Morgunblaðið - 19.09.2018, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018
Við Skaftá Allir dagar eru sérstakir og til dæmis var dagur íslenskrar náttúru síðastliðinn sunnudag, en í raun á hver dagur sína náttúru enda eru engir tveir dagar eins.
RAX
Sjálfstæðir fjöl-
miðlar standa höllum
fæti í ójafnri sam-
keppni. Þeir mega sín
lítils gegn forréttindum
ríkisins á fjölmiðla-
markaði og alþjóð-
legum stórfyrirtækjum
sem sjúga ritstjórn-
arefni og auglýsinga-
tekjur úr garði einka-
rekinna fjölmiðla.
Í liðinni viku kynnti mennta-
málaráðherra hugmyndir sem koma
til greina í viðleitni stjórnvalda til að
styrkja rekstur sjálfstæðra fjöl-
miðla. Útfærslur eru eftir en öllum
má vera ljóst að þær valda ekki
straumhvörfum í rekstri einkarek-
inna fjölmiðla. Á sama tíma og þeir
berjast flestir í bökkum hefur fjár-
hagslegur hagur Ríkisútvarpsins
stöðugt vænkast og dagskrárvaldið
orðið öflugra.
Við blasir að enginn pólitískur vilji
er til þess að ráðast að rót vandans –
forréttindum Ríkisútvarpsins.
Óhætt er að fullyrða að mikill meiri-
hluti þingmanna stendur tryggan
vörð um Ríkisútvarpið. Engu er lík-
ara en að sumum þyki vænna um þá
stofnun en nokkra aðra. Þess vegna
verður samstaða um það að „bæta“
Ríkisútvarpinu upp reiknað tekjutap
vegna lítils háttar takmörkunar á
umsvifum þess á auglýsingamarkaði,
líkt og menntamálaráðherra leggur
til. Og reikningurinn endar alltaf hjá
skattgreiðendum.
Ég hef orðað þetta þannig að Rík-
isútvarpið njóti þess að vera í mjúk-
um og hlýjum faðmi stjórnmálanna.
Forgangsröðunin þeg-
ar kemur að fjölmiðlun
hér á landi er sú að
fyrst skuli tryggja
rekstur og framtíð Rík-
isútvarpsins og síðan sé
rétt að vinna að því að
sjálfstæðir fjölmiðlar
lifi af – svona rétt við
hungurmörk.
Á jötu ríkisins
Ein af þeim hug-
myndum sem mennta-
málaráðherra varpaði
fram í síðustu viku er að ritstjórn-
arkostnaður rit- og ljósvakamiðla
verði endurgreiddur að hluta. Reikn-
að er með að ríkissjóður verji um 350
milljónum króna í endurgreiðslur á
komandi ári.
Þegar þetta er skrifað liggur ekk-
ert fyrir eftir hvaða reglum verður
farið við væntanlega endurgreiðslu,
sem þó verður bundin við ákveðið há-
mark. Ég hef ítrekað varað við hug-
myndum um millifærslukerfi hins
opinbera til að styðja við bakið á ein-
stökum fyrirtækjum eða atvinnu-
greinum. Við höfum slæma reynslu
af slíku. Og það er þversögn fólgin í
því að reyna að styðja við frjálsa og
opna fjölmiðlun með beinum rík-
isstyrkjum og millifærslum.
Valkreppa mín og margra annarra
er hins vegar að við eigum ekki um
marga kosti að velja og fáa góða,
a.m.k. ekki á meðan við höfum ekki
pólitískan styrk til þess að leiðrétta
ranglætið sem viðgengst á fjölmiðla-
markaði með umfangsmiklum rík-
isrekstri. Það skal játast að við sem
leggjum áherslu á öfluga einkarekna
fjölmiðla erum í nauðvörn. En ólíkt
Snæfríði Íslandssól getum við ekki
leyft okkur að velja fremur versta
kostinn en þann næstbesta (eða
minnst vonda).
Undir lok síðasta árs lagði ég til að
virðisaukaskattur af áskriftum
prent-, ljósvaka- og netmiðla yrði
felldur niður. Með niðurfellingu virð-
isaukaskattsins væri fólgin yfirlýs-
ing um nauðsyn þess að leiðrétta lít-
illega samkeppnisstöðu á
fjölmiðlamarkaði – gera hana örlítið
sanngjarnari og heilbrigðari. Það
kann að vera að skynsamlegra sé að
taka upp endurgreiðslu virð-
isaukaskatts fremur en að fella hann
niður með formlegum hætti. Með
sama hætti er hægt að huga að kost-
um og göllum þess að fjölmiðlar geti
fengið endurgreidd tryggingagjöld
vegna ritstjórna.
Allt að 600 milljóna
ívilnun til RÚV
Á sama tíma og fjárhagslegur
styrkur Ríkisútvarpsins hefur aukist
hefur staða sjálfstæðra fjölmiðla ver-
ið að veikjast. Hækkun virð-
isaukaskatts á áskriftir blaða og
tímarita úr 7% í 11% í ársbyrjun
2015 var þungt högg. Lögþvingaðar
áskriftartekjur Ríkisútvarpsins – út-
varpsgjald bera ekki virðisauka-
skatt.
Þegar Alþingi samþykkti að inn-
leiða virðisaukaskatt með lögum árið
1988 var ákveðið að sala dagblaða og
sambærilegra landsmála- og héraðs-
fréttablaða skyldi undanþegin virð-
isaukaskatti. Þessu var breytt árið
1992 þegar nýtt lægra þrep virð-
isaukaskatts var tekið upp – þá 14%
en efra þrepið var 24,5%. Eftir
breytinguna lagðist virðisauka-
skattur á bækur, blöð tímarit, og af-
notagjöld útvarps og sjónvarps, þar
með talið á afnotagjöld Ríkisútvarps-
ins. Með lögum árið 2006 var neðra
þrep virðisaukaskatts lækkað í 7%
en það var hækkað að nýju árið 2015,
eins og áður segir.
Ríkisútvarpið var gert að opin-
beru hlutafélagi með lögum árið
2007. Fram að þeim tíma var inn-
heimt afnotagjald sem bar virðis-
aukaskatt en eftir að útvarpsgjald
var innleitt samhliða formbreytingu
hefur virðisaukaskattur ekki verið
lagður á. Litið er svo á að útvarps-
gjaldið falli undir 12. grein laga um
virðisaukaskatt og því hefur Ríkis-
útvarpið haldið fullum rétti til inn-
skattfrádráttar, þó að ekki sé lagður
á virðisaukaskattur.
Fyrir formbreytinguna 2007 var
staða Ríkisútvarpsins gagnvart lög-
um um virðisaukaskatt sú sama og
annarra fjölmiðla sem selja áskriftir
og auglýsingar, afnotagjald/
áskriftagjald í neðra þrepi virðis-
aukaskatts en auglýsingar í efra
þrepi og full heimild til innskatts-
frádráttar. Augljóst er að afnám
virðisaukaskatts á afnotagjald (út-
varpsgjald) Ríkisútvarpsins jók for-
skot ríkisfjölmiðilsins. Ætla má að
skattaleg ívilnun Ríkisútvarpsins
vegna þessa sé 5-600 milljónir króna
á ári.
Afnám virðisaukaskatts af áskrift-
um eða endurgreiðsla er skref í þá
átt að leiðrétta mismunun sem hefur
viðgengist of lengi.
Fyrst skal farið að lögum
Ríkisútvarpið fékk á síðasta ári
liðlega 4,1 milljarð króna frá skatt-
greiðendum í formi útvarpsgjalds og
hafði auk þess 2,3 milljarða í tekjur
af auglýsingum, kostun og öðru í
samkeppnisrekstri. Heildartekjur
voru því rúmlega 6,4 milljarðar
króna.
Ríkisútvarpið starfar samkvæmt
sérstökum lögum. Í 4. grein er Ríkis-
útvarpinu gert skylt að stofna og
reka dótturfélög, vegna samkeppnis-
rekstrar. Þetta á t.d. við um sölu
auglýsinga og útleigu á tækjabúnaði
eða aðstöðu til framleiðslu á kvik-
mynda- og sjónvarpsefni. Fram til
loka síðasta árs þurfti Ríkisútvarpið
ekki að uppfylla þessa kvöð. En sam-
kvæmt ákvörðun Alþingis í desem-
ber 2015 var Ríkisútvarpinu gert
skylt frá og með 1. janúar 2018 að
vera með samkeppnisrekstur í
dótturfélögum, með aðskildum fjár-
hag.
Þetta hefur ekki verið gert. Ríkis-
útvarpið gengur því gegn ákvæðum
laga og hefur gert allt þetta ár meðal
annars þegar auglýsingamarkaður-
inn var þurrkaður upp í sumar í
skjóli heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu. Skaði einkarekinna fjölmiðla
verður seint metinn að fullu.
Er ekki rétt, þegar reynt er að
rétta hlut og skjóta stoðum undir
sjálfstæða fjölmiðla, að byrja á því að
tryggja að Ríkisútvarpið fari að lög-
um?
Eftir Óli Björn
Kárason » Við eigum ekki um
marga kosti að velja
og fáa góða, ekki á með-
an við höfum ekki póli-
tískan styrk til þess að
leiðrétta ranglætið á
fjölmiðlamarkaði.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins.
Nokkur orð um fílinn og sjálfstæða fjölmiðla