Morgunblaðið - 19.09.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.09.2018, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 Við Skaftá Allir dagar eru sérstakir og til dæmis var dagur íslenskrar náttúru síðastliðinn sunnudag, en í raun á hver dagur sína náttúru enda eru engir tveir dagar eins. RAX Sjálfstæðir fjöl- miðlar standa höllum fæti í ójafnri sam- keppni. Þeir mega sín lítils gegn forréttindum ríkisins á fjölmiðla- markaði og alþjóð- legum stórfyrirtækjum sem sjúga ritstjórn- arefni og auglýsinga- tekjur úr garði einka- rekinna fjölmiðla. Í liðinni viku kynnti mennta- málaráðherra hugmyndir sem koma til greina í viðleitni stjórnvalda til að styrkja rekstur sjálfstæðra fjöl- miðla. Útfærslur eru eftir en öllum má vera ljóst að þær valda ekki straumhvörfum í rekstri einkarek- inna fjölmiðla. Á sama tíma og þeir berjast flestir í bökkum hefur fjár- hagslegur hagur Ríkisútvarpsins stöðugt vænkast og dagskrárvaldið orðið öflugra. Við blasir að enginn pólitískur vilji er til þess að ráðast að rót vandans – forréttindum Ríkisútvarpsins. Óhætt er að fullyrða að mikill meiri- hluti þingmanna stendur tryggan vörð um Ríkisútvarpið. Engu er lík- ara en að sumum þyki vænna um þá stofnun en nokkra aðra. Þess vegna verður samstaða um það að „bæta“ Ríkisútvarpinu upp reiknað tekjutap vegna lítils háttar takmörkunar á umsvifum þess á auglýsingamarkaði, líkt og menntamálaráðherra leggur til. Og reikningurinn endar alltaf hjá skattgreiðendum. Ég hef orðað þetta þannig að Rík- isútvarpið njóti þess að vera í mjúk- um og hlýjum faðmi stjórnmálanna. Forgangsröðunin þeg- ar kemur að fjölmiðlun hér á landi er sú að fyrst skuli tryggja rekstur og framtíð Rík- isútvarpsins og síðan sé rétt að vinna að því að sjálfstæðir fjölmiðlar lifi af – svona rétt við hungurmörk. Á jötu ríkisins Ein af þeim hug- myndum sem mennta- málaráðherra varpaði fram í síðustu viku er að ritstjórn- arkostnaður rit- og ljósvakamiðla verði endurgreiddur að hluta. Reikn- að er með að ríkissjóður verji um 350 milljónum króna í endurgreiðslur á komandi ári. Þegar þetta er skrifað liggur ekk- ert fyrir eftir hvaða reglum verður farið við væntanlega endurgreiðslu, sem þó verður bundin við ákveðið há- mark. Ég hef ítrekað varað við hug- myndum um millifærslukerfi hins opinbera til að styðja við bakið á ein- stökum fyrirtækjum eða atvinnu- greinum. Við höfum slæma reynslu af slíku. Og það er þversögn fólgin í því að reyna að styðja við frjálsa og opna fjölmiðlun með beinum rík- isstyrkjum og millifærslum. Valkreppa mín og margra annarra er hins vegar að við eigum ekki um marga kosti að velja og fáa góða, a.m.k. ekki á meðan við höfum ekki pólitískan styrk til þess að leiðrétta ranglætið sem viðgengst á fjölmiðla- markaði með umfangsmiklum rík- isrekstri. Það skal játast að við sem leggjum áherslu á öfluga einkarekna fjölmiðla erum í nauðvörn. En ólíkt Snæfríði Íslandssól getum við ekki leyft okkur að velja fremur versta kostinn en þann næstbesta (eða minnst vonda). Undir lok síðasta árs lagði ég til að virðisaukaskattur af áskriftum prent-, ljósvaka- og netmiðla yrði felldur niður. Með niðurfellingu virð- isaukaskattsins væri fólgin yfirlýs- ing um nauðsyn þess að leiðrétta lít- illega samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði – gera hana örlítið sanngjarnari og heilbrigðari. Það kann að vera að skynsamlegra sé að taka upp endurgreiðslu virð- isaukaskatts fremur en að fella hann niður með formlegum hætti. Með sama hætti er hægt að huga að kost- um og göllum þess að fjölmiðlar geti fengið endurgreidd tryggingagjöld vegna ritstjórna. Allt að 600 milljóna ívilnun til RÚV Á sama tíma og fjárhagslegur styrkur Ríkisútvarpsins hefur aukist hefur staða sjálfstæðra fjölmiðla ver- ið að veikjast. Hækkun virð- isaukaskatts á áskriftir blaða og tímarita úr 7% í 11% í ársbyrjun 2015 var þungt högg. Lögþvingaðar áskriftartekjur Ríkisútvarpsins – út- varpsgjald bera ekki virðisauka- skatt. Þegar Alþingi samþykkti að inn- leiða virðisaukaskatt með lögum árið 1988 var ákveðið að sala dagblaða og sambærilegra landsmála- og héraðs- fréttablaða skyldi undanþegin virð- isaukaskatti. Þessu var breytt árið 1992 þegar nýtt lægra þrep virð- isaukaskatts var tekið upp – þá 14% en efra þrepið var 24,5%. Eftir breytinguna lagðist virðisauka- skattur á bækur, blöð tímarit, og af- notagjöld útvarps og sjónvarps, þar með talið á afnotagjöld Ríkisútvarps- ins. Með lögum árið 2006 var neðra þrep virðisaukaskatts lækkað í 7% en það var hækkað að nýju árið 2015, eins og áður segir. Ríkisútvarpið var gert að opin- beru hlutafélagi með lögum árið 2007. Fram að þeim tíma var inn- heimt afnotagjald sem bar virðis- aukaskatt en eftir að útvarpsgjald var innleitt samhliða formbreytingu hefur virðisaukaskattur ekki verið lagður á. Litið er svo á að útvarps- gjaldið falli undir 12. grein laga um virðisaukaskatt og því hefur Ríkis- útvarpið haldið fullum rétti til inn- skattfrádráttar, þó að ekki sé lagður á virðisaukaskattur. Fyrir formbreytinguna 2007 var staða Ríkisútvarpsins gagnvart lög- um um virðisaukaskatt sú sama og annarra fjölmiðla sem selja áskriftir og auglýsingar, afnotagjald/ áskriftagjald í neðra þrepi virðis- aukaskatts en auglýsingar í efra þrepi og full heimild til innskatts- frádráttar. Augljóst er að afnám virðisaukaskatts á afnotagjald (út- varpsgjald) Ríkisútvarpsins jók for- skot ríkisfjölmiðilsins. Ætla má að skattaleg ívilnun Ríkisútvarpsins vegna þessa sé 5-600 milljónir króna á ári. Afnám virðisaukaskatts af áskrift- um eða endurgreiðsla er skref í þá átt að leiðrétta mismunun sem hefur viðgengist of lengi. Fyrst skal farið að lögum Ríkisútvarpið fékk á síðasta ári liðlega 4,1 milljarð króna frá skatt- greiðendum í formi útvarpsgjalds og hafði auk þess 2,3 milljarða í tekjur af auglýsingum, kostun og öðru í samkeppnisrekstri. Heildartekjur voru því rúmlega 6,4 milljarðar króna. Ríkisútvarpið starfar samkvæmt sérstökum lögum. Í 4. grein er Ríkis- útvarpinu gert skylt að stofna og reka dótturfélög, vegna samkeppnis- rekstrar. Þetta á t.d. við um sölu auglýsinga og útleigu á tækjabúnaði eða aðstöðu til framleiðslu á kvik- mynda- og sjónvarpsefni. Fram til loka síðasta árs þurfti Ríkisútvarpið ekki að uppfylla þessa kvöð. En sam- kvæmt ákvörðun Alþingis í desem- ber 2015 var Ríkisútvarpinu gert skylt frá og með 1. janúar 2018 að vera með samkeppnisrekstur í dótturfélögum, með aðskildum fjár- hag. Þetta hefur ekki verið gert. Ríkis- útvarpið gengur því gegn ákvæðum laga og hefur gert allt þetta ár meðal annars þegar auglýsingamarkaður- inn var þurrkaður upp í sumar í skjóli heimsmeistaramótsins í knatt- spyrnu. Skaði einkarekinna fjölmiðla verður seint metinn að fullu. Er ekki rétt, þegar reynt er að rétta hlut og skjóta stoðum undir sjálfstæða fjölmiðla, að byrja á því að tryggja að Ríkisútvarpið fari að lög- um? Eftir Óli Björn Kárason » Við eigum ekki um marga kosti að velja og fáa góða, ekki á með- an við höfum ekki póli- tískan styrk til þess að leiðrétta ranglætið á fjölmiðlamarkaði. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins. Nokkur orð um fílinn og sjálfstæða fjölmiðla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.