítið til almennings inni í borg- unum sem við heimsækjum nú,“ segir sr. Þórhallur, sem síðustu misseri hefur verið búsettur í Svíþjóð. Hann er þó alltaf með annan fótinn heima á Íslandi og sinnir námskeiðahaldi og fararstjórn á framandi slóðum. Frímúrarar taka kjól- fötin með til Ísraels AFP Strangtrúaðir Gyðingar með hatta sína við bænagjörð á strönd Miðjarðarhafsins. Trúarbrögðin móta mannlífið í löndum Biblíunnar, svo sem Ísrael, en þangað og til Jórdaníu er hópur íslenskra frímúrara nú á leiðinni.  Íslendingar að Gullna hliðinu, Getsemanegarði og Galíleuvatni Fararstjóri Þórhallur Heimisson hefur ferðast víða með Íslendinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.