Morgunblaðið - 19.09.2018, Side 16

Morgunblaðið - 19.09.2018, Side 16
Morgunblaðið/Árni Sæberg Vöxtur WOW air beinir 20 vélum á fjölmarga áfangastaði vestanhafs og í Evrópu. Félagið leigir fjórtán Airbus A321 vélar, þrjár A320 og þrjár A330 vélar. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is WOW air sendi frá sér tilkynningu í gær þess efnis að flugfélagið hefði tryggt sér 50 milljóna evra fjár- mögnun, jafnvirði 6,4 milljarða króna, á grundvelli skuldabréfa- flokks sem gefinn verður út. Flokk- urinn mun nema 60 milljónum evra í heildina, en um miðjan dag í gær höfðu fjárfestar skráð sig fyrir fyrr- nefndum 50 milljónum. Heildar- stærð flokksins mun því jafngilda 7,7 milljörðum króna. Fyrirtækið hyggst safna þeim 10 milljónum evra, sem upp á vantar, í söluferli í kjölfar útboðsins. Samkvæmt upp- lýsingum frá fyrirtækinu eru það bæði innlendir og erlendir fjárfestar sem nú koma að fjármögnun flug- félagsins með þessum hætti. Upphaflega hafði WOW air stefnt að því að safna 6-12 milljörðum króna í útboðsferlinu og því bendir flest til að niðurstaða ferlisins, sem staðið hefur yfir í nokkrar vikur, verði vel ofan við neðri hluta þess markmiðs sem lagt var upp með. Líkt og félagið greindi frá í lok síð- ustu viku eru lánakjörin byggð á 9 prósentustiga álagi ofan á 3 mánaða Euribor-vexti sem um þessar mund- ir eru neikvæðir sem nemur 0,319%. Í ákvæðum skuldabréfaútgáfunnar fara vextirnir þó aldrei undir 9% auk trygginga. Ekki hefur verið gefið upp í hverju þær felast, þ.e. hver kostnaður félagsins er af þeim. Skuldabréfin eru gefin út til þriggja ára. Bréfin skráð í Stokkhólmi Það var norska fjármálafyrirtækið Pareto Securities sem hafði umsjón með útboðinu ásamt Arctica Fin- ance. Skuldabréfin verða gefin út með rafrænum hætti í Værdigpapir- sentralen ASA í Noregi og verða þau svo í kjölfarið skráð til viðskipta í Nasdaq-kauphöllinni í Stokkhólmi. Í svari við fyrirspurn Morgun- blaðsins í gærdag sagði Svanhvít Friðriksdóttir að þeim fjármunum sem tryggðir hefðu verið með útboð- inu yrði varið í almennan rekstur og áframhaldandi vöxt félagsins. Þá yrði hluti þeirra nýttur „til þess að gera upp við birgja félagsins“. Í spurningum Morgunblaðsins var sérstaklega vikið að skuld WOW air við Isavia ohf. vegna vangoldinna lendingargjalda á Keflavíkurflug- velli. Ekki var í svari félagsins til- greint hvort þær skuldir væru meðal fyrrnefnds uppgjörs. Líkt og fram kom í Morgunblaðinu á laugardag- inn síðasta skuldar WOW air Isavia um 2 milljarða króna vegna nýtingar á Keflavíkurflugvelli og helmingur þeirrar fjárhæðar er nú þegar gjald- fallinn. Indlandsáformin óbreytt Spurð út í vaxtaráform félagsins á komandi mánuðum, einkum nýtt flug til Indlands á hinum stóru Airbus A330-900neo breiðþotum, segir Svanhvít að öll áform félagsins þar um séu óbreytt. Fyrsta flug félags- ins til Delí á Indlandi verður farið í desember næstkomandi. Fyrr á þessu ári kom fram í umfjöllun Við- skiptablaðsins að WOW air stefndi á að fljúga á 15 áfangastaði í Asíu á komandi árum. Stefnt er á markað innan skamms Samhliða tilkynningunni um að skuldabréfaútboðið væri í höfn greindi WOW air frá því að félagið hefði ráðið Arion banka og Arctica Finance til að hefja undirbúning að skráningu hlutabréfa félagsins á markað. Stefnt er á að gera það inn- an 12-18 mánaða, bæði í kauphöll hér heima og erlendis. Morgunblaðið leitaði viðbragða hjá WOW air við þeirri spurningu hvort minnihluti í félaginu yrði met- inn á 200-300 milljónir dollara, jafn- virði 22-33 milljarða króna, líkt og vikið var að á síðum Financial Times í byrjun vikunnar. „Verðmat hefur ekki verið gert á félaginu en undirbúningur að skrán- ingu félagsins er hafinn í samstarfi við Arion banka og Arctica Finance,“ sagði í svari frá félaginu. WOW nýtir nýtt fjármagn til rekstrar og uppgjörs  Tryggði 6,4 milljarða fjármögnun með skuldabréfaútboði  Stefnir enn á markað 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 19. september 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 109.36 109.88 109.62 Sterlingspund 143.25 143.95 143.6 Kanadadalur 83.92 84.42 84.17 Dönsk króna 17.083 17.183 17.133 Norsk króna 13.307 13.385 13.346 Sænsk króna 12.173 12.245 12.209 Svissn. franki 113.34 113.98 113.66 Japanskt jen 0.9756 0.9814 0.9785 SDR 153.04 153.96 153.5 Evra 127.44 128.16 127.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 158.9995 Hrávöruverð Gull 1196.8 ($/únsa) Ál 2015.0 ($/tonn) LME Hráolía 78.07 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Bréf Icelandair Group lækkuðu um ríflega 3% í viðskiptum í Kauphöll Íslands í gær. Námu við- skiptin með bréf félagsins 105,5 milljónum króna. Eru bréfin nú um 50% ódýrari en í upphafi árs. Bréf Eimskipafélagsins lækkuðu einnig um 1,2% í ríflega 47 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkuðu bréf Heimavalla um tæp 0,9% í afar takmörkuðum viðskiptum. Mest hækkuðu bréf fasteignafélags- ins Reita eða um 1,9% í 170 milljóna króna viðskiptum. Þá hækkuðu bréf Skeljungs um 1,8% í 191 milljónar við- skiptum. Úrvalsvísitalan gaf eilítið eftir í viðskiptum gærdagsins. Hana vantar nú 0,42% upp á að ná stöðu sinni um síðustu áramót. Icelandair Group lækk- aði mest í Kauphöllinni STUTT Þór Steinarsson thor@mbl.is Velta í sölu og viðhaldi vélknúinna ökutækja í maí og júní 2018 var 11,7% minni en á sama tímabili árið 2017. Mesti hluta minnkunarinnar eða 95% er vegna minni veltu í sölu vélknúinna ökutækja, þó ekki vél- hjóla. Samdráttinn má rekja til þess að bílaleigur kaupa nú færri bíla. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Fjöldi nýskráðra fólksbifreiða í maí og júní 2018 var 5.455 sem er 22% fækkun miðað við sama tímabil á síðasta ári þegar nýskráningar voru 6.977 talsins. Þá hefur nýskráðum bílaleigubíl- um fækkað á milli ára um 34%. Í maí og júní 2018 voru nýskráðir bíla- leigubílar 3.630 miðað við 5.523 á sama tímabili árið á undan. Um eðlilega þróun að ræða „Síðasta ár var það stærsta í sög- unni. Þá kom gríðarleg þörf á endur- nýjun á bílum og við sjáum þetta jafnast út núna. Þetta er nokkuð í takt við þróun,“ segir María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, í samtali við Morgunblaðið. María segir samdráttinn ekki vera áhyggjuefni þar sem árið 2017 hafi verið óvenjulega stórt og erfitt að nota það í hvers kyns samanburði. „Þetta er eðlilegt og ég tel að við munum sjá dálitla minnkun aftur á næsta ári. Við áætlum að þetta ár endi í 19 þúsund bílum og næsta ár í 17-18 þúsund bílum,“ bætir María við að lokum. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Bílar María Jóna Magnúsdóttir hef- ur ekki áhyggjur af samdrættinum. Samdráttur í sölu og nýskráningum  Ekki áhyggju- efni heldur í takt við eðlilega þróun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.